Deilur innan ættarveldis teygja sig úr Skeifunni í skattaskjólið Mön

Ald­ur­hnignir bræður í Valfells-fjöl­skyld­unni eiga í deilum um stjórnun fjöl­skyldu­fyr­ir­tækis sem á tveggja millj­arða eignir. Annar bróð­ir­inn, Sveinn Valfells, stefndi syni sínum út af yfir­ráðum yfir þessum eignum og hefur son­ur­inn tekið afstöðu með bróður hans.

Deilur innan ættarveldis teygja sig úr Skeifunni í skattaskjólið Mön
Hafði betur Sveinn Valfells yngri, sem meðal ann­ars er þekktur vegna áhuga síns á Bitcoin, hafði betur bæði í hér­aði og Lands­rétti í máli sem faðir hans og systk­ini höfð­uðu gegn honum vegna deilna um eignir fjöl­skyld­unnar. Mynd: Omar Oskarsson

Harðar deilur hafa geisað innan stór­eigna­ætt­ar­innar Valfells-fjöl­skyld­unnar um yfir­ráð og völdin yfir fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Vetr­ar­garð­inum ehf. Þessar deilur eru komnar til kasta íslenskra dóm­stóla og kvað Lands­réttur upp dóm í deil­unni í byrjun nóv­em­ber. 

Deil­urnar snú­ast um Vetr­ar­garð ehf. en þetta félag á eignir upp á tvo millj­arða króna, meðal ann­ars fast­eign­ina í Skeif­unni sem hýsir Hagkaup sem og eitt fyrsta versl­un­ar­hús sem byggt var á Íslandi, Kjörgarð á Lauga­vegi.

Þessi ætt­a­r­auður byggir í grunn­inn á við­skipta­veldi ætt­föð­ur­ins, Sveins B. Valfells, sem fæddur var árið 1905 og sem stofn­aði verk­smiðju sem fram­leiddi vinnu­föt og var hann sagður vera „mað­ur­inn sem kenndi Íslend­ingum að klæða sig gegn kuld­anum“ í afmæl­is­grein í Alþýðu­blað­inu árið 1955. Sveinn var einn rík­asti Íslend­ing­ur­inn á fyrri helm­ingi og fram eftir tutt­ug­ustu öld­inni, bónda­sonur sem með athafna- og útsjón­ar­semi bjó til ætt­ar­veldi og njóta afkom­endur góðs af því. 

Kjör­garður
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

Ógnaði heimilisfólki með heimagerðu sverði
FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár