Af dansgólfinu inn á læknastofur

Efni á borð við LSD, ofskynj­un­ar­sveppi og MDMA, sem hingað til hafa aðal­lega verið þekkt sem ólög­legir vímu­gjafar, eru í vax­andi mæli notuð af læknum til að með­höndla sjúk­linga.

Af dansgólfinu inn á læknastofur
Hjálpar dauð­vona fólki Sál­fræð­ing­ur­inn Rick Doblin hefur notað LSDsem hluta af sam­tals­með­ferð sem er ætluð til að draga úr kvíða- og sorg­ar­til­finn­ingum fólks með ólækn­andi sjúk­dóma Mynd: Bret Hartman

Fjöldi rann­sókna bendir til þess að ofskynj­un­ar­efni geti komið að gagni fyrir fólk sem þjá­ist af alkó­hól­isma, þung­lyndi og öðrum kvillum. Áhrif slíkra efna voru lengi lítt þekkt þar sem víð­tækt bann var í gildi við að rann­saka þau á til­rauna­stofum.

Þann 16. apríl árið 1943 varð sviss­neski efna­fræð­ing­ur­inn Albert Hofmann fyrstur til að upp­lifa áhrif LSD. Hann var að prófa sig áfram með efna­blöndur í leit að lyfi sem myndi hafa örvandi áhrif á önd­un­ar­kerfið. Þegar hann fékk óvart örlítið LSD á fing­ur­gómana fékk hann nán­ast trú­ar­lega upp­lifun og sá vægar ofskynj­anir í tvær klukku­stundir.

Albert HofmannEfna­fræð­ing­ur­inn var að prófa sig áfram með efna­blöndur sem myndu hafa örvandi áhrif á önd­un­ar­kerfið og varð sá fyrsti sem upp­lifði áhrif LSD.

Þremur dögum síðar ákvað hann að inn­byrða vilj­andi örlítið af efn­inu en það reynd­ist sterkara en hann óraði fyrir og hann …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár