Landvernd gefur út harðorða yfirlýsingu og vitnar í orð Guðmundar Inga áður en hann varð ráðherra

Alþingi mis­beitti valdi sínu með því að grípa fram fyrir laga­legt ferli sem tryggja á umhverf­is­vernd, að mati stjórnar Land­verndar. vitnað er í orð Guð­mundar Ingi Guð­brands­sonar umhverf­is­ráð­herra, sem áður var fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, um að athæfið sé „ólíð­andi í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi“.

Landvernd gefur út harðorða yfirlýsingu og vitnar í orð Guðmundar Inga áður en hann varð ráðherra
Laxeldi Tvö fyr­ir­tæki í lax­eldi fengu bráða­birgða­leyfi til allt að tíu mán­aða í lög­unum.

Stjórn Land­verndar sendi frá sér harð­orða ályktun varð­andi lög­gjöf rík­is­stjórn­ar­innar um lax­eldi sem tryggir rekstr­ar­leyfi óháð nið­ur­stöðu úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála. Stjórnin vitnar í fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Land­verndar, Guðmund Inga Guð­brands­son, sem er nú umhverf­is­ráð­herra, en hann  sagði sam­bæri­legt inn­grip í umhverf­is­vernd „með öllu ólíð­andi í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi“ fyrir tveimur árum.

Laga­breyt­ing­una kallar stjórn Land­verndar mis­beit­ingu valds þar sem hags­munir tveggja fyr­ir­tækja eru í húfi og er það gert án nokk­urrar umræðu eða mögu­leika til umsagna. 

Bak­grunnur máls­ins er að kvöldið 9. októ­ber sam­þykkti Alþingi lög sem gera ráð­herra heim­ilt að veita fyr­ir­tækjum í lax­eldi bráða­birgða­leyfi til allt að tíu mán­aða. Tvö fyr­ir­tæki í lax­eldi, Arctic Sea Farm og Fjarða­lax, höfðu þá fimmtu­dag­inn áður verið svipt starfs­leyfi sínu af úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála, á þeim grund­velli að umhverf­is­mats­skýrsla fyr­ir­tækj­anna hefði verið ófull­nægj­andi, enda hafi engir aðrir kostir en lax­eldi í opnum kvíum verið til skoð­unar.

Lögin brjóti á bága við Árós­ar­samn­ing­inn sem er meðal ann­ars grund­völlur þess að óháða úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­ráðs varð til. Samn­ing­ur­inn tryggir „rétt almenn­ings til þátt­töku í und­ir­bún­ingi ákvarð­ana og skyldu ríkja til að tryggja almenn­ingi rétt­láta máls­með­ferð í málum sem varða umhverfið“.

Lögin fengu, eins og áður var sagt, enga umræðu né voru mögu­leikar til umsagna á þeim.

Í álykt­un­inni telur stjórnin að ef mála­lok verða að lögin fá að standa er komið for­dæmi sem lög­gjafi geti nýtt til þess að snúa við úrskurðum óháðra úrskurða­nefnda ef þrýst­ingur hags­muna  ann­arra er nógu mik­ill.

Í frá­sögn Mat­væla­stofn­unar um nið­ur­fell­ingu leyfis til lax­eldis segir að úrskurð­ar­nefndin hefði talið „veru­lega ágalla“ á umhverf­is­mat­inu sem lax­eld­is­fyr­ir­tækin létu gera á eigin fram­kvæmd. „Nefndin taldi að svo hafi ekki verið þar sem tefla hefði þurft fram fleiri en einum val­kosti við mat á umhverf­is­á­hrifum, enda sé nauð­syn­legt að fá fram sam­an­burð umhverf­is­á­hrifa fleiri kosta sem lög­bundin krafa er gerð um, allt í þeim til­gangi að leyf­is­veit­andi geti tekið upp­lýsta afstöðu að rann­sök­uðu máli til þess að meta hvort eða með hvaða hætti hægt sé að leyfa fram­kvæmd þannig að skil­yrði laga séu upp­fyllt. Þar sem ekki hafi verið sýnt fram á í mati á umhverf­is­á­hrifum að eng­inn annar mögu­legur fram­kvæmda­kostur hafi getað komið til greina verði að telja það veru­legan ágalla á mat­inu að engum öðrum kosti hafi verið lýst, að öðru leyti en því að vísað væri til þess að núll­kostur hefði engin áhrif í för með sér.“

Yfirlýsing stjórnar Landverndar:

Með öllu ólíðandi í lýðræðisþjóðfélagi

Úrskurða­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála var sett á í kjöl­far inn­leið­ingar Árósa­samn­ings­ins.  Hún á að tryggja almenn­ingi og sam­tökum þeirra ský­lausan kæru­rétt í mál­efnum umhverf­is­ins. Nefndin er sjálf­stæð og óháð stjórn­völdum og kæru­leiðin kemur í stað dóm­stóla­leiðar skv. Árósa­samn­ingnum. Ann­markar á umhverf­is­mati fram­kvæmd­ar­að­ila eru fyrst kær­an­legir við útgáfu leyfa.

Nýjasta útspil rík­is­stjórnar Íslands og Alþingis að breyta lögum í kjöl­far nið­ur­stöðu úrskurða­nefnd­ar­innar er klár mis­beit­ing valds. Lögum er breytt vegna hags­muna tveggja fyr­ir­tækja í miklum flýti án nokk­urrar umræðu eða mögu­leika til umsagna. Með þeim gjörn­ingi eru tvær stoðir Árós­ar­samn­ings­ins brotnar: réttur almenn­ings til þátt­töku í und­ir­bún­ingi ákvarð­ana og skylda ríkja til að tryggja almenn­ingi rétt­láta máls­með­ferð í málum sem varða umhverfið. 

Tak­mark­aðir mögu­leikar umhverf­is­vernd­ar­sam­taka til þess að tryggja að farið sé að lögum í mál­efnum umhverf­is­ins hafa verið að engu gerðir í þessu máli. Verði þetta mála­lok er ljóst að for­dæmi er komið sem lög­gjaf­inn getur nýtt sér í fram­tíð­inni til að snúa við úrskurðum hinnar óháðu úrskurð­ar­nefndar, sé þrýst­ingur ann­arra hags­muna nógu mik­ill.

Á 100 afmæli full­veld­is­ins er kom­inn tími til þess að Íslend­ingar taki nátt­úru- og umhverf­is­vernd alvar­lega. Ein mesta ábyrgð full­valda ríkja er að við­halda og vernda eigin nátt­úru og auð­lindir til þess að kom­andi kyn­slóðir geti notið ávaxta þeirra eins og þær sem nú ráða. Lágmark er að bera virð­ingu fyrir  þeim lögum og reglum sem þó eru við lýði.  

Það er við hæfi að enda þessa yfir­lýs­ingu á til­vitnun í þáver­andi fram­kvæmda­stjóra Land­verndar og Umhverf­is­ráð­herra núver­andi rík­is­stjórnar varð­andi hlið­stætt mál frá 2016: „Það sem að for­sæt­is­ráð­herra boð­aði í gær, er í raun­inni að fikta í lög­gjöf­inni eftir á þannig að nið­ur­staða þessa óháða úrskurð­ar­að­ila sé lík­legri til að henta mál­stað rík­is­stjórn­ar­innar. Þetta er nátt­úru­lega að okkar mati, með öllu ólíð­andi í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi“.

Stjórn Land­verndar: Rósbjörg Jóns­dóttir, for­maður, Guð­mundur Björns­son, Helga Ögmunds­dóttir, Hugrún Geirs­dóttir, Lovísa Ásbjörns­dóttir, Margrét Auð­uns­dóttir, Páll Ásgeir Ásgeirs­son, Pétur Hall­dórs­son, Snorri Bald­urs­son, Þór­hildur Fjóla Krist­jáns­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár