Velja listasenu Berlínar fram yfir lífsgæðakapphlaupið

Í Berlín ríkir minni neyslu­hyggja en á Íslandi, segja ungir íslenskir lista­menn sem hafa flutt til „hjart­ans í evr­ópsku lista­lífi“. Lægra verð­lag, afslapp­aðri lífsmáti og sterk tengsl við sam­landa sína hafa auð­veldað þeim að búa í höf­uð­borg Þýska­lands en halda sam­bandi við íslenskt menn­ing­ar­líf.

Neukölln hverfið
Neukölln hverfið Hverfin Kreuzberg og Neukölln í suð­ur­hluta Berlínar eru vin­sælir val­kostir fyrir aðflutta.

Ungir lista­menn frá Íslandi kjósa í síauknum mæli að flytja til Berlínar. Lágur fram­færslu­kostn­aður, frjáls­lynd við­horf og öfl­ugt menn­ing­ar­líf er meðal þess sem dregur ungt fólk að borg­inni. Höf­uð­borg Þýska­lands hefur þannig getið sér gott orð á alþjóða­vísu sem mið­stöð fyrir tón­list­ar­menn, mynd­list­ar­menn, dans­ara, rit­höf­unda, kvik­mynda­gerð­ar­menn og aðra sem vilja færa sig um set til þess að vinna að eigin sköpun.

Samkvæmt sam­an­burð­ar­vef­síð­unni Numbeo.com þarf mann­eskja um 480 þús­und krónur í tekjur á mán­uði í Berlín til þess að búa við sömu lífs­kjör og 720 þús­und króna laun­þegi getur búist við á Íslandi. Verðlag er um þriðj­ungi lægra í Berlín og kaup­máttur um 13% hærri. Máltíð á veit­inga­stað kostar að minnsta kosti tvö­falt meira á Íslandi en í Berlín og oft­ast enn meira. Lista­menn sem sækja tekjur sínar að hluta til Íslands eru því vel í stakk búnir til að kom­ast af.

Þrátt fyrir ört hækk­andi fast­eigna­verð er enn tölu­vert ódýr­ara að koma þaki yfir höf­uðið í Berlín en í Reykja­vík. Leigu­verð er almennt 36% lægra og enn meira spar­ast með notkun almenn­ings­sam­gangna þar sem fátt ungt fólk kýs að nota einka­bíl. Berlín er aðeins þrisvar sinnum stærri að flat­ar­máli en Reykja­vík en næstum 30 sinnum fjöl­menn­ari og því mikið hægt að sækja af þjón­ustu í nærum­hverfið.

Ísland hefur á und­an­förnum ára­tugum orðið þekkt á alþjóða­vísu fyrir útflutn­ing á list, sér í lagi tón­list. En lista­menn­irnir sjálfir kjósa margir að búa ann­ars staðar, sumir hluta af árinu og aðrir til lengri tíma. Stundin ræddi við fjóra unga íslenska lista­menn sem flutt hafa til borg­ar­innar á und­an­förnum árum. Öll hald­ast þau mest við í hverf­unum Kreuzberg og Neukölln, sem ásamt öðrum svæðum utan mið­borg­ar­innar hafa verið vin­sæl meðal aðfluttra.

Meiri tími í að njóta

Sig­ur­laug Gísla­dóttir

„Fjár­hags­lega er hálf­ó­mögu­legt að búa á Íslandi ef maður ætlar að stunda listir og lifa af,“ segir Sig­ur­laug Gísla­dóttir tón­list­ar­maður, sem gefur út undir nafn­inu Mr. Silla. Hún flutti til Berlínar fyrir þremur árum en var góð­kunnug borg­inni fyrir. Hún er nýbúin að leggja loka­hönd á nýja plötu sem ber tit­il­inn Hands on Hands og vinnur nú að mynd­böndum fyrir hana auk und­ir­bún­ings vegna næstu plötu.

„Þetta er skemmti­leg borg og ódýr,“ segir Sig­ur­laug. „Maður getur lifað á minni pen­ing hérna, sem er ágætt, en það er líka gott að þurfa ekki að kaupa myglað græn­meti sem kostar hand­legg. Maður borðar dálítið betri mat hérna.“

„Maður þarf ekki alltaf að vera að hugsa um leig­una.“

Andrea Björk Andr­és­dóttir, hönn­uður, leik­stjóri og grínisti, tekur í sama streng. „Það hvað það er ódýrt gerir manni kleift að taka að sér verk­efni sem borga minna og þróa list­ina sína á annan hátt,“ segir hún. „Maður þarf ekki alltaf að vera að hugsa um leig­una. Ég eyði minni pen­ing en á móti meiri tíma í að rækta áhuga­málin mín og stunda fjöl­breytt­ari list­sköpun. Ég næ að slaka á, er minna stressuð og hef meiri tíma í að njóta.“

Mótmælagöngur og gagnmótmælagöngur

Verð­lagið er þó langt frá því það eina sem laðar fólk að borg­inni. Halldór Armand Ásgeirs­son rit­höf­undur segir að honum hafi þótt borgin spenn­andi frá því hann kom fyrst sem ung­lingur. „Mér fannst þetta svo róm­an­tísk borg og mikil saga í loft­inu,“ segir hann. „Maður fann fyrir þunga sög­unnar í and­rúms­loft­inu og var spenntur fyrir henni út af því upp­haf­lega. Það er inspírer­andi að vera hérna. Það er mikið af lista­lífi hérna og spenn­andi hugs­unum og öðru­vísi lífs­stíl og pæl­ingum. Þetta er skjól fyrir alls konar jað­ar­mennsku og öðru­vísi hugsun.“

Halldór Armand Ásgeirs­son

Halldór lýsir borg­inni sem suðu­potti fyrir listir sem sogi lista­menn að. „Þetta er hjartað í evr­ópsku lista­lífi eins og er, ef slíkur staður er til,“ segir hann. „Maður kemst ekki hjá því að verða fyrir áhrifum hér því það eru svo sterkar pæl­ingar í borg­inni. Það eru lím­miðar úti um allt með skila­boðum, allir með svo harða póli­tíska afstöðu, mót­mæla­göngur úti um allt og gagn­mót­mæla­göngur. Það getur ekki annað en smit­ast inn í það sem maður er að gera.“

Halldór skrifar bækur sínar og greinar á íslensku og við­ur­kennir að það sé skrítið að til­heyra tveimur veru­leikum á þennan hátt. „Maður stígur aldrei að fullu skrefið að til­heyra því sam­fé­lagi sem maður býr í,“ segir hann. „Það var ein­hver þýskur stjórn­mála­maður, nýfas­isti, sem gerði það að umtals­efni að þetta væri ógnin í dag. Ensku­mæl­andi gló­balistar sem vinna ein­hvern veg­inn hvergi en samt alls staðar. Afætur á þeim sam­fé­lögum og menn­ing­ar­heimum sem þeir eru í og gera ekk­ert til að aðlag­ast þeim. Ég hef ekki samúð með hans mál­stað en skil að mörgu leyti að fólk velti svona lög­uðu fyrir sér.“

Vinnur tónlist í gegnum netið

Daði Freyr Pét­urs­son tón­list­ar­maður flutti upp­haf­lega til borg­ar­innar árið 2014 til þess að læra í tón­list­ar­skól­anum dBs. Hann segir að þátt­taka hans í Söngvakeppni sjón­varps­ins árið 2017 hafi opnað margar dyr fyrir honum og gert honum kleift að vinna sem tón­list­ar­maður. Hann hafi þó kosið að vera áfram í Berlín og vinna að tón­list sinni þaðan.

„Ég fíla mjög vel hvað sam­göng­urnar eru góðar, maður getur ferð­ast út um allt án þess að þurfa að keyra,“ segir hann. „Ég kann aðeins betur við veðrið hérna en á Íslandi. Mér finnst mjög gott að geta farið á veit­inga­stað án þess að taka yfir­drátt.“

Daði Freyr Pét­urs­son

Daði nefnir einnig úrvalið af tón­leikum í borg­inni og þann mögu­leika að sjá fjölda hljóm­sveita koma fram sem hann hafi aldrei heyrt áður í. Hann seg­ist tala lang­mest íslensku í Berlín, þar sem hann umgang­ist svo mikið af Íslend­ingum, sem lang­flestir sinni list­sköpun. Hann vinnur nú að plötu með íslenskum lista­mönnum og fer það sam­starf að mestu fram í gegnum netið.

„Það væri miklu auð­veld­ara ef maður væri heima,“ segir Daði Freyr. „Það munar alveg um það að geta ekki farið að hitta þau og taka upp. En svo er líka svo margir íslenskir lista­menn hérna. Og ég fer til Íslands næstum einu sinni í mán­uði. Öll mín laun koma frá Íslandi, þótt ég sé með stúdíó hérna og að vinna með krökkum hérna þá er ég að vinna fyrir íslenskan markað að mestu leyti.“

Tengjast í gegnum Íslendingasamfélagið

Andrea Björk segir sína hönnun og list­sköpun einnig fara mikið fram í gegnum netið og hún geti auð­veld­lega fylgst með því sem er í gangi á Íslandi. Hún hefur unnið við hönnun fyrir fyr­ir­tæki og gerð tón­list­ar­mynd­banda fyrir íslenskar hljóm­sveitir. Þá tekur hún einnig virkan þátt í ensku­mæl­andi grín­sen­unni í borg­inni og sýnir spuna og uppi­stand á sviðum víðs vegar um borg.

Andrea Björk Andr­és­dóttir

„Mér líður ekki eins og ég sé að missa af miklu,“ segir hún. „Það er mikið í gangi og margir mögu­leikar og tæki­færi að sýna og prófa nýja hluti. Og ég hefði ekki tengst mörgum íslenskum lista­mönnum ef ekki væri fyrir Íslend­inga­sam­fé­lagið hérna, að við búum öll í þess­ari borg. Einhvern veg­inn er ég nær þessu fólki hér í stærri borg en ef við værum öll í Reykja­vík.“

Halldór vinnur nú að nýrri skáld­sögu og seg­ist njóta bæði teng­inga sinna við íslenskt menn­ing­ar­líf sem og það sem hann hefur kynnst í Berlín. „Mér fannst nákvæm­lega þetta sam­fé­lag íslenskra lista­manna hérna vera spenn­andi. Ég þekkti svo­lítið af fólki sem bjó hérna sem virk­aði sem seg­ull á mig. Mig lang­aði að kynn­ast því betur, umgang­ast og læra af,“ segir hann.

„Á öld snjall­sím­ans er það að flytja til Berlínar svo­lítið eins og að flytja til Hvera­gerðis,“ bætir hann við. „Maður er alltaf með íslenskan veru­leika beint í æð í gegnum sím­ann og sér myndir af vinum sínum úti að borða eða í sjó­sundi á Íslandi. Ég er sjálfur í sterkum tengslum við og reyni að fylgj­ast vel með íslensku menn­ing­ar­lífi. En ég held að það sé ekk­ert mál að hverfa í þess­ari borg og skera á staf­rænar teng­ingar við Ísland.“

Íslensk keppni um að hafa mikið að gera

„Ég upp­lifi mjög afslapp­aða orku í Berlín,“ segir Andrea Björk. „Það er ekki jafn mikið lífs­gæða­kapp­hlaup hérna. Stemning sem er til­valin til að vinna að list og skapa.“

Daði Freyr lýsir sömu upp­lifun. „Það er svo­lítil neyslu­hyggja á Íslandi,“ segir hann. „Mér finnst rosa margt fólk vera í keppni um að hafa mikið að gera. Það elskar að segja „það er brjálað að gera hjá mér“. Það þykir mjög flott ef þú ert alltaf að. Mér finnst fólk hérna fá að vera nákvæm­lega eins og því sýn­ist.“

Halldór seg­ist sömu­leiðis inn­blás­inn af þeirri naum­hyggju sem ein­kennir lífs­stíl margra Berlín­ar­búa. „Það er kannski alhæf­ing og breiðar strokur, en mér finnst fólk leggja mikið upp úr náunga­kær­leik og því að gefa öðru fólki tíma. Maður vissu­lega til­heyrir sápu­kúlu lista­manna að ein­hverju leyti, en mér finnst fólk hérna yfir höfuð ekki hel­tekið af ver­ald­legum gæðum eða því að safna auði. Margir hérna sýna það í verki að þeim finn­ist göf­ugt að lifa lág­stemmdu og ein­földu lífi, sem felst í miklu minni neyslu. Og það hefur smit­ast inn í mitt líf, að minnsta kosti vona ég það.“

Félagsleg vandamál sýnileg

„Maður áttar sig á því hvað þetta er mikil eyja,“ segir Sig­ur­laug, aðspurð um það hvort hún líti Ísland í öðru ljósi að utan. „Heim­ur­inn er lít­ill ef maður er alltaf á Íslandi. Sér­stak­lega ef maður ætlar að vera í list­sköpun, þá þarf maður að upp­lifa stærri heims­sýn. Maður er dálítið að pæla í sjálfum sér og nágrann­anum á Íslandi.“

„Það er mikil eymd hérna líka og fátækt, atvinnu­leysi og lág laun.“

Halldór segir lær­dóm­inn ganga í báðar áttir. „Maður er vanur því að Berlín sé dásömuð, það sé allt svo frá­bært og ódýrt og frjáls­legt,“ segir hann. „Það er allt rétt, en það er mikil eymd hérna líka og fátækt, atvinnu­leysi og lág laun. Þess vegna er Berlín alls ekki fyr­ir­heitna landið, eins og stundum er látið, þótt vissu­lega sé þetta mik­ill önd­veg­is­reitur að mörgu leyti. Félags­leg vanda­mál eru áþreif­an­leg og sýni­leg á göt­unum. Maður finnur fyrir því þegar maður fer til Íslands að þar er engan veg­inn ekki sama eymd, ekki sama fátæktin og umkomu­leysið á götum úti, þó auð­vitað sé fátækt á Íslandi. Ísland er yfir höfuð góður staður til að vera á, þótt þar séu vita­skuld ýmis vanda­mál.

Á hinn bóg­inn þá finnur maður fyrir því að Ísland er svo­lítið eins og annar hnöttur. Eyja sem er ekki tengd við annað land og kemst upp með að lifa svo­lítið í sínum eigin heimi. Í nafla­skoðun í fjöl­miðlum á atvikum sem hafa ekki áhrif út fyrir land­stein­ana. Og sömu­leiðis er mjög slá­andi og í raun ein­stakt hvað það er lítil áhersla á erlendar fréttir á Íslandi. Sjálf­stæður frétta­flutn­ingur og frétta­öflun af erlendum vett­vangi er eig­in­lega ekki til.“

Frelsi til að vera enginn

Öll segja þau að það gangi ágæt­lega að við­halda tengsl­unum við íslensku lista­sen­una. Sig­ur­laug lýsir því til dæmis að þó að gott sé að búa mið­svæðis í Evrópu til þess að halda tón­leika víðs vegar um álf­una þá sé auð­velt að skjót­ast til Íslands.

„Mér finnst ég vera mjög heppin að geta gert bæði, það er svona „best of both worlds“. Flugin eru ekki það dýr. Það er alltaf gaman að koma heim og spila á Airwaves og í fyrra tók ég þátt í Lista­há­tíð í Reykja­vík. Maður tekur einmitt eftir því að borgin tæm­ist yfir jólin. Það eru svo margir aðfluttir og fólk fer heim til sín, bæði Þjóð­verjar ann­ars staðar frá og fólk frá öðrum löndum,“ segir hún.

Miðborg Berlínar

Andrea Björk nefnir að tæki­færin til að vinna við list­sköpun og hönnun séu tak­mörkuð og lítið fjöl­breytt á Íslandi. Hún hafi nú búið í Berlín í tvö ár og þrátt fyrir að geta ekki myndað tengsl jafn auð­veld­lega í gegnum kunn­ings­skap, þá líki henni betur við að hverfa inn í fjöld­ann. „Berlín er stærri borg, maður er meira „nobody“ og hefur meira frelsi til að gera það sem maður vill,“ segir hún. „Það er eng­inn að fylgj­ast með manni. Að búa í stór­borg gefur manni frelsi að vera eng­inn.“

Munaður í vatninu

Daði Freyr seg­ist fara nógu oft til Íslands til að losna við mestu heim­þrána. „Við vorum heima allan des­em­ber og það var alveg nóg,“ segir hann. „Fjöl­skyldan mín og fjöl­skylda Árnýjar, kon­unnar minnar, búa báðar úti í sveit, þannig að ég er ekki bara að fara til Reykja­víkur heldur fæ að sjá víð­átt­una og feg­urð­ina.“

Halldór seg­ist ekki fara oft til Íslands, en hann sakni að sjálf­sögðu vina og fjöl­skyldu og þeirra lífs­gæða sem fólgin séu í nátt­úr­unni, sem jafn­vel megi upp­lifa innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. „Berlín getur verið hel­víti drunga­leg og kald­rana­leg, sér­stak­lega á vet­urna,“ segir hann.

„Ég fer beint af flug­vell­inum í sund.“

„Það er brjál­aður mun­aður í vatn­inu heima, sem maður saknar mjög mikið,“ segir Sig­ur­laug. „Bæði drykkj­ar­vatnið og að geta alltaf farið í sund. Maður er eig­in­lega með spa aðgang allan árs­ins hring sem maður áttar sig ekki á hvað eru mikil lífs­gæði fólgin í. Ég fer beint af flug­vell­inum í sund.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár