Telur að Ríkisskattstjóri hafi synjað fólki um húsnæðisúrræði

Brynhildur Bolla­dóttir lögfræðingur fékk í dag úrskurð frá yfir­skattanefnd þess efnis að henni sé áfram heimilt að nota séreigna­sparnað skatt­frjálst til niður­greiðslu höfuðstóls húsnæðis­láns, þrátt fyrir að hafa selt sína fyrstu íbúð. Hún telur að Ríkis­skattstjóri hafi synjað mörgum um úrræðið.

Brynhildur Bolladóttir
Bryn­hildur Bolla­dóttir Lagði rík­is­skatt­stjóra

Brynhildur Bolla­dóttir lögfræðingur telur að Ríkis­skattstjóri hafi neitað mörgum um húsnæðis­úrræði sem sett var á með „leið­réttingunni“ svokölluðu. Yfir­skattanefnd úrskurðaði henni í vil í dag í kjölfar þess að hún kærði niður­stöðu Ríkis­skattstjóra.

Brynhildur keypti sína fyrstu íbúð árið 2014 og gat notað séreigna­sparnaðinn sinn til að greiða inn á höfuðstól láns síns skatt­frjálst samkvæmt „leið­réttingunni“. Árið 2017 voru sett lög um ný úrræði og þeim sem höfðu keypt sína fyrstu íbúð á tíma­bilinu 1. júlí 2014 til 30. júní 2017 veitt heimild til þess að fara á milli úrræðanna.

Brynhildur seldi sína fyrstu eign í júlí 2017 og keypti nýja. „Ég taldi alveg ljóst skv. lögunum að ég myndi samt uppfylla skilyrði til að nýta mér úrræðið í 10 ár, þ.e. þótt ég hefði selt eignina - enda smá skrýtið að neyða fólk til að vera í sinni fyrstu eign í 10 ár til þess að nota skatt­frjálsa peninga inn á höfuðstól,“ skrifar hún í færslu á Facebook.

Sótti hún um áframhald úrræðisins í desember 2017 og fékk synjun tæpu ári seinna, í nóvember 2018. „Ég kærði það til yfir­skatta­nefndar og fékk niður­stöðu í dag - auðvitað átti ég rétt á því að halda áfram,“ skrifar hún. „Ég skil eiginlega ekki enn hvernig RSK fékk þá niður­stöðu að ég ætti ekki rétt á þessu, t.d. ef maður les bara þessar leið­beiningar frá þeim sjálfum.“

Brynhildur segist ánægð með niður­stöðuna en hefur áhyggjur af þeim sem sóttu um á sama grund­velli og hún og var hafnað. „Ég veit um þónokkur dæmi þess að fólk hafi fengið synjun - a.m.k. ein kærði og fékk sömu niður­stöðu og ég,“ skrifar hún. „Ég vona innilega að Ríkis­skattstjóri fari aftur yfir allar þessar umsóknir m.t.t. niður­stöðu yfir­skatta­nefndar og leiðrétti þetta þar sem við á - ekki aðeins þeim sem kærðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skuldaleiðréttingin

Leiðari

Jón Trausti Reynisson

Svikna kynslóðin í landi jakka­fatanna

Íslenski draumurinn er í uppnámi. Í einfaldaðri mynd sér ungt fólk nú fram á að flytja á jaðarsvæði, borga leigu til GAMMA og greiða vegtolla á leið í og úr þjónustu­störfum fyrir ferðamenn til að fjármagna vegakerfi fyrir ferðamenn. Á þessari öld hafa ráðstöfunar­tekjur elsta aldurs­hópsins aukist rúmlega fimmtán­falt meira en ráðstöfunar­tekjur fólks undir þrítugu og eignir safnast saman hjá eldri kynslóðinni.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár