Heimila byggingu „aukaíbúða“ um alla borg

Reykja­vík­ur­borg hyggst breyta hverf­is­skipu­lagi í Ártúns­holti, Árbæ og Selási og leyfa auka­í­búðir í sér­býlum. Sömu breyt­ingar verða gerðar um alla borg og byggð þannig þétt, segir Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir borg­ar­full­trúi.

Heimila byggingu „aukaíbúða“ um alla borg

Fjölga má íbúðum um allt að 1.730 í Ártúns­holti, Árbæ og Selási, sam­kvæmt til­lögu að nýju hverf­is­skipu­lagi sem borg­ar­yf­ir­völd hafa aug­lýst. Veittar verða heim­ildir fyrir auka­í­búðum í sér­býli og byggð þannig þétt veru­lega.

Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag. Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs Reykja­víkur, segir að þessar breyt­ingar verði gerðar í öllum hverfum borg­ar­innar. „Við erum líka að gefa íbú­unum færi á að hafa leigu­í­búðir innan síns hús­næðis sem geta þá verið tekju­auk­andi og aukið verð­mæti eign­ar­innar,“ segir hún. „Það er til dæmis íbúð­ar­hús­næði í mörgum bíl­skúrum í dag, þótt slíkt sé ekki lög­legt. Þetta snýst því líka um að stíga skrefið í átt að raun­veru­leik­anum.“

Auka­í­búðir eru um 50 fer­metrar og eru gerðar með því að skipta eldra rými eða breyta bíl­skúrum. Óheimilt er að selja þær frá aðal­í­búð enda megi sam­eina þær aftur ef eig­endur óska þess. Með breyt­ing­unum gefst eig­endum tæki­færi til að leigja rými út og afla tekna eða leyfa fjöl­skyldu­með­limum að búa í sér­í­búð.

Til stendur að skoða sam­bæri­lega þétt­ingu í öllum hverfum borg­ar­innar með sömu heim­ild. Nýt­ing­ar­hlut­fallið er þó mis­mun­andi eftir hverfum. Bæta megi hæðum ofan á fjöl­býl­is­hús eða þétta byggð í kringum þau.

Í frétt Morg­un­blaðs­ins kemur einnig fram að Bjarg íbúða­fé­lag hygg­ist byggja allt að 220 íbúðir við Hraunbæ og að 60 íbúðir fyrir aldr­aða rísi á sama svæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár