Ferðast og vinna í þrjú ár án launa

Samkvæmt alda­gam­alli hefð hafa þýsku smið­irnir Max og Bastian skuld­bundið sig til þess að ferð­ast um Evrópu í þrjú ár og vinna launa­laust fyrir húsa­skjóli og mat. Síðustu daga hafa þeir unnið að við­gerð á skútu niðri við Reykja­vík­ur­höfn og vakið þar tals­verða athygli klæddir útvíðum buxum, í skyrtum með hatt.

Ferðast og vinna í þrjú ár án launa
Smið­ur­inn Bastian Hann seg­ist ferð­ast á þennan hátt um heim­inn til að læra að treysta á sjálfan sig og aðra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Líklega hefðu fáir orðið þýsku vinnu­mann­anna sem unnu við lag­fær­ingar á gam­alli seglskútu niðri við höfn á dög­unum varir, ef ekki væri fyrir sér­stakan klæða­burð­inn. Þeir líta út fyrir að hafa stokkið beint út úr mið­öldum inn í nútím­ann, í útvíðum flauels­buxum, hvítum skyrtum, með slifsi í ólíkum litum, eftir því hvaða iðn­grein þeir til­heyra, að ógleymdum svörtum hatti á höfði. Þeir voru á tíma­bili nokkrir vinnu­menn­irnir en þegar blaða­maður og ljós­mynd­ari Stund­ar­innar litu við á dög­unum voru bara tveir eftir, þeir Max Pahnke og Bastian Klinge, 27 og 23 ára gamlir smiðir frá Hannover í Þýska­landi. Skútan sem þeir voru að dytta að er í eigu sviss­neskrar konu, sem rakst á þá í Reykja­vík og fékk þá til að vinna fyrir sig. Þeir voru því á kafi og máttu ekki vera að því að stoppa lengi til að skrafa, en gáfu sér nokkrar mín­útur til að segja frá þeirri …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár