Vill skilja lista­gyðj­una Davíð Rafn Krist­jáns­son málar nú myndir og hengir þær jafn­óðum upp á veggi heim­ilis síns í þeim til­gangi að skilja lista­gyðj­una betur. Mynd: Jón Bjarki

„Ég ákvað bara einn daginn að verða rithöfundur“

Líf hans hefur ekki alltaf verið leik­andi. Hann starf­aði í íslenska fjár­mála­geir­anum á árunum fyrir hrun, var skuldum vaf­inn og leið eins og hann væri fangi eigin lífs. Davíð Rafn Krist­jáns­son var að gefa út sína fyrstu skáld­sögu, Burning Karma, hjá breska for­lag­inu Wild Pressed Books. Hann hafði ekk­ert skrifað nema þurrar lög­fræði­rit­gerðir þegar hann byrj­aði á sög­unni. Davíð vinnur nú að nýrri skáld­sögu um lista­mann en seg­ist hvorki skilja nútíma­list né listir almennt. Hann málar myndir í þeim til­gangi að skilja umfjöll­un­ar­efnið betur og líkir líf­inu við ein­lægt rann­sókn­ar­verk­efni í þágu lista­gyðj­unnar.

Davíð Rafn Krist­jáns­son er 34 ára gam­all. Hann er fæddur og upp­al­inn á Akureyri en flutt­ist á ung­lings­ár­unum til borgar ótt­ans hvar hann hóf nám, fyrst í Kvenna­skól­anum í Reykja­vík og síðar í Fjöl­brauta­skól­anum við Ármúla. Hann var rót­laus og leit­andi í barn­æsku og átti erfitt með að finna sína hillu í líf­inu þegar leið á full­orð­insár. Davíð nam lög­fræði við Háskól­ann á Akureyri en fannst hann aldrei vera á réttum stað. Þegar honum bauðst svo árið 2006 að fara í skipti­nám til Dan­merkur eða Kína var hann ekki lengi að velja hið síð­ar­nefnda. Segja má að þessi ákvörðun hafi verið upp­hafið að löngu og ströngu ferða­lagi sem skil­aði Davíð á þann stað sem hann er á í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Andleg málefni

Ayahuasca-athafnir æ vinsælli á Íslandi: „Þetta brýtur á þér heilann“
ÚttektAndleg málefni

Ayahuasca-athafnir æ vin­sælli á Íslandi: „Þetta brýtur á þér heil­ann“

Stundin ræddi við fólk sem sótt hefur athafnir á Íslandi þar sem hug­víkk­andi efnis frá Suður-Ameríku er neytt. Tugir manns koma saman undir hand­leiðslu erlends „shaman“ sem leiðir þau í gegnum reynsl­una sem er lík­am­lega og and­lega krefj­andi. Við­mæl­endur lýsa upp­lifun­inni sem dauða og end­ur­fæð­ingu sem gjör­breyti raun­veru­leik­anum, en varað er við því að þau geti verið hættu­leg.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár