Lög brotin og rangar upplýsingar veittar í Braggamálinu

Skýrsla innri endur­skoðunar Reykja­víkurborgar er því sem næst samfelldur áfellis­dómur yfir aðkomu borgar­kerfisins að endur­byggingu húsanna að Naut­hólsvegi 100.

Áfellisdómur
Áfell­is­dómur Skýrsla innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar um fram­kvæmdir við end­ur­bygg­ingu bragg­ans í Naut­hóls­vík er svört. Mynd: Davíð Þór

Lög voru brotin, verk­ferlar voru ekki virtir, ekki var farið að innkaupa­reglum Reykja­víkurborgar, borgar­ráði voru veittar villandi og jafnvel rangar upplýsingar, samningar um verkefni voru ekki skrif­legir og þeir gerðir við vini og kunningja þeirra sem stóðu að framkvæmdinni. Þetta er meðal niður­staðna í skýrslu innri endur­skoðunar Reykja­víkurborgar um endur­byggingu bragga við Naut­hólsveg 100 og samliggjandi húsa. Skýrslan sýnir fram á alvarlegar brota­lamir er snúa að þætti Reykja­víkurborgar við framkvæmdir í bragga­málinu svokallaða. Þá kemur fram að bæði borgar­ritari og borgar­stjóri hafi vanrækt stjórnunarlegar skyldur sínar og beri ábyrgð, í það minnsta að hluta, á þeim frávikum sem urðu við framkvæmdirnar.

Greint var frá því í september síðastliðnum að kostnaður endur­byggingar húsanna þriggja sem um ræðir væri kominn langt fram úr þeirri kostnaðar­áætlun sem unnið var eftir. Frum­kostnaðar­áætlun, sem gerð var sumarið 2015, gerði ráð fyrir að kostnaður við endur­bygginguna yrði 158 milljónir króna en í október á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár