„Nú er tækifærið til að siðvæða og endurbyggja Ísland“

Stefán Jón Hafstein mæld­ist með 18,5 pró­senta fylgi til for­seta Íslands í skoð­ana­könnun Stund­ar­innar og MMR. Hann segir Ísland þurfa ákveð­inn og sterkan for­seta sem tali máli almanna­hags­muna og sé fastur fyrir and­spænis freka karl­inum. Sjálfur hefur hann ekki enn gert upp hug sinn varð­andi fram­boð. Stefán Jón ræðir hér um blaða­mennsku­draum­inn, þær áskor­anir sem hann telur Ísland standa frammi fyrir og tíma­punkt­inn þegar hann fékk nóg af bak­tjalda­makk­inu í póli­tík­inni og flutti til Afríku.

„Nú er tækifærið til að siðvæða og endurbyggja Ísland“

Gamall hvítur köttur liggur í mak­indum á þrep­inu við úti­dyrnar og virð­ist bylt við þegar hann sér blaða­mann nálg­ast heim­ili Stefáns Jóns í Graf­ar­vog­inum. Þetta er pers­neski öld­ung­ur­innn Goði. Þegar dyrnar opn­ast tekur önnur og stærri skepna á móti mér, tíkin Freyja sem er af afrísku ljóna­hunda­kyni. Hér búa aug­ljós­lega dýra­vinir. 

Guðrún Kristín Sig­urð­ar­dóttir, hönn­uður og eig­in­kona Stefáns, býður upp á kaffi og súkkulað­i­dropa inni í sól­stofu þar sem við setj­umst niður og njótum veð­urs­ins, sem í dag gefur hugs­an­lega von um vor og bjart­ari tíma. „Ég er enn að jafna mig eftir ferða­lagið. Það tekur alltaf nokkra daga að ná áttum,“ byrjar Stefán Jón, en hann er nýkom­inn heim frá Úganda þar sem hann starfar sem for­stöðu­maður sendi­ráðs Íslands sem ein­beitir sér að þró­un­ar­sam­vinnu. Heimilið ber þess merki. Á veggnum fyrir ofan okkur er til að mynda stór mynd af tign­ar­legri antílópu sem hlýtur að vera tekin á sléttum Afríku. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár