Katrín: Nýjar upp­lýsingar úr Glitnis­skjölunum hafa engin áhrif á stjórnarsamstarfið

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir ekki við hæfi að þing­menn séu stór­tækir í við­skiptum sam­hliða þing­mennsku og að við­skipti í skatta­skjólum grafi undan lýð­ræð­is­sam­fé­lögum. Viðhorf hennar til stjórn­mála­sam­starfs­ins við Bjarna Bene­dikts­son og Sjálf­stæð­is­flokk­inn er óbreytt.

Katrín: Nýjar upp­lýsingar úr Glitnis­skjölunum hafa engin áhrif á stjórnarsamstarfið
Engin áhrif Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að við­horf hennar til stjórn­ar­sam­starfs­ins við Bjarna Bene­dikts­son hafi ekki breyst þar sem upp­lýs­ing­arnar um við­skiptaum­svif hafi legið fyrir í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna árið 2017. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það er mín afstaða að stjórn­mála­menn eigi almennt ekki að vera umsvifa­miklir í við­skiptum sam­hliða stjórn­mála­starfi þar sem það skapar tor­tryggni og van­traust,“  segir Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra, í svari sínu við spurn­ingum Stund­ar­innar um afstöðu hennar til upp­lýs­inga um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra, sem Stundin hefur greint frá í fréttum sem unnar eru upp úr skjölum innan úr Glitni banka.

„Að sama skapi liggur fyrir að núver­andi fjár­mála­ráð­herra hefur ekki komið að neinum slíkum umsvifum í ára­tug“ 

Katrín segir að hins vegar breyti þessar upp­lýs­ingar engu um við­horf hennar til núver­andi rík­is­stjórnar þar sem marg­hátt­aðar upp­lýs­ingar um við­skipti Bjarna hafi legið fyrir í aðdrag­anda kosn­ing­anna um haustið 2017.  Hún segir að þær reglur um hags­muna­skrán­ingu þing­manna sem nú eru í gildi hafi ekki gilt á árunum fyrir hrunið 2008 og einnig að Bjarni hafi ekki haft neina aðkomu að við­skipta­líf­inu í ára­tug: „Þá liggur einnig fyrir, líkt og fram kemur í frétt Stund­ar­innar um þessa fyr­ir­spurn, að upp­lýs­ingar um marg­þætt umsvif núver­andi fjár­mála­ráð­herra í við­skipta­líf­inu sam­hliða þing­mennsku fyrir hrun höfðu komið fram áður en gengið var til síð­ustu kosn­inga. Að sama skapi liggur fyrir að núver­andi fjár­mála­ráð­herra hefur ekki komið að neinum slíkum umsvifum í ára­tug,“ segir Katrín. 

Miðað við svör Katrínar þá er hún á þeirri skoðun að þing­menn eigi ekki að vera stórir þátt­tak­endur í við­skipta­líf­inu sam­hliða þing­mennsku en að sama skapi þá telur hún að við­skiptaum­svif Bjarna hafi legið fyrir um hríð og að frek­ari upp­lýs­ingar um þau hafi ekki breytt við­horfi hennar til sam­vinnu við Bjarna og flokk hans.

Fleiri stjórnmálamenn virkir í viðskiptum

Eitt af því sem Katrín bendir á í rök­stuðn­ingi sínum fyrir svari sínu er að aðkoma stjórn­mála­manna að við­skipta­líf­inu á Íslandi hafi ekki verið bundin við Bjarna Bene­dikts­son heldur hafi fleiri þing­menn tekið þátt í við­skipta­líf­inu. Þannig má segja að Katrín bendi á að slík aðkoma stjórn­mála­manna að við­skipta­líf­inu hafi verið lenska á árunum fyrir hrunið 2008. „Sömu­leiðis hefur á þeim tíu árum sem liðin eru frá hruni umhverfi þing­manna verið breytt mjög til hins betra. Þannig voru teknar upp reglur um hags­muna­skrán­ingu og siða­reglur fyrir þing­menn á árunum eftir hrun sem ekki voru á Íslandi fyrir hrun. Ástæða þess er meðal ann­ars umfjöllun í Rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis þar sem fjallað er um við­skiptaum­svif þing­manna á þessum tíma, meðal ann­ars núver­andi fjár­mála­ráð­herra en einnig ann­arra þing­manna enda voru slík umsvif ekki óal­geng á þessum tíma,“ segir í svari Katrínar. 

„... enda voru slík umsvif ekki óal­geng á þessum tíma“

Fram kemur í svari Katrínar að hún telji rétt­ara að horfa á kerfið almennt, heldur en að líta til ein­stakra, sið­ferð­is­legra álita­mála í þessum efnum. „Ég hef ekki verið og er ekki hlynnt þeirri afstöðu að smætta kerf­is­lægan vanda í ein­stök sið­ferði­leg álita­mál sem eru afleið­ing auk­innar ein­stak­lings­hyggju og ein­stak­ling­svæð­ingar stjórn­mál­anna. Það eru mun lang­dræg­ari áhrif sem hljót­ast af því að breyta kerf­inu sjálfu,“ segir hún.

Í umfjöllun Stund­ar­innar hefur meðal ann­ars komið fram að Bjarni hafi stýrt við­skipta­veldi sem skilur eftir sig tæp­lega 130 millj­arða króna ógreiddar skuldir í íslenska banka­kerf­inu. 

„Það er og hefur verið mín skoðun að mik­il­vægt sé að íslensk og alþjóð­leg lög­gjöf taki á skatta­skjólum enda grafa þau undan vel­ferðar- og lýð­ræð­is­sam­fé­lögum.“

Skattaskjól grafa undan lýðræðissamfélögum 

Stundin spurði Katrínu einnig um við­horf hennar til skatta­skjóla en upp­lýs­ingar í Glitn­is­skjöl­unum gefa fyllri mynd en áður hefur komið fram um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar í félag­inu Falson í skatta­skjól­inu Seychelles fyrir hrunið 2008. Í svari sínu um skatta­skjól segir for­sæt­is­ráð­herra: „Aflands­fé­lög á lág­skatta­svæðum er ein afurð frjálsra fjár­magns­flutn­inga og nýfrjáls­hyggju­væð­ingar alþjóða­við­skipta. Það er og hefur verið mín skoðun að mik­il­vægt sé að íslensk og alþjóð­leg lög­gjöf taki á skatta­skjólum enda grafa þau undan vel­ferðar- og lýð­ræð­is­sam­fé­lögum.“

Frekari upp­lýs­ingar um við­skipti Bjarna í skatta­skjólum hafa því, sam­kvæmt öðru svari Katrínar, ekki heldur haft áhrif á við­horf hennar til sam­starfs við hann og flokk­inn. 

Tekið skal fram að greint var frá þessum frek­ari upp­lýs­ingum um við­skipti Bjarna í skatta­skjólum fyrir kosn­ing­arnar til Alþingis í fyrra. 

Spurn­ingar Stund­ar­innar og svör Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra fylgja hér á eftir. 

Svar Katrínar við spurningum Stundarinnar um viðhorf hennar til viðskiptasögu Bjarna Benediktssonar: 

„Það er mín afstaða að stjórn­mála­menn eigi almennt ekki að vera umsvifa­miklir í við­skiptum sam­hliða stjórn­mála­starfi þar sem það skapar tor­tryggni og van­traust. Um það voru stjórn­mála­menn og stjórn­mála­flokkar engan veg­inn sam­mála fyrir hrun eins og kemur fram í Rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis. Vinstri-græn höfðu þó skýra sýn á þessi mál en við vorum t.d. fyrsti flokk­ur­inn til að gera grein fyrir öllum styrkjum einka­að­ila til hreyf­ing­ar­innar og gagn­rýna óskýr mörk milli stjórn­mála og við­skipta­lífs. En sem betur fer skap­að­ist sam­staða á sínum tíma um lög um fjár­mál stjórn­mála­flokka þannig að þau mál hafa tekið stór­felldum breyt­ingum til batn­aðar.

Sömu­leiðis hefur á þeim tíu árum sem liðin eru frá hruni umhverfi þing­manna verið breytt mjög til hins betra. Þannig voru teknar upp reglur um hags­muna­skrán­ingu og siða­reglur fyrir þing­menn á árunum eftir hrun sem ekki voru á Íslandi fyrir hrun. Ástæða þess er meðal ann­ars umfjöllun í Rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis þar sem fjallað er um við­skiptaum­svif þing­manna á þessum tíma, meðal ann­ars núver­andi fjár­mála­ráð­herra en einnig ann­arra þing­manna enda voru slík umsvif ekki óal­geng á þessum tíma.

Vegna þess­ara nýju reglna liggja nú fyrir upp­lýs­ingar um mögu­leg fjár­hags­leg tengsl þing­manna og ráð­herra. Þá liggur einnig fyrir, líkt og fram kemur í frétt Stund­ar­innar um þessa fyr­ir­spurn, að upp­lýs­ingar um marg­þætt umsvif núver­andi fjár­mála­ráð­herra í við­skipta­líf­inu sam­hliða þing­mennsku fyrir hrun höfðu komið fram áður en gengið var til síð­ustu kosn­inga. Að sama skapi liggur fyrir að núver­andi fjár­mála­ráð­herra hefur ekki komið að neinum slíkum umsvifum í ára­tug. Þessar upp­lýs­ingar lágu því fyrir þegar Vinstri græn tóku ákvörðun um að mynda núver­andi rík­is­stjórn. Það sem mestu réð þó við þá ákvörðun var að með þeim sátt­mála sem liggur til grund­vallar rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu verður ráð­ist í þau löngu tíma­bæru sam­fé­lags­lega mik­il­vægu verk­efni sem Vinstri-græn lögðu áherslu á fyrir kosn­ingar.

Aflands­fé­lög á lág­skatta­svæðum er ein afurð frjálsra fjár­magns­flutn­inga og nýfrjáls­hyggju­væð­ingar alþjóða­við­skipta. Það er og hefur verið mín skoðun að mik­il­vægt sé að íslensk og alþjóð­leg lög­gjöf taki á skatta­skjólum enda grafa þau undan vel­ferðar- og lýð­ræð­is­sam­fé­lögum. Á árunum eftir hrun voru inn­leiddar svo­kall­aðar CFC-reglur sem ætlað var að tryggja upp­lýs­inga­skrán­ingu um slík félög. Þá beitti ég mér sér­stak­lega fyrir því að reglur yrðu settar um svo­kall­aða þunna eig­in­fjár­mögnun og lagði ítrekað fram frum­vörp þess efnis. Slíkar reglur voru leiddar í lög á grund­velli frum­varps frá núver­andi fjár­mála­ráð­herra þar sem ýmsar aðrar reglur til að sporna gegn skattsvikum voru inn­leiddar. Frekari laga­breyt­ingar voru gerðar fyrr á þessu ári til að vinna gegn skattsvikum og á þing­mála­skrá í nóv­em­ber er áætlað frum­varp  með frek­ari breyt­ingum í þessa átt. Þar má m.a. nefna ákvæði um svokölluð CFC-félög sem heim­ila stjórn­völdum að skatt­leggja tekjur erlendra félaga sem stað­sett eru í skatta­skjólum, en eru í íslenskri eigu hér á landi. Sömu­leiðis verða reglur um milli­verð­lagn­ingu og sömu­leiðis reglur um frá­drátt vaxta vegna lána milli tengdra aðila hertar og gerðar skýr­ari.

Í frum­varp­inu verður einnig að finna hertar reglur um skatt­lagn­ingu starfs­manna­leiga. Þessar breyt­ingar munu án efa gefa skatt­yf­ir­völdum frek­ari tæki­færi til að herða róð­ur­inn gegn skatt­und­and­rætti og skattsvikum til við­bótar við þau sem lög­fest hafa verið á und­an­förnum árum í tengslum við aðild Íslands að BEPS-aðgerða­á­ætlun OECD og G20 ríkj­anna gegn alþjóð­legri skatta­snið­göngu og skatta­skjólum. Aukinn fjöldi upp­lýs­inga­skipta­samn­inga milli Íslands og ann­arra ríkja, m.a. við þekkt skatta­skjól, skipta hér einnig miklu máli.

„Í þessum málum eins og flestum öðrum er það mín afstaða að mestu skipti að breyta kerf­inu“

Í þessum málum eins og flestum öðrum er það mín afstaða að mestu skipti að breyta kerf­inu. Skatta­skjól eru afleið­ing þess kerfis sem byggt var upp á for­sendum nýfrjáls­hyggju og frjálsra fjár­magns­flutn­inga. Ég hef ekki verið og er ekki hlynnt þeirri afstöðu að smætta kerf­is­lægan vanda í ein­stök sið­ferði­leg álita­mál sem eru afleið­ing auk­innar ein­stak­lings­hyggju og ein­stak­ling­svæð­ingar stjórn­mál­anna. Það eru mun lang­dræg­ari áhrif sem hljót­ast af því að breyta kerf­inu sjálfu og það er t.d. fagn­að­ar­efni að bar­áttan gegn skatta­skjólum og vinna til að efla traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu sé orðið eitt af for­gangs­málum OECD. Þessi afstaða mín kom raunar fram í við­tali við The Guardian fyrr á þessu ári þar sem ég var spurð um þessi mál­efni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár