Mynd: Davíð Þór

„Nauðgarar eru bara venjulegir menn“

Elísabet Ýr Atla­dóttir segir að reynt sé að þagga niður í sér í femínískri bar­áttu sinni með kærum og hót­unum um máls­sóknir. Hún ætlar ekki að láta slíkt yfir sig ganga. Koma verður sam­fé­lag­inu í skiln­ing um að menn sem nauðga eru ekki skrímsli heldur geta „góðir menn“ líka nauðgað.

„Það má vera reiður. Það má vera ókurt­eis og leið­in­legur. Við erum að tala um nauðg­anir og kyn­ferð­is­of­beldi og því­líkt kerf­is­bundið órétt­læti. Auðvitað megum við vera reiðar, alveg brjál­aðar yfir þessu. En við erum alltaf settar í þetta box að við eigum að vera dann­aðar og við megum ekki hræða fólk frá. Jú víst! Víst megum við það, þetta er „scary“ og þetta er raun­veru­leik­inn sem við búum við og við verðum að breyta honum. Ég vil að við breytum honum á okkar lífs­tíð, fyrir mig, fyrir mömmu mína, systur og dætur. Núna.“

Þetta segir Elísabet Ýr Atla­dóttir, þrí­vídd­ar­teikn­ari sem búsett er í Danmörku, við blaða­mann Stund­ar­innar yfir kaffi­bolla á Lækj­ar­torgi. Elísabet er ekki komin hingað til Íslands vegna vinnu sinnar eða mennt­unar. Hún er ekki heldur komin til að heim­sækja ætt­ingja sína. Hún er komin til Íslands vegna þess að hún þarf að mæta í dóm­sal, vegna þess hvernig …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár