Áfallasamvera vegna óhugnanlegs barnaníðingsmáls í Sandgerði

Sam­fé­lagið er slegið yfir fréttum af pari í Sand­gerði sem gefið er að sök að hafa nauðgað dóttur sinni og látið aðra dóttur horfa á. Ákærðu höfðu sótt kirkju í Garði og seg­ist sókn­ar­prestur enn vera að jafna sig á tíð­ind­unum um hverjir ættu í hlut.

Áfallasamvera vegna óhugnanlegs barnaníðingsmáls í Sandgerði
Sand­gerði Barn­a­níð­ings­málið hefur vakið óhug á Suð­ur­nesjum og í sam­fé­lag­inu öllu. Mynd: Shutterstock

Sam­fé­lagið í Sand­gerði er í losti yfir fréttum af pari sem grunað er um stór­felld kyn­ferð­is­brot gegn dætrum sínum, að sögn sókn­ar­prests á svæð­inu. Áfalla­sam­vera var haldin í safn­að­ar­heim­il­inu í gær­kvöldi.

Önnur dóttirin kom sjálf á lög­reglu­stöð 10. júlí og lagði fram kæru á hendur móður sinni og stjúp­föður. Eftir rann­sókn máls­ins var gefin út ákæra á hendur par­inu 1. októ­ber fyrir að hafa nauðgað dóttur kon­unnar og tekið ljós­myndir og mynd­band af ofbeld­inu. Þau eru einnig ákærð fyrir að hafa veitt barn­inu áfengi og fram­leitt myndefni sem sýndi hana á kyn­ferð­is­legan hátt.

Innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins hefur verið rætt um málið sem „það ógeðs­leg­asta í sög­unni“. Þá hafi þau látið hina dótt­ur­ina horfa á verkn­að­inn og þannig ógnað á alvar­legan hátt vel­ferð hennar.

Bæði hafa játað sök að hluta í yfir­heyrslum. Þá er mað­ur­inn einnig ákærður fyrir vörslu barnakláms, vörslu vopna og að hafa ítrekað rass­skellt dæt­urnar á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár