Mynd: Heiða Helgadóttir

Nýtir ofbeldisreynsluna í listinni

Guðrún Bjarna­dóttir leik­kona sagði frá minn­ingum sínum um ofbeld­is­sam­band í ein­lægri grein fyrir um einu og hálfu ári síðan. Hún tók með­vit­aða ákvörðun um að veita engin við­töl í kjöl­far birt­ing­ar­innar en von­aði að greinin myndi vekja sam­fé­lagið til umhugs­unar um ofbeldi í nánum sam­böndum. Næsta skref sé að tala um ofbeld­is­menn­ina sjálfa og segir Guðrún mik­il­vægt að sam­fé­lagið for­dæmi þá ekki, heldur rétti þeim hjálp­ar­hönd. Nú notar hún list­ina til að opna umræð­una enn frekar um eitt faldasta sam­fé­lags­mein okkar tíma – ofbeldi innan veggja heim­il­is­ins.

Haustið 2014 skrif­aði kunn­ingja­kona Guðrúnar grein þar sem hún sagði frá reynslu sinni af heim­il­is­of­beldi. Í kjöl­farið hvatti hún Guðrúnu til að gera hið sama og hún tók áskor­un­inni. „Mér fannst þetta vera rétti tím­inn,“ segir hún. „Það var ein­hver vakn­ing í gangi í sam­fé­lag­inu og ég vildi vera hluti af henni.“ 

Greinin vakti gríð­ar­lega athygli og í kjöl­farið stigu fleiri fram og sögðu frá sinni ofbeld­is­reynslu. Saman vöktu þessar greinar sam­fé­lagið til umhugs­unar um heim­il­is­of­beldi og má segja að þær hafi stuðlað að kröft­ugri sam­fé­lags­legri vit­und­ar­vakn­ingu. „Hún var skrifuð í þeirri von um að hún yrði von­andi, þó ekki nema einum ein­stak­ling, til hjálpar. Ef ekki þá vekti hún fólk alla­vega til umhugs­unar um mál­efnið,“ segir Guðrún, en hún vinnur nú, ásamt fleirum, að upp­setn­ingu leik­verks­ins SUSS!!! sem byggir einmitt á reynslu­sögum fólks af heim­il­is­of­beldi. 

Við hittum Guðrúnu Bjarna­dóttur á kaffi­húsi í mið­borg­inni og ræddum við hana um lífið, list­ina og lífs­reynsl­una sem hún lifði af.

Fimmta hver kona upplifað heimilisofbeldi

Í grein­inni „Minn­ingar um ofbeld­is­sam­band“ sem birt­ist á vef Kvenna­blaðs­ins í októ­ber 2014 seg­ist Guðrún hafa sagt skilið við sitt fyrra líf – líf sem ein­kennd­ist af ótta við að vera heið­ar­leg við sjálfa sig 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár