Fer í mál við Facebook

Í und­ir­bún­ingi er mál­sókn lista­kon­unnar Borg­hildar Ind­riða­dóttur á hendur Facebook, með aðstoð alþjóð­legu sam­tak­anna Freemuse sem berj­ast fyrir frelsi kvenna í listum. Facebook eyddi öllum vinum Borg­hildar, aðeins tveimur dögum áður en hún frum­sýndi verk sitt á Lista­há­tíð í Reykja­vík síð­ast­liðið sumar.

Fer í mál við Facebook
Á vinnu­stof­unni í Berlín Borg­hildur á íslenska for­eldra en er alin upp í Berlín, þar sem hún býr sjálf í dag. Mynd: Úr einkasafni

Þegar Borg­hildur Ind­riða­dóttir und­ir­bjó frum­flutn­ing verks­ins Demoncrazy á Lista­há­tíð í Reykja­vík í fyrra óraði hana ekki fyrir því að rúmu hálfu ári síðar ætti verkið enn eftir að taka yfir drjúgan tíma hennar. Það hefur hins vegar heldur betur undið upp á sig og tekið óvæntar stefnur, eftir að Facebook eyddi öllum vinum hennar á einu bretti, skömmu fyrir frum­sýn­ingu verks­ins.

„For­svars­menn Freemuse höfðu sam­band við mig að fyrra bragði og buðu fram aðstoð sína. Þau eru að hjálpa mér að finna lög­fræð­inga sem geta flutt málið í Banda­ríkj­unum. Það þarf skilst mér að vera þar, því höf­uð­stöðvar Facebook eru í Silicon Valley,“ segir Borg­hildur.

Freemuse eru sam­tök sem berj­ast fyrir tján­ing­ar­frelsi lista­manna á heims­vísu, meðal ann­ars með því að styðja þá opin­ber­lega og aðstoða þá við að standa á rétti sínum. Í ítar­legri skýrslu sem sam­tökin gáfu frá sér í lok síð­asta árs, undir nafn­inu Creativity Wronged: …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár