Mynd: Skjáskot/At Home in the World

Líf á flótta með augum barna

Danski leik­stjór­inn Andreas Koefoed fékk ein­staka inn­sýn í hug­ar­heim barna á flótta. Hann segir öll börn vilja það sama - að leika sér og fá að vera börn. Lög­fræð­ingur Rauða kross­ins á Íslandi segir börn hæl­is­leit­enda hér á landi oft þurfa að bíða í nokkra mán­uði eftir skóla­vist.

Í litlu þorpi í Danmörku er að finna fjöl­mennan grunn­skóla, rek­inn af Rauða kross­inum, fyrir börn á flótta. Þar koma saman börn úr öllum heims­hlutum, úr ólíkum menn­ing­ar­heimum, en eiga það öll sam­eig­in­legt að bíða í óvissu eftir svari um hvort þau séu nú loks­ins komin í öruggt skjól. Á einu ári er átta­tíu pró­senta velta á börnum í hverjum skóla­bekk. Fáum er veitt hæli í Danmörku og fá fæstir því nokkurn tím­ann tæki­færi til verða hluti af sam­fé­lag­inu. Flóttinn heldur áfram. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár