Hundruð rússneskra bóka mygla ofan í kjallara

Stærsta rúss­neska bóka­safnið hér á landi er að skemm­ast í raka og myglu í kjall­ara sam­komu­húss Rúss­nesku rétt­trún­að­ar­kirkj­unnar á Öldugötu. For­svars­menn Rúss­nesku menn­ing­ar­mið­stöðv­ar­innar kalla eftir hjálp til að bjarga bóka­safn­inu en mæta hvar­vetna áhuga­leysi.

Hundruð rússneskra bóka mygla ofan í kjallara
Myglandi bækur Margar bókanna eru nú þegar ónýtar og lít­ill tími til stefnu ef bjarga á þeim sem eftir eru. Mynd: Maria Ylfa Lebedeva

Þegar stjórn­endur Bóka­safns Kópavogs tóku ákvörðun um að loka rúss­nesku deild­inni árið 2016 var þeim sjö hund­ruð bókum sem til­heyrðu því safni pakkað saman og komið á rúss­neska sendi­ráðið. Þar gátu bæk­urnar ekki verið og því var þeim komið áfram til með­lima Rúss­nesku menn­ing­ar­mið­stöðv­ar­innar, félags­skapar sem hefur þann til­gang að efla tengsl á milli Rússa og Íslend­inga.

Tekin var ákvörðun um að stofna bóka­safn utan um bæk­urnar, sem voru um sjö hund­ruð tals­ins, og var gert sam­komu­lag við prest Rétt­trún­að­ar­kirkj­unnar um að koma því fyrir í sam­komu­húsi Rússa við Öldugötu 44, þar sem söfn­uður kirkj­unnar á Íslandi hefur aðstöðu. Húsið er opið dag­lega og þar fara meðal ann­ars fram guðs­þjón­ustur um helgar.

Engin svör og enginn áhugi

„Við byrj­uðum að byggja upp bóka­safnið og fórum að fá mikið af gef­ins bókum til við­bótar,“ rifjar María Ylfa Lebedeva upp, en hún er ein þeirra sem standa að menn­ing­ar­mið­stöð­inni. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár