Lætur sól­ina skína Þórir Gunn­ars­son, sem gengur undir lista­manns­nafn­inu Lista­púk­inn, lætur sól­ina skína á öllum sínum myndum. Mynd: Davíð Þór

Listapúkinn lætur sólina skína

Þórir Gunn­ars­son, betur þekktur sem Lista­púk­inn, byrjar alla morgna á því að mála mynd. Hann hverfur inn í verkið og dregur fram kjarna þeirra sem hann málar hverju sinni. Hann skilur iðu­lega eftir skín­andi sól á himni mynda sinna, eins konar tákn fyrir þá birtu og þann yl sem stafar frá honum sjálfum.

Við erum stödd í lít­illi blokkar­í­búð á jarð­hæð í Mos­fellsbæ árla morg­uns. Tónlist Ellýar Vil­hjálms­dóttur, túlk­aðri af Katrínu Halldóru Sig­urð­ar­dóttur, leik- og söng­konu, ómar um rýmið í bland við pens­il­strokur lista­manns­ins Þóris Gunn­ars­sonar, sem er betur þekktur undir lista­manns­nafn­inu Lista­púk­inn. Hann situr við stofu­borðið umkringdur máln­ingu, penslum og litum, algjör­lega nið­ur­sokk­inn í mál­verk dags­ins – mynd af bróður hans og eig­in­konu, þeim Þormari Vigni Gunn­ars­syni og Helenu Benja­míns­dóttur, sem giftu sig á dög­unum. „Fólk verður að sjá Lista­púk­ann að verki,“ segir Þórir og skellir upp úr eins og honum einum er lagið.

Mynda­taka og klipp­ing: Davíð Þór

Lista­púk­inn er fyrir löngu orð­inn lands­þekktur fyrir sín næfísku verk þar sem menn og dýr eru á meðal helstu mótífa. Hann hélt sína fyrstu einka­sýn­ingu í Ála­foss­kvos undir nafni Lista­púkans árið 2012 og var með stærð­ar­innar yfir­lits­sýn­ingu af vatns­lita­myndum sínum á vinnu­stof­unni Hvirfli í Mos­fells­dal í til­efni af fjöru­tíu ára afmæli sínu í fyrra. Lista­mað­ur­inn hefur haft í nógu að snú­ast und­an­farið enda hefur færst í vöxt að fólk panti myndir hjá honum yfir jóla­ver­tíð­ina. Á tíma­bili voru pant­an­irnar svo margar að hann átti hrein­lega erfitt með að anna eft­ir­spurn en það hafð­ist þó allt saman á end­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Listir

LungA lifir – Býður upp á nýja námsbraut í gegnum útvarp
Menning

LungA lifir – Býður upp á nýja náms­braut í gegnum útvarp

LungA-skól­inn opnar nýja náms­braut, LungA útvarps­skól­inn, sem fer alfarið fram í útvarpi. Opið er fyrir umsóknir til 15. des­em­ber 2024 fyrir fyrsta skóla­árið, sem stendur frá febr­úar til des­em­ber 2025. LungA útvarps­skól­inn er ekki skóli um útvarp, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá skól­anum en hann er skóli í/á/gegnum útvarp. Þetta er tíma­bundið sam­fé­lag þar sem skóla­starfið spannar 10 mán­uði og sam­anstendur af...
Alda vann til verðlauna á Stockfish annað árið í röð: „Ég er alveg að springa úr gleði“
Menning

Alda vann til verð­launa á Stockfish annað árið í röð: „Ég er alveg að springa úr gleði“

Alda Ægis­dóttir (24) mynd­listar- og kvik­mynda­gerða­kona vann til verð­launa í ár á Stockfish stutt­mynda­keppn­inni, og er það annað árið í röð sem hún vinnur til verð­laun­anna. Hin unga lista­kona er með BA-gráðu í mynd­list frá Lista­há­skóla Íslands en með verkum sínum skapar hún lit­ríka ævin­týra­ver­öld úr efnum eins og textíl, leir, pappamassa, vír og fleiru. „Árið 2022, á fyrsta árinu...
Elísabet hefur í nógu að snúast í sumar: „Þær verða dýrmætar þegar ég verð orðin fræg og sæt“
Innlent

Elísabet hefur í nógu að snú­ast í sumar: „Þær verða dýr­mætar þegar ég verð orðin fræg og sæt“

Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir, ljóð­skáld og rit­höf­undur lætur ekki deigan síga í sumar, þrátt fyrir veik­indi sem hafa hrjáð hana und­an­farið. Framundan er mynd­list­ar­sýn­ing og fram­koma á lista­há­tíð á Tálkna­firði. Mannlíf tók Elísa­betu tali í dag og ræddi við hana um það sem er framundan hjá henni á næst­unni. Þú ert að koma fram á lista­há­tíð fyrir vestan ekki satt? „Heyrðu...
Listaháskólinn bíður upp á nýtt meistarnám: „Ég get varla lýst gleði minni“
Innlent

Lista­há­skól­inn bíður upp á nýtt meist­ar­nám: „Ég get varla lýst gleði minni“

Í haust býður Lista­há­skól­inn í fyrsta skipti upp á meist­ara­nám í listum og vel­ferð, þar sem horft er til hvernig list­irnar geta nýst í skipu­legu félags­starfi af öllu tagi. Sér­stak­lega er horft til hópa sem oft eru jað­ar­settir og hvernig þátt­taka og aðgengi að listum getur tengt saman fólk og eflt ein­stak­linga. Námslínan var þróuð í nánau sam­starfi við fimm...
Þetta græddu Bubbi og Hrafnhildur í fyrra
Menning

Þetta græddu Bubbi og Hrafn­hildur í fyrra

Tón­list­ar­mað­ur­inn Bubbi Morthens þykir í seinni tíð vera afar klókur í við­skiptum . Ein mat­ar­hola hans er að selja texta­verk sín sem njóta mik­illa vin­sælda. Um er að ræða inn­ram­mað upp­kast að hinum ýmsu frum­textum sem hann hefur samið í gegnum tíð­ina. Dýrustu verkin kosta 85 þús­und krónur. Heildar sölu­verð­mæti verk­anna er 46 millj­ónir króna. Þetta er þriðja árið sem...
Ósk opnar einkasýningu: „Sem bjargi væri létt af brjósti hennar?“
Menning

Ósk opnar einka­sýn­ingu: „Sem bjargi væri létt af brjósti hennar?“

Mynd­list­ar­konan Ósk Gunn­laugs­dóttir mun opna einka­sýn­ingu á mál­verkum sínum í SÍM Gallerý í Hafn­ar­stræti 16, næst­kom­andi fimmtu­dag, þann 7.apríl. Sýningin ber tit­il­inn „Sem bjargi væri létt af brjósti hennar?“. „Verkin á sýn­ing­unni takast á við þrí­vídd við­fangs­efnis sem gæti verið tekið úr nátt­úr­unni,“ segir í lýs­ingu á sýn­ing­unni. „Form skapað úr flötum, hornum og bogum sem eiga sér sinn stað...

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár