Mynd: Stundin / Kristinn Magnússon

Missti heilsuna eftir skilnað

Guð­mundur Gunn­ars­son verka­lýðs­for­ingi er harður nátt­úru­vernd­ar­sinni. Hann sat stjórn­laga­þing og segir að skemmd­ar­verk hafi verið unnið gagn­vart því. Fertugur gekk hann í gegnum sáran skilnað og hafn­aði á gjör­gæslu. Áður hafði hann reynt að yfir­gefa Sjálf­stæð­is­flokk­inn í tvö ár en fékk ekki. Seinna sat hann neyð­ar­fund með stjórn­völdum sem vildu fá eignir líf­eyr­is­sjóð­anna heim.

„Það er mik­ill hluti þjóð­ar­innar á sama máli og við, þessi hópur sem berst fyrir verndun hálend­is­ins. Skoð­ana­könnun leiddi í ljós að um 70 pró­sent aðspurðra  vilja að hálendið verði þjóð­garður. Þetta þolir ekki sá sami valda­kjarni og vildi stjórn­laga­þing feigt. Og þeir gera allt til þess að tryggja hags­muni sína. Þetta er fólkið sem hefur falið eignir sínar utan Íslands og eru með allt sitt á þurru. Þetta er svo sjúkt,“ segir Guð­mundur Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi verka­lýðs­leið­togi og full­trúi á Stjórn­laga­þingi. Hann er mik­ill nátt­úru­unn­andi og úti­vist­ar­maður. Hann hefur staðið í fremstu víg­línu þeirra sem vilja friða hálendi Íslands og sporna gegn því að virkjað verði á við­kvæmum svæðum. Björk, dóttir hans, hefur staðið þétt við hlið föður síns í þessum málum. Guð­mundur rekur áhuga sinn á nátt­úr­unni og vernd hennar aftur til æsku­ár­anna.

Barn á Arnarvatnsheiði

„Ég var í sveit sem barn og þar til ég var 16 ára á Auð­unn­ar­stað í Víðidal í Húna­vatns­sýslu. Þetta var á þeim árum sem bændur gátu selt alla sína fram­leiðslu. Þarna var tví­býli systk­ina. Þau voru með alls um 1.000 fjár og mikið um að vera,“ segir Guð­mundur Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands­ins.

,,Þarna lærði ég að meta íslenska nátt­úru. Björn Lárusson bóndi var mik­ill veiði­maður og fór gjarnan á Arn­ar­vatns­heiði til að veiða í vötn­unum. Ég fór gjarnan með honum til að draga fyrir í vötn­unum. Við lifðum nán­ast á sil­ungi. Þarna lærði ég að lesa í nátt­úr­una. Björn var óþreyt­andi að fræða mig. Arn­ar­vatns­heiðin hefur síðan átt sinn stað í hjarta mér og þangað fer ég reglu­lega. Sumarið í sveit­inni var fljótt að líða við leik og störf. Það má segja að maður hafi verið á hest­baki lengst af sumr­inu. Lífið snérist um að elt­ast við stóð. Á þessum tíma var öll hey­vinna með hestum. Þarna opn­að­ist nýr heimur fyrir mig, borg­ar­barnið,“ segir Guð­mundur sem ólst upp við Nökkvavog í Reykja­vík. For­eldrar hans voru Hall­fríður Guð­munds­dóttir list­mál­ari og Gunnar Guð­munds­son raf­verk­taki og versl­un­ar­maður. Guð­mundur fet­aði í spor föður síns og gerð­ist raf­virki. Það var reyndar ekki ætl­unin í fyrstu en málin æxl­uð­ust þannig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármálahrunið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár