Vigfús Bjarni Sækist eftir að söðla um í starfi. Mynd: Kristinn Magnússon

Forsetaframbjóðendur: „Ég hef séð barn kveðja foreldra sína“

Sjúkra­hús­prest­ur­inn Vigfús Bjarni Alberts­son hefur skapað sér gott orð­spor, bæði með þægi­legri og frið­sælli nær­veru sinni, en einnig vegna oft á tíðum rótækrar fram­göngu sína innan þjóð­kirkj­unnar.

Sjúkra­hús­prest­ur­inn Vigfús Bjarni kom óvænt inn í umræð­una um for­seta­kosn­ing­arnar í sumar, þegar í ljós kom að nokkur hund­ruð manns höfðu skorað á hann í fram­boð. Kom sú áskorun Vigfúsi mikið á óvart, en eftir að hafa lagt höf­uðið í bleyti ásamt kon­unni sinni ákv­aðu þau þó að bregð­ast við kall­inu, og fara í ferð­ar­lag. Eins og Vigfús orðar það sjálfur „ákváðum við að líta á þessar kosn­ingar sem veg­ferð, en ekki bar­áttu.“

Hann er einka­barn for­eldra sinna, Alberts Rík­ars­sonar kenn­ara og Elínar Vig­fús­dóttur snyrti­fræð­ings. Segir hann í gríni að þau hafi bara þorað í eitt barn: „Þetta var alveg nóg verk­efni fyrir þau.“ Ólst Vigfús upp hjá þeim, en var einnig mikið norður á jörð afa síns og ömmu, á bænum Laxamýri, norður í Þing­eyja­sýslu. „Þannig ég mót­að­ist bæði af bæ og í borg, og það er umhverfi sem hefur haft mikil áhrif á mann.“

Gekk hann í grunn­skóla í Reykja­vík og seinna mennt­ar­skóla. Eftir að hafa útskrif­ast með stúd­ent árið 1995 bjó hann í Danmörku í 9 mán­uði, áður en hann hóf emb­ætt­is­nám í guð­fræði. Starfaði hann þann tíma með­fram námi, bæði sumar og vetur, í lög­regl­unni í Reykja­vík, „sem var gríð­ar­lega góður skóli, að kynn­ast fólki í alls­konar aðstæðum.“ Eftir að hafa klárað 5 ára emb­ætt­is­nám fór hann svo til Banda­ríkj­anna, þar sem hann sér­hæfði sig í sorgar- og áfalla­vinnu. Hefur Vigfús svo starfað sem sjúkra­hús­prestur á Land­spít­al­anum frá árinu 2005.

Sérhæfður í sorg

Giftist hann kon­unni sinni, Valdísi Ösp Ívars­dóttur, fíkni­fræð­ing, árið 2001. Eiga þau þrjú börn saman, 18 ára stelpu og tvo drengi, 12 og 7 ára. Auk starfa sinna á Land­spít­al­anum hefur Vigfús kennt sorgar og áfalla­vinnu í meist­ara­námi við Háskóla Íslands.

Það að sér­hæfa sig í því að vera innan um fólk á erf­ið­ustu stundum lífs þeirra er fer­ill sem fáir velja sér. Veikindi, and­lát og sorg er eitt­hvað sem við reynum flest að halda sem mestri fjar­lægð á, en Vigfús hefur sótt í. Segir hann vinn­una þó, þrátt fyrir allt, vera skemmti­lega, í þeirri merk­ingu að í henni fái hann að tengj­ast fólki mjög náið. „Vinna með fjöl­skyldum sem eru að takast á við áföll, óháð líf­skoð­unum og við­horfum. Það er ótrú­lega dýr­mætt að fá að gera það.“

Segist hann hafa ástríðu fyrir því að vera í aðstæðum þar sem fólk verður ber­skjaldað, því þar þurfi maður sjálfur að vera ber­skjald­aður. Aðstæður þar sem maður á ekki svör við öllu, og eina leiðin er að reyna að tengj­ast fólki. „Þetta starf krefst auð­mýktar, þetta er starf þar sem krefst þess að þú sért sem eðli­leg­ust mann­eskja. Það falla allar grímur. Ég nota það orð­færi oft. Þetta eru grímu­laus sam­skipti. Fyrir þann sem þjá­ist og þann sem fær að standa við hlið­ina á honum. Það eru for­rétt­indi.“

Vill virkja lífsskoðanir fólks

Starf Vigfúsar með lög­regl­unni, sam­hliða námi, segir hann að hafi stutt þá ákvörðun sína að fara í guð­fræði, og svo þessa óvenju­legu sér­hæf­ingu. „Mér fannst áhuga­vert að vera með fólki í aðstæð­unum sem það er að glíma við, sem er jú stór hluti af presta­vinn­unni.“ Áhugi Vigfúsar á stóru spurn­ingum lífs­ins hafi einnig spilað þar stórt hlut­verk. Guð­fræðin sé í raun þver­fag­leg, inni­haldi meðal ann­ars sál­fræði, sögu og til­vist­ar­spurn­inga heim­spek­inar. „Ég er svo bara mót­aður af líf­inu. Hafði kynnst bæði sigrum og ósigrum, og það er bara mik­il­vægt. Mig lang­aði til að dýpka þennan skiln­ing. Ég hef þurft að glíma hell­ing við sjálfan mig, og horft á aðra í mínu lífi þurfa að glíma við sig.“

Það kemur meira hik á tal Vigfúsar þegar hann lýsir dýpt­inni og feg­urð­inni í mann­legum sam­skiptum, sem fara fram á þess­ari bjarg­brún lífs og dauða. “Þar sem maður hefur séð fólk kveðj­ast, gera upp hlut­ina, takast á við sjálfa sig, opin­bera sjálfa sig, veita þeim sem eru að verða eftir von. Ég hef séð barn kveðja for­eldra sína. Þetta er nátt­úru­lega eins afhjúp­aður veru­leiki og getur verið, en rosa­lega sannur. Stríp­aður.”

Nið­ur­staða hans eftir þessa 11 ára vinnu á Land­spít­al­anum er sú að hann hefur mikla trú á fólki. „Mér finnst öllu fólki svipa svo saman. Mér finnst ég og þú vera svo líkir. Það kemur í ljós þegar búið er að afhjúpa allt; vonir, vænt­ingar og til­vist­ar­legar hugs­anir fólks eru allar svo líkar. Það er kjarni, sama hvað við segj­umst vera og aðhyll­ast. Ég vinn bara með fólki, og það skiptir ekk­ert máli hver lífs­skoðun þeirra er. Þetta snýst ekk­ert um það. Ég veit ekki svarið. Þetta gengur ekki út á það að óvirða lífs­nið­ur­stöður fólk. Alls ekki. Miklu frekar að virkja hana.“

Grímulaus
Grímu­laus Úr lög­regl­unni í prest­inn. Af sjúkra­hús­inu á Bessa­staði.

Tíu spurningar

1. Hvað finnst þér um málsskotsrétt forseta og í hvaða tilfellum getur þú séð fyrir þér að nýta hann?

For­set­inn sem nú verður kjör­inn þarf að setja sér reglu um það. Ég hef áður talað um að það ætti að miða við 15% kosn­inga­bærra manna. Þá sé almenn­ingur búinn að tjá sig á þann hátt að hann vilji fá að kveða upp um hvernig mál­inn eigi að fara. En ég vona að stjórn­ar­skrár­málið þró­ist þannig að þetta vald fari til þjóð­ar­innar. Ég tel að það sé gríð­ar­lega mik­il­vægt. Ég held að ástandið eins og það er núna sé algjör­lega að rök­styðja það.

2. Hvað finnst þér um stefnu stjórnvalda undanfarna áratugi varðandi stóriðju?

Ég er svo glaður með það að umhverf­is­vernd er að verða hin almenna skoðun. Einusinni var hún sér­tæk, en ég held að við séum flest orðin umhverf­is­vernd­ar­sinnar. Mér sýn­ist sem svo að við getum kannski ekki gengið mikið lengra í því að við erum með nátt­úr­una að láni. Við séum komin alveg að ýmsum þol­mörkum, ekki bara gagn­vart stór­iðju, en líka umgengni ferða­manna og fleira. Við þurfum að fara í mjög ákveðna vinnu í því að varð­veita þetta umhverfi og þessa nátt­úru, sem við höfum jú að láni.

3. Finnst þér eignarréttur, eins og yfir til dæmis auðlindum og framleiðslutækjum, mikilvægur?

Það er grund­vall­ar­at­riði í okkar sam­fé­lagi að það sé algjör­lega skýrt að eign­ar­réttur auð­lind­anna sé þjóð­ar­innar. Kannski er það stundum allt of óljóst, hvernig það liggur. Aftur á móti geta fyr­ir­tæki fengið aðgang að þessum auð­lindum sem við, þjóðin og næstu kyn­slóðir, eigum. Ég held að það sé gríð­ar­lega mik­il­vægt að árétta, einnig að nátt­úru­auð­lindir eru okkar sam­eig­in­lega eign, en ekki eign fárra fjöl­skyldna.

4. Hvort hallast þú frekar að auknum einkarekstri eða auknum ríkisrekstri, til dæmis varðandi heilbrigðiskerfi og skólakerfi?

Það er grund­vall­ar­at­riði að allir njóti heilsu og mennt­unar í þessu landi. Ég vil að hún gefi öllum jöfn tæki­færi. Sá rekstur sem stuðlar að því að allir fái þjón­ustu óháð efna­hag og upp­runa er hið rétta rekstr­ar­form.

5. Ert þú fylgjandi ríkisreknum fjölmiðli?

Ég hef áhyggjur af fjöl­miðlum, hvort sem þeir eru í einka­eign eða rík­is­eign. Ég held að þeir séu eitt mik­il­væg­asta aflið í hverju þjóð­fé­lagi, til að segja sann­leik­ann. Hvort sem það er rík­is­eign eða einka­eign, sem raskar þeirri getu að segja sann­leik­ann, hvort sem það er í krafti pen­inga eink­að­ila eða vald­hafa rík­iss­ins, þá er það alltaf hættu­legt. Þannig ég er mjög feg­inn þeirri þróun sem hefur átt sér stað, þegar einka­fjöl­miðlar verða til, sem eru ekki háðir neinum ann­ar­legum for­sendum, sem segja sann­leik­ann í sam­fé­lag­inu og trufl­ast hvorki af rík­is­vald­höfum eða pen­inga­vald­höfum. Það er ekk­ert sjálf­gefið að rík­is­fjöl­mið­ill sé heið­ar­legri en einka­fjöl­mið­ill. En ég held það sé alveg eðli­legt að ríkið reki ekki það mikla fjöl­miðla að það skaði til dæmi aðra fjöl­miðlun. En heil­brigð fjöl­miðlun hjálpar til við heil­brigt sam­fé­lag.

6. Telur þú að femínismi sé mikilvæg jafnréttishreyfing eða sé of öfgafullur til þess að geta komið jafnréttisbaráttu til hjálpar?

Femín­ismi er nátt­úru­lega bara safn­heiti. Femín­ism­inn hefur unnið gríð­ar­lega mik­il­vægt starf í því að búa til betra sam­fé­lag fyrir okkur. Þannig ég er femínisti alveg eins og ég er margt annað.

7. Telur þú að múslimar séu vandamál í Evrópu, og finnst þér mikilvægt að hefta för flóttamanna um álfuna og jafnvel að koma í veg fyrir að þeir setjist að á Íslandi?

Nei. Ég tel ekki að Íslam sé vanda­mál í Evrópu. En aftur á móti lifum við á mik­il­vægum tímum til þess að skapa umburð­ar­lyndi í öllum hópum, og virð­ingu. Við eigum ekki að reisa veggi og hindr­anir, miklu frekar að stunda brú­ar­smíði milli menn­ing­ar­heima.

8. Ert þú fylgjandi aðskilnaði ríkis og kirkju?

Ég er fylgj­andi því að þjóðin fái að kveða upp um það. Það er svo margt í sam­skiptum ríkis og kirkju sem bitnar á kirkj­unni. Þannig ég ótt­ast ekk­ert um kirkj­una, og allra síst um boð­skap hennar þó það verði aðskiln­aður. Ég hef meiri trúa á honum en svo að hann lifi það ekki af.

9. Hvað finnst þér best og verst í fari Ólafs Ragnars?

Það sem ég held að hafi verið best er hann stóð með þjóð­inni þegar kom að Icesave mál­inu, og hvernig  hann fylgdi því eftir. Það er sá þáttur í hans for­seta­tíð sem stendur upp úr. Hann mót­aði sitt emb­ætti út frá sínum póli­tíska reynslu­heim. Ég hef hinsvgar saknað þess að for­seta­emb­ættið hafi ekki talað meira upp­hátt um grunn­gildin í sam­fé­lag­inu okkar. Mér finnst að emb­ættið ætti að starnda sterk­ari vörð um það.

10. Hver er uppáhalds íslenski forsetinn þinn?

Ég held að þjóðin hafi verið heppin með hvern þann for­seta sem hún hefur komis sér á hverjum tíma, það er ekki spurn­ing. Þau hafa öll mótað emb­ættið mjög út frá sinni per­sónu, bak­grunn og reynslu. Ég akkúrat núna, í þeim sam­tíma sem við lifum núna þá held ég að margir horfi til Vigdísar og Krist­jáns. Það er ein­hver sýn hjá þjóð­inni að þau hafi verið for­setar fólks­ins. Laus við póli­tískar teng­ingar og bak­grunn. Þannig ég ætla að nefna þau tvö, án þess að ógilda hina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár