„Skugginn tengir okkur saman“

Nick Cave ræðir hvernig konan hans bjarg­aði honum frá heróín­fíkn með því að fara frá honum en koma svo aftur átta mán­uðum síðar, með þeim orðum að hún gæti ekki verið án hans. Hann segir frá hel­víti sorg­ar­innar og órök­réttum ótta í kjöl­far son­ar­missis. Sköp­un­ar­kraft­ur­inn er honum hug­leik­inn og hann útskýrir af hverju hann býður upp á órit­skoðað sam­tal við áhorf­endur í sal, til að leita kjarn­ans.

„Skugginn tengir okkur saman“

Þessi gjörn­ingur, sam­tal og tón­leikar er hluti af ein­hvers konar úrvinnslu fyrir mig. Ég veit ekki enn hvað á eftir að koma út úr þessu ferða­lagi. Innsæið ræður för. Það setti þetta af stað og það vill opið og heið­ar­legt sam­tal við áhorf­endur. Ég fylgi inn­sæ­inu og langar að kom­ast inn að kjarn­anum, þetta á að vera hreint og tært. Hér er ekk­ert örygg­is­net fyrir mig og ég er ekki við stjórn­völ­inn þótt ég standi á svið­inu. Það gerir mig varn­ar­lausan. Hér ríkir stjórn­leysi í bland við inni­leika milli mín og áhorf­enda, allt getur gerst. Ég vona að þetta dýpki sam­bandið milli mín og ykkar. 

Þetta er verk í vinnslu.

Svona var Conversations with Nick Cave, An even­ing of talk and music; sam­tals- og tón­leika­ferð Nick Cave kynnt á korti sem hafði verið lagt á stól­arma gesta í Eldborg í Hörpu laug­ar­dags­kvöldið 31. ágúst 2019. 

Samtalið í Reykja­vík var að hefj­ast. 

Nick Cave hafði þá þegar stigið á svið, svarað spurn­ingum og spilað fyrir fólk á um 30 stöðum víðs vegar um heim.

Ekki deyja, segir húsflugan

Ljósin eru slökkt í Eld­borg­ar­salnum í Hörpu og líka á svið­inu, fyrir utan litla ljóstíru við píanóið, á meðan gestir Nick Cave eru að koma sér fyrir í sætum sínum. Áður en Nick Cave stígur á svið er spiluð upp­taka þar sem hann les sjálfur texta sem hann samdi og birt­ist fyrst í heim­ild­ar­mynd­inni One More Time with Feeling en hún er að mestu tekin upp í hljóð­ver­inu þegar Nick Cave og The Bad Seeds voru við upp­tökur á plöt­unni Skeleton Tree árið 2016. 

„Þetta eru ekki ljóð, ég er ekki ljóð­skáld,“ sagði Nick Cave síðar um kvöldið. 

Orð eru bara orð. Þau þarf ekki að flokka, hugsa ég, en fal­legt er það, ljóð eða ekki ljóð. 

But mostly I curl up inside my 
typewriter with my housefly and cry
I tell my housefly not to cry
My housefly tells me not to die 
Because some­one's gotta sing the stars 
And some­one's gotta sing the rain 
And somone's gotta sing the pain

Þegar nokkuð er liðið á kvöldið með Nick Cave í Hörpu segir hann frá því að fáeinum mán­uðum eftir að Arthur sonur hans dó í slysi aðeins 15 ára gam­all hafi hann farið í hljóð­verið til að ljúka við plöt­una Skeleton Tree. „Það er ekki besta hug­mynd sem ég hef fengið, ég var alls ekki í ástandi til að vinna en þetta var til­raun til að snúa aftur til mann­heima.“ Textinn um bestu vin­konu hans, hús­flug­una sem biður hann um að lifa, fær nýja merk­ingu. Gestir í Eldborg skilja hvað flugan átti við.

„My housefly tells me not to die“

Og Nick Cave kemur inn á sviðið á slag­inu átta og sest við píanóið. Fyrsta lag kvölds­ins er The Ship Song:

Come sail your ships around me
And burn your bridges down
We make a little history, baby
Every time you come around

Come loose your dogs upon me
And let your hair hang down
You are a little mystery to me
Every time you come around

We talk about it all night long
We define our moral ground
But when I crawl into your arms
Everyt­hing comes tumbling down

Hann býður ekki upp á spurn­ingar úr sal strax eftir The Ship Song, því fyrst spilar hann og syngur The Weeping Song. Tvö lög í röð. Bæði af plöt­unni The Good Son sem á þrjá­tíu ára afmæli á næsta ári, kom út árið 1990.

Father, why are all the women weeping?
They are weeping for their men
Then why are all the men there weeping?
They are weeping back at them

Ljósin eru kveikt í Eldborg og Nick Cave gengur að hljóð­nema sem er fremst á miðju sviði, lítur yfir sal­inn, upp á svalir og upp í loft og segir:

„Þetta er rosa­lega rautt.“

Já, Eldborg er rauð. 

„Síðast þegar ég spil­aði á Íslandi datt ég af svið­inu,“ segir Nick Cave og áhorf­endur hlæja og klappa. „Já, finnst ykkur það fyndið? Ég braut fjögur bein í bak­inu,“  segir hann og brosir.

Fall Nick Cave af svið­inu í flug­véla­skýl­inu í gömlu her­stöð­inni í Keflavík er okkur sem vorum á ATP tón­list­ar­há­tíð­inni árið 2013 minn­is­stætt.  Nick var í miklum ham að syngja Jubilee Street, sneri baki í áhorf­endur, tók eitt skref aftur á bak og datt fram af svið­inu. Fyrir okkur sem stóðum aft­ar­lega var eins og jörðin hefði gleypt hann. Það sló þögn á alla í salnum en ekki leið langur tími þar til hann kom aftur á sviðið, sagði að sér væri illt í rass­inum og hélt svo áfram að syngja. 

Sjálfsfróun og hamfarahlýnun

Nick Cave er eins og áður kemur fram búinn að standa á mörgum sviðum und­an­farna mán­uði. Í mörgum löndum og eiga sam­tal við fjöl­margt fólk.  Þetta er óvenju­legt ferða­lag tón­list­ar­manns og hann segir sjálfur að það hafi tekið veru­lega á taug­arnar því hann viti aldrei hverju hann eigi von á.  Hann hrósar gestum sínum fyrir að þora að standa upp og spyrja hann spurn­inga fyrir framan fullan sal af fólki og biður aðra áhorf­endur að gagn­rýna ekki þau sem spyrji, það sé mik­il­vægt að sýna aðgát því að allar spurn­ingar séu leyfi­legar. 

„Ég er búin að tala við þig í 20 ár en þetta er í fyrsta skipti sem þú svarar mér,“ segir kona í salnum og spyr Nick svo hvernig honum líði eftir tón­leika. 

„Ég er úrvinda en ótrú­lega mann­legur ein­hvern veg­inn.  Ég er dapur á und­ar­legan hátt, eins og barn þegar upp­á­halds­leik­fangið er tekið frá því. Það er mögnuð til­finn­ing að standa á sviði og spila, orkan sem mynd­ast milli mín og áhorf­enda er heilandi og stundum finnst mér eins og hún sé vart af þessum heimi. Hún er yfir­þyrm­andi góð. Svo þegar ég klára og er kom­inn bak­sviðs upp­lifi ég ein­hvers konar nið­ur­túr.“

Ég ætla að spyrja tveggja spurn­inga, segir kona í salnum.  Önnur er mjög sið­sam­leg, hin er það ekki: 

1. Hvað hugs­arðu þegar þú fróar þér?

2. Getur listin eða lista­menn bjargað jörð­inni? 

Konan seg­ist dag­lega hitta ungt fólk sem er raun­veru­lega að bregð­ast við til að koma í veg fyrir yfir­vof­andi ham­fara­hlýnun. Unga fólkið er rétt stillt. 

„Ég hugsa um kon­una mína þegar ég fróa mér en ég get ekki bjargað jörð­inni,“ svar­aði Nick.  Ég dáist að unga fólk­inu, ég dáist að Gretu Thunberg og því sem hún hefur hrint af stað. Svona stór, öflug og sam­stiga fjölda­hreyf­ing sem krefst grund­vall­ar­breyt­inga á sam­fé­lag­inu hefur ekki komið fram síðan á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar. Ég verð von­góður þegar ég fylgist með henni. Ég get ekki bjargað jörð­inni en ég get bjargað sál jarð­ar­innar, kannski lýkur þessu þannig að ég spila meðan skipið sekkur eins og hljóð­færa­leik­ar­arnir á Titanic.“ 

Eftir að hafa svarað spurn­ingum um sjálfs­fróun og jörð á von­ar­völ sest hann aftur við píanóið og spilar Mermaids af plöt­unni Push the Sky Away sem kom út í byrjun árs 2013. 

I belive in God.
I belive in mermaids too. 

Ég trúi á Guð. Ég trúi líka á haf­meyjar, syngur Nick Cave. Guð er honum hug­leik­inn. Hann hefur samið fjölda texta þar sem Guð er í stóru hlut­verki.

„Guð er mik­il­vægur í mínu lífi þó að það komi mér ekki við hvort hann sé til en ég trúi á ein­hvers konar æðri mátt. Það er sterkt sam­band milli sorg­ar­innar og Guðs. Milli sárs­auka og Guðs. Hvað sem hann er.“ 

Ég trúi ekki á guð. 

Ég trúi ekki á Elvis og ekki á Bítlana. 

Ég trúi bara á mig og Yoko söng John Lennon á sínum tíma.  

Og Nick Cave trúir á Susie, á sig og Susie.  

Um hana samdi hann meðal ann­ars lagið Palaces of Montezuma og spilar það í Hörpu.  

The Epic of Gil­ga­mesh
A pretty little black A-line dress
I give to you
The spinal cord of JFK
Wrapped in Marilyn Monroe´s negligee
I give to you
I want not­hing in return
Just the softest little bre­at­hless word
I ask of you

Hið sæta og sturlaða augnablik

Nick stendur við hljóð­nem­ann, horfir út í sal­inn og velur næsta gest sem hefur beðið um að fá að spyrja hann. Sá vill vita hvernig sköp­un­ar­ferlið gangi fyrir sig, svona dags dag­lega. 

„Þetta er erfið vinna. Ég er skipu­lagður. Ég vakna snemma, fer í jakka­fötin, fæ mér kaffi og kyssi kon­una mína bless. Svo fer ég á skrif­stof­una, sest við skrif­borðið og ekk­ert kemur, ekki orð, ekki stafur, ekki ein agn­arsmá hug­mynd. Þannig líða oft margir dagar. En núna veit ég að þetta tíma­bil þegar ekk­ert kemur frá mér er mik­il­væg­asta tíma­bilið í sköp­un­ar­ferl­inu. Því gerj­unin er í fullum gangi án þess ég geri mér grein fyrir því. Þetta er und­ir­bún­ings­skeiðið og það er mik­il­væg­asta tíma­bilið í sköp­un­inni.  Svo, án nokk­urs fyr­ir­vara, kemur þetta sæta og sturl­aða augna­blik þegar allar gáttir opn­ast, tíma­skynið hverfur og orðin flæða.“

Þannig lýkur þurrka­tíma­bil­inu hjá Nick Cave og hann nær varla að skrifa nógu hratt til að koma öllum hug­mynd­unum út, þannig að þær týn­ist ekki. 

„Orðin eru upp­hafið og endir­inn í minni list. Þegar ég tala um vinn­una mína er ég að tala um að raða saman orðum. Allt annað kemur út úr þeim; lögin og sviðs­fram­koman. Ég er texta­höf­undur, ekki ljóð­skáld.  Síðustu ár hefur flæðið breyst, það er óhindrað núna. Ég hugsa ekki lengur um að það verði að vera saga fyrir hlust­endur, að hún þurfi að hafa upp­haf og endi. Nei, núna er þetta sam­starf milli mín og hlust­end­anna.  Skugginn í líf­inu, stóru áföllin hafa breytt mér. Ég átt­aði mig á að ég þurfti á fólki að halda, skugg­inn tengir okkur saman.“ Nick seg­ist hafa sagt skilið við þröngan strúktur lag­anna og þá hafi bauna­grasið sprottið upp á örskots­stundu. „Núna sem ég margar smá­myndir, ólíkar inn­byrðis, jafn­vel alveg ótengdar en undir niðri er að mestu óslit­inn þráður.“

Nick Cave er líka rit­höf­undur en hans fyrsta bók, And the Ass Saw the Angel, kom út árið 1989. Í Eldborg er karl sem hefur reynt að lesa þessa fyrstu bók Cave. Það hefur ekki gengið vel, segir hann við Cave, þetta er erfið bók, bætir hann við. „Lestu hana bara. Erfið? Ég las Sjálf­stætt fólk eftir Laxness. Lestu hana bara.“

Dauðinn er aðdráttaraflið

Áhorf­andi spyr Nick Cave um Jubilee Street. Hvaða gata það sé og hvers vegna hún sé honum hug­leikin?

On Jubilee street there was a girl named Bee
She had a history, but she had no past

Það er gata sem heitir Jubilee í Brighton þar sem ég bý. Þar hélt ég að vænd­is­konur héldu til.

Well a girl‘s gotta make ends meet
Even down of Jubilee street

„Ég komst að því nýverið að svo er ekki. Vænd­is­kon­urnar eru á Mont­pellier-götu.  Bóka­safnið er hins vegar á Jubilee. Eftir að lagið sem heitir Jubilee Street kom út hefur fjöldi ferða­fólks lagt leið sína þangað til að reyna að koma auga á und­ir­heim­ana en það endar lík­lega allt á bóka­safn­inu.“

Og Nick Cave sest við píanóið og spilar Jubilee Street sem er á plöt­unni Push the Sky Away.  

I got love in my tummy 
And a tiny little pain 

En ef það verða engin enda­lok?“ spyr karl í salnum. „Ef við erum ódauð­leg, hvað verður þá um list­ina?“

Nick segir að það myndi breyta öllu, líka ef honum yrði sagt að 20 auka­árum yrði bætt við líf hans.  Dauðinn er aðdrátt­ar­aflið, vegna hans skrifa ég og skrái niður atburði. „Sú stað­reynd teng­ist dauða sonar míns. Þegar það gerð­ist var ég á skelfi­legan hátt minntur á hve skyndi­lega líf getur endað. Ég get ekki ímyndað mér líf án dauða.“ 

Well, the night is dark
And the night is deep
And its jaws are open wide
But Papa won't leave you, Henry
So there ain't no need to cry

Eftir að Nick Cave var búinn að flytja lagið Papa Won't Leave You, Henry, sem kom út á plöt­unni Henry's Dream árið 1992, er hann spurður út í fíkn­ina en Nick Cave var mjög veikur fíkni­sjúk­lingur í 20 ár. Sá sem spyr vill vita hvort saga sem hann las fyrir nokkrum árum um árin í Berlín sé sönn. Í henni var full­yrt að þáver­andi kærasta Cave hafi beðið hann að hætta að fara í kirkju. Þangað hafi hann farið á morgn­ana til að drepa tím­ann af því að hann hafi alltaf vaknað fyrir allar aldir á undan flestum, líka öllum dílerum borg­ar­innar. Þessi gestur sem sat á fremsta bekk langar líka að vita hvort Nick Cave sé enn frískur og ef svo, hvert hann sæki kraft­inn til að vera edrú.

„Ég var heróín­fík­ill í 20 ár, fyrstu 10 árin voru þol­an­leg en næstu 10 hryll­ingur. Röð alvar­legra atvika sem komu upp vegna fíkn­ar­innar gerðu það að verkum að ég átt­aði mig á að ég yrði að reyna að hætta, ann­ars myndi ég ekki lifa mikið lengur. En það tók mig önnur tíu ár að ná bata. Ég var stál­sleg­inn í nokkrar vikur, svo veikt­ist ég aftur og svo frískur og svo veikt­ist ég og þannig gekk það í ára­tug. Svo hitti ég Susie. Við urðum ást­fangin. Hún bjarg­aði mér.“

I don't belive in the existence of ang­els
But looking at you I wonder if that's true

Susie hafði farið í með­ferð fjórum mán­uðum áður en þau hitt­ust og Nick Cave sagði frá því í Hörpu að fólk hefði varað hana við að falla fyrir þessum Nick Cave. „Ég hélt líka áfram í neyslu og það end­aði með því að hún hvarf. Hún fór frá mér en kom aftur átta mán­uðum síðar og sagð­ist ekki geta verið án mín. „Þú gerir bara þitt og ég reyni að sætta mig við það. Ég vil bara vera með þér,“ sagði Susie.“ Tveimur mán­uðum síðar var Nick Cave komin í algera upp­gjöf, hann fór í með­ferð og hefur verið alls­gáður síðan.  Þetta var fyrir 20 árum. „Og þetta er ekk­ert mál. Það er ekki erfitt að vera án fíkni­efna og það er mis­skiln­ingur að víman ýti undir sköp­un­ar­kraft­inn. Það er bara rangt. Ég er búinn að vera edrú í 20 ár og það eru mín bestu ár í sköp­un­inni.“

Sá sem spurði Cave um fíkn­ina, kirkj­una og edrú­mennsk­una bætir því við í lokin að hann og unnusta hans ætli að gifta sig á næsta ári og þar verði bara eitt lag spilað: 

In to my arms. 

I don't belive in an interventionist God
But I know, dar­l­ing that you do 
But if I did I would kneel down and ask Him 
Not to inter­vene when it came to you
Not to touch a hair on your head 
To leave you as you are 
And if He felt He had to direct you 
Then direct you into my arms

„Sorgin fletur allt út. Hún er ein­hvers konar hel­víti.“

Sorgin er einhvers konar helvíti

Nokkrir gestir spyrja Nick Cave um sorg­ina en Arthur, sonur Nicks og Susie, lést í júlí 2015 eftir að hafa fallið fram af klettum í Brighton. „Sorgin fletur allt út. Hún er ein­hvers konar hel­víti. Sér­stak­lega fyrir móður sem missir barnið sitt. Það er ein­hver skömm sem því fylgir, sam­visku­bit sem er alger­lega óraun­hæft eins og upp­lifunin sé sú að það dýr­mætasta sem hún á í þessu lífi hafi dáið á hennar vakt. En þó að slysið sem sonur minn varð fyrir sé óvenju­legt, mjög skyndi­legt og hræði­legt í alla staði er dauð­inn hvers­dag­legur. Sorgin er sammann­leg, við lendum öll í henni en tölum lítið um hana.“ Hann segir að and­lát sonar þeirra hafi breytt sér, núna sé hann oft hræddur. Áður hafi hann verið ótta­laus. Núna ótt­ist hann um líf sinna nán­ustu. „Þetta er ekki rök­réttur ótti, ég geri mér grein fyrir því. Vondir hlutir ger­ast, en sjaldan. Ég og Susie pössum upp á hvort annað.“ 

It began when they came took me from my home
And put me in Dead Row 
Of which I am nearly wholly innocent, you know
And I'll say it again
I ... am ... not ... afraid ... to ... die

Eftir að hafa sagt frá sorg­inni sem hvílir yfir fjöl­skyld­unni sett­ist Nick Cave við píanóið og spil­aði tvö lög. Fyrst Mercy Seat og svo Avalance eftir Leonard Cohen. 

You who wish to conquer pain
You must learn what makes me kind;
The crumbs of love that you offer me 
Are the crumbs I've left behind
Your pain is no credential here 
It's just a shadow of my wound

„Ég heyrði fyrst lag eftir og með Leonard Coen þegar ég var 14 ára og skildi þá fyrst hlut­verk mitt í heim­inum. Ég átti afar ham­ingju­ríka æsku. Ég var frjáls og allir voru mér góðir. En ég var óró­legur og skildi ekki hvers vegna. Fannst ég ekki vera á réttum stað. Þangað til ég heyrði Avalance með Cohen. Platan Songs of Love and Hate sem lagið er á hafði gríð­ar­leg áhrif á mig þá og hefur enn. Já, hún er dimm þessi plata en ég skynj­aði svo mikið hug­rekki í text­unum. Cohen hafði ekki bara jákvæð áhrif á list­sköpun mína heldur allt líf mitt.“ 

Aftur berst talið að Guði. Er Guð í hús­inu? 

We've laid the cables and the wires
We've split the wood and stoked the fires
We've lit our town so there is no 
Place for crime to hide 

Our little church is painted white 
And in the safety of the night 
We all go quiet as a mouse 
For the word is out 
God is in the house 
God is in the house 
God is in the house 
No cause for worry now 
God is in the house 

Dr. Simone og tyggjóklessan hans Ellis

Sagan berst að tyggjó­klessu. Í 20.000 Days on Earth, sem er heim­ild­ar­mynd um Nick Cave, er sena þar sem hann og Warren Ellis tón­list­ar­maður, sam­starfs­fé­lagi og kær vinur Nicks Cave, sitja við eld­hús­borðið heima hjá Warren og rifja upp tón­leika sem þeir sáu með Ninu Simone.  Eitt allra flottasta gigg sem ég hef séð,“ sagði Warren og Nick spyr hann hvort hann muni eftir því þegar Nina Simone sett­ist á píanó­bekk­inn, tók út úr sér tyggjó og setti kless­una undir píanóið. „Já, ég á þessa tyggjó­klessu,“ sagði Warren, „ég fór upp á svið eftir að hún var farin, not­aði hand­klæðið sem hún þurrk­aði svit­ann af enn­inu með og setti tyggjó­kless­una í það og geymi hana vel.“ 

Er þessi saga sönn? spyr gestur í salnum: 

„Já, hún er sönn. Warren á enn tyggjóið og hann sækir það einu sinni á ári og horfir á það. Hann er ekki trú­aður maður en þetta gerir hann.“ 

En ef tyggjóið hennar Ninu gæti farið með ykkur aftur í tím­ann, spyr sami gestur, hvaða tón­list­ar­fólk mynd­irðu velja að spila með?  

„Elvis! Hann er „fokk­ings“ hetjan mín en það yrði samt alveg glatað. Myndi hljóma eins og karókí.“ 

En Nina Simone? spyr þá gest­ur­inn. „Nei, hún myndi aldrei hleypa mér nálægt svið­inu.“

Nick Cave tal­aði í byrjun kvölds um varn­ar­leysi sitt á svið­inu og síð­asta spurn­ing kvölds­ins snýst um líðan hans eftir tón­leika, hvort hann vakni með „varn­ar­leys­is­þynnku“.

„Það er svo mikil orka í salnum milli mín og áhorf­enda. Hún hjálpar en í þess­ari ferð er ég einn. Fer einn að sofa. Einn á svið. Einn í morg­un­mat og einn í flug­vél. Einn á rölti. Ég hef í gegnum tíð­ina alltaf fundið mik­inn styrk innra með mér á meðan ég er á svið­inu sem hverfur mér um leið og ég stíg niður af því. Í þessum túr er ég oft óró­legur. Samtal sem ég veit ekki hvert leiðir getur verið ansi ógn­vekj­andi.“  

Ekki er allt sem sýn­ist, því Nick Cave virð­ist yfir­veg­aður, ótta­laus og fullur sjálfs­trausts þegar hann sest við píanóið til að spila loka­lagið; Stagger Lee. Að því loknu þakkar hann fyrir sig og kveður en er klapp­aður upp eins og tón­leika­lög gera ráð fyrir og hann spilar þrjú lög, People Ain‘t No Good af plöt­unni Boatman´s Call sem kom út árið 1997, Higgs Boson Blues sem er á Push the Sky Away frá árinu 2013 og Skeleton Tree sem er af sam­nefndri, nýj­ustu plötu Nicks Cave og The Bad Seeds sem kom út árið 2016: 

Sunday morn­ing, skel­eton tree
Oh, not­hing is for free
In the window, a candle
Well, maybe you can see
Fallen lea­ves thrown across the sky
A jitt­ery TV
Glowing white like fire
Nothing is for free

I called out, I called out
Right across the sea
But the echo comes back empty
And not­hing is for free

Sunday morn­ing, Skeleton tree
Pressed aga­inst the sky
The jitt­ery TV
Glowing white like fire

And I called out, I called out
Right across the sea
I called out, I called out
That not­hing is for free

And it´s alright now
And it´s alright now
And it´s alright nowAnd a cone-like hat.

Takk, Nick.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár