Frjáls í sjónum Heiðar Logi finnur fyrir frelsi sem hann fann ekki fyrir áður þegar hann sör­far á öldum hafs­ins. Mynd: Ellithor.com

„Ég verð skíthræddur þegar ég mæti háhyrningum og útselum“

Heiðar Logi Elíasson er 23 ára gam­all og jafn­framt fyrsti og eini atvinnu­maður okkar Íslend­inga þegar kemur að brim­brettum. Hann fann sig hvorki í knatt­spyrnu né körfu­bolta en fann fyrir frelsi þegar það kom að jaðar­í­þróttum. Heiðar Logi fékk fyrsta hjóla­brettið sex ára og núna, 17 árum seinna, er hann atvinnu­maður á brim­brettum og ferð­ast út um allan heim.

„Ég hef alltaf átt erfitt með að mæta á ein­hvern ákveð­inn stað á ákveðnum tíma og þess vegna fann ég mig aldrei í knatt­spyrnu eða körfu­bolta þó svo að mamma hafi reynt að fá mig til þess að mæta á æfingar á sínum tíma. Ég fann ein­hvern veg­inn ekki fyrir neinu frelsi fyrr en ég kynnt­ist hjóla­brett­inu en það fékk ég aðeins sex ára gam­all að gjöf frá móður minni,“ segir Heiðar Logi Elíasson, 23 ára gam­all Hafn­firð­ingur.

Heiðar Logi
Heiðar Logi Átti fyrst blaut­galla sem lak en nú fær hann þá frítt í gegnum styrkt­ar­að­ila enda atvinnu­maður í fag­inu.

Fann ekki fyrir frelsi í hefðbundnum íþróttum

Heiðar Logi fædd­ist á sjúkra­hús­inu í Keflavík en flutti fljótt til Sand­gerðis og ólst þar upp til fjög­urra ára ald­urs. Sjálfur seg­ist hann hafa flutt tölu­vert á þessum tíma þar til hann og fjöl­skylda hans flutt­ust búferlum til Dan­merkur en þar sótti móðir hans og stjúp­faðir nám. Þar bjó Heiðar Logi í fimm ár eða til tólf ára ald­urs.

„Mamma hafði lofað að gefa mér góða útskrift­ar­gjöf ef ég myndi standa mig í sam­ræmdu próf­unum.“

„Þá fluttum við fjöl­skyldan í Hafn­ar­fjörð og þar á ég mínar rætur. Í skól­anum á Íslandi átti ég erfitt upp­dráttar og þá aðal­lega út af því að ég kunni dönsk­una tölu­vert betur en íslensk­una. Ég fékk snjó­bretti frá móður minni í jóla­gjöf og þar fann ég ein­hvern veg­inn þetta frelsi sem ég hafði aldrei fundið fyrir í þessum hefð­bundnu íþróttum eins og knatt­spyrnu og körfu­bolta. Ég varði öllum stundum úti í snjónum og í hvert skipti sem fjallið var opið þá var ég mættur og meira að segja þegar skíða­svæðin voru lokuð þá mætti ég samt og renndi mér. Áhugi minn á snjó­brettum opn­aði bæði augun mín og for­eldra minna fyrir því að þarna átti ég heima. Ég eyddi heilum degi í fjall­inu og þá var é gfrið­sæll. Þar fann ég minn stað og mína útrás. Ég kom heim og fór sáttur að sofa á kvöldin,“ segir Heiðar Logi sem kynnt­ist ekki brim­brettum fyrr en um sextán ára aldur. Það var vinur Heiðars Loga sem kynnti hann fyrst fyrir brim­brettum en sá hafði rennt sér með honum á snjó­bretti um tíma og átti auka brim­bretti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár