Að finna nýjan takt – þrír mánuðir í Mexíkó

Sunna Dís Más­dóttir hóf árið í veik­inda­leyfi, rétt rúmu ári eftir að mað­ur­inn hennar var á barmi útbruna í sínu starfi. Nokkrum vikum eftir að veik­inda­leyfið hófst kvikn­aði lít­ill neisti í brjósti hennar og þegar góð vin­kona hennar stakk upp á því að hún myndi stinga af kom hún heim með nýja glóð og gamlan draum í hjarta. Má það? Hjónin eru nú búin að segja upp í vinn­unni, selja bíl­inn og eru mætt með börnin til Mexíkó.

Að finna nýjan takt – þrír mánuðir í Mexíkó
Fjöl­skylda á ferð í leit að nýjum takti.

Í kvöld­húm­inu hjólar churros-sal­inn niður göt­una okkar. Hann flautar með annarri hendi, öðru hvoru ber hann gjall­ar­hornið að vör­unum með hinni: Churros! Churros! Synir mínir sperra eyrun, líta löng­un­ar­fullum augum niður af litlu svöl­unum okkar hér við Calle de Pinos, Furugötu. Hund­arnir á þaki nágrann­ans lyfta höfði, velta sér á hina hlið­ina. Félagi þeirra á hús­þaki við Sedru­svið­ar­götu svarar hrópum götu­sal­ans með hásu gelti. Skógi vaxið fjallið stendur vörð um borg­ina eins og vana­lega; óhagg­an­legt, ævafornt, vin­gjarn­legt.  

Við erum stödd í Oaxacaborg í sam­nefndu fylki í syðsta hluta Mexíkó, handan fylk­is­ins Chiapas eru landa­mærin að Guatemala. Oaxaca er fimmta stærsta fylki lands­ins, um 93 þús­und fer­kíló­metrar, með ríka sögu og menn­ing­ar­arf­leifð. Rétt utan borg­ar­innar má finna Monte Albán rúst­irnar, þar sem höf­uð­borg Zapotec menn­ing­ar­innar blómstr­aði í um þús­und ár, frá 500 fyrir Krist. Oaxaca er líka vagga mat­ar­menn­ingar í Mexíkó, víð­fræg fyrir ljúf­fengu mole sós­urnar sínar sjö, fyrir gnægt hrá­efnis, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár