Barnavernd gefst upp

Barna­vernd Reykja­víkur hefur gefist upp á að koma á umgengni milli Víkings Kristjáns­sonar og sonar hans. Víkingur sætti lögreglu­rannsókn vegna afdrifa­ríkra mistaka starfs­manns Barna­verndar.

Hefur enn ekki hitt son sinn
Hefur enn ekki hitt son sinn Víkingur hefur ekki hitt son sinn frá því í byrjun árs 2017. Mynd: Heiða Helgadóttir

Barna­vernd Reykja­víkur hefur tilkynnt Víkingi Kristjáns­syni að stofnunin muni ekki aðhafast frekar við að reyna að koma á umgengni milli Víkings og sonar hans. Gefist hafi verið upp á að koma á samstarfi við barns­móður Víkings sem miði að því. Víkingur hefur ekki hitt son sinn í rúmlega tvö og hálft ár, allt frá því að barns­móðir hans tilkynnti að hana grunaði að Víkingur hefði brotið kynferðis­lega gegn syni þeirra. Héraðs­saksóknari felldi mál á hendur Víkingi niður og hið sama gerði ríkis­saksóknari. Barna­vernd Reykja­víkur staðfesti að verulegir ágallar hefðu verið á meðferð málsins og bað Víking afsökunar á vinnu­brögðunum.

Víkingur lýsti í viðtali við Stundina í júlí síðastliðnum hvernig málið allt horfði við honum. Í janúar árið 2017 fékk Víkingur bréf frá barns­móður sinni þar sem hún ásakaði sambýlis­konu Víkings um gróft ofbeldi á hendur syni þeirra. Strax þá neitaði barns­móðir Víkings því að drengurinn færi í umgengni …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár