Morðið sem knúði fólk til afstöðu

Þrátt fyrir ítrekuð lof­orð um lýð­ræð­isum­bætur í Sádi-Arabíu við­gang­ast gróf mann­rétt­inda­brot þar með vit­und og sam­þykki Vest­ur­landa sem hafa hag af ástand­inu. Nú virð­ist morðið á blaða­mann­inum sem var brytj­aður niður á ræð­is­skrif­stofu í Istanbúl hafa gert úts­lagið.

Morðið sem knúði fólk til afstöðu
Jamal Khas­hoggi Sádi-arab­íski blaða­mað­ur­inn Jamal Khas­hoggi var drep­inn á hrotta­legan hátt í ræð­is­skrif­stofu fæð­ing­ar­lands síns í Istanbúl, Tyrk­landi. Mynd: Shutterstock

Þegar sádi-arab­íski blaða­mað­ur­inn Jamal Khas­hoggi steig inn fyrir dyr ræð­is­skrif­stofu í Istanbúl þann 2. októ­ber síð­ast­lið­inn hófst reyfara­kennd atburða­rás sem hefur skekið valda­jafn­vægi Mið-Aust­ur­landa og ekki sér enn fyrir end­ann á. Khas­hoggi hafði verið í sjálf­skip­aðri útlegð í meira en ár þar sem hann taldi öryggi sínu ógnað heima fyrir. Sá grunur reynd­ist heldur betur á rökum reistur.

Tyrk­neskir rann­sak­endur full­yrða að fimmtán manna aftöku­sveit hafi verið send frá Sádi-Arabíu til að sitja fyrir Khas­hoggi á skrif­stofu ræð­is­manns­ins í Istanbúl. Þeir hafi haft í fórum sínum að minnsta kosti eina beina­sög, af sömu gerð og læknar nota. Menn­irnir hafi verið á vegum leyni­þjón­ustu Sáda og farið úr landi strax og þeir voru búnir að myrða Khas­hoggi, búta líkið niður og farga því. Haft er eftir rann­sak­endum að lík­lega hafi menn­irnir haf­ist handa við að saga Khas­hoggi í sundur áður en hann var lát­inn.

„Hvernig líkið fór á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár