Grænlenska hótelið sem Guðmundur Ingi gisti á ódýrara en sambærileg hótel í Reykjavík

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, kvart­aði undan bruðli vegna fundar Norð­ur­landa­ráðs í Nuuk og sagði hót­elið „meira en tvö­falt dýr­ara en nokk­urt lúx­us­hót­el sem ég hef kom­ist inn á“.

Grænlenska hótelið sem Guðmundur Ingi gisti á ódýrara en sambærileg hótel í Reykjavík
Taldi gist­ing­una alltof dýra Guð­mundur Ingi taldi gist­ing­una í Nuuk alltof dýra. Gisting á sam­bæri­legum hót­elum í Reykja­vík er hins vegar dýr­ari. Mynd: Kristinn Magnússon

Nótt í eins manns her­bergi með morg­un­mat á Hótel Hans Egede í Nuuk á Græn­landi, þar sem sendi­nefnd Íslands gisti meðan að á fundi Norð­ur­landa­ráðs stóð í síð­ustu viku, kostar á bil­inu 22 til 29 þús­und krónur. Verð fyrir sam­bæri­lega gist­ingu á fjög­urra stjörnu hót­elum í Reykja­vík sem tekin voru til sam­an­burðar kosta á bil­inu 30 til 38 þús­und krónur.

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, gagn­rýndi í vik­unni harð­lega bruðl við gisti­kostnað í sendi­nefnd­ar­inna í Nuuk. „Ég verð að gera at­huga­semd við það að ég gisti á dýr­asta hót­eli sem ég hef nokk­urn tím­ann gist á á æv­inni. Það er meira en tvö­falt dýr­ara en nokk­urt lúx­us­hót­el sem ég hef kom­ist inn á,“ sagði Guð­mundur Ingi á Alþingi síð­ast­lið­inn þriðju­dag.

Gagnrýndi bruðl og tilgangsleysi

Guð­mundur Ingi velti því upp í þing­ræðu sinni hverju umræddur fundur Norð­ur­landa­ráðs ætti að skila og hver væri til­gang­ur­inn með henni. Á fund­inn hefðu verið sendir sjö þing­menn auk starfs­manns. Guð­mundur Ingi velti því upp til hvers það væri enda væri til­gang­ur­inn ein­göngu „að sam­þykkja ein­hverjar áður gerðar álykt­anir eða reyna að gera ein­hverjar orða­lags­breyt­ingar,“ sagði Guð­mundur Ingi og velti því upp í fram­hald­inu hvort óráðsía væri gegn­um­gang­andi á Alþingi. „Ég spyr líka, ef ég er að borga þarna meira en helm­ingi dýr­ara hótel en þyrfti að vera og við erum að borga helm­ingi meira fyrir Þing­velli og hátíð­ina þar en þyrfti: Er þetta gegn­um­gang­andi á þing­inu? Þurfum við ekki að fara að end­ur­skoða hlut­ina?“

Allt að þriðjungi ódýrara

Stundin kann­aði verð á gist­ingu í Nuuk og í ljós kom að ódýrasta nóttin í ein­stak­lings­her­bergi á Hótel Hans Egede, þar sem sendi­nefnd Íslands gisti, kostar 22 þús­und krónur með morg­un­mat. Er þar um að ræða fremur lítið ein­stak­lings­her­bergi. Hægt er að fá öllu stærra ein­stak­lings­her­bergi á 29 þús­und krónur nótt­ina. Miðast verðið við upp­lýs­ingar á síðu hót­els­ins, að því gefnu að pöntuð sé gist­ing í tvær nætur dag­ana 25. til 26. sept­em­ber, og gengi krónu í dag, 21. sept­em­ber. Hótel Hans Egede er fjög­urra stjörnu hótel.

Sé verð á sam­bæri­legum hót­elum í Reykja­vík kannað þá kemur í ljós að þar er nóttin dýr­ari. Verð fyrir gist­ingu sömu nætur í ein­menn­ings­her­bergi, einnig með morg­un­mat, á Hótel Sögu í Reykja­vík er á bil­inu 30 til 33 þús­und krónur fyrir nótt­ina. Nóttin á Grand Hótel sömu daga kostar 32 þús­und krónur en þar er boð­inn 15 pró­senta afsláttur þessa dag­ana. Á fullu verði myndi nóttin þar leggj­ast á tæpar 38 þús­und krónur. Bæði hótel eru fjög­urra stjörnu.

Litlu ódýrara að gista á Patreksfirði

Á Hótel KEA á Akureyri reynd­ust ekki laus ein­stak­lings her­bergi umræddar nætur en laust var í gist­ingu eina nótt mánu­dag­inn 24. sept­em­ber. Boðið er upp á til­boð á síðu hót­els­ins fyrir gist­ingu þá nótt og kostar nóttin tæpar 14 þús­und krónur. Ef þyrfti að greiða fullt verð fyrir gist­ing­una myndi nóttin kosta rúmar 16 þús­und krónur. Hótel KEA er einnig fjög­urra stjörnu hótel.

Þá má geta þess að atvinnu­vega­nefnd Alþingis er þessa dag­ana á ferð um Vest­firði á vegum þings­ins. Þingmenn gistu liðna nótt á Foss­hótel Wesstfjords á Pat­reks­firði. Þar kostar nóttin í ein­stak­lings­her­bergi með morg­un­mat tæpar 20 þús­und krónur. Hótelið telst þriggja stjörnu.

Tveir aukadagar í Nuuk

Í morgun var birt á síðu Alþingis til­kynn­ing með upp­lýs­ingum um fund Norð­ur­landa­ráðs á Græn­landi. Þar kemur fram að dýr­ara sé að sækja fundi í Nuuk en í öðrum höf­uð­borgum Norð­ur­landa, þar sem fundir Norð­ur­landa­ráðs fara að jafn­aði fram. Í Nuuk sé aðeins eitt hótel, Hótel Hans Egede, og kosti gistinóttin um 35 þús­und krónur sem sé mun dýr­ara en þau hótel sem íslenskir þing­menn búa á að jafn­aði í ferðum vegna funda Norð­ur­landa­ráðs. Það rýmar þó ekki við upp­lýs­ingar af bók­un­ar­síðu hót­els­ins, um eins manns her­bergi, sem Stundin kynnti sér og greint er frá hér að framan. Hins vegar er umrætt 35 þús­und króna verð nálægt því sem tveggja manna her­bergi á Hótel Hans Egede.

Þá segir í til­kynn­ing­unni að skrif­stofa Norð­ur­landa­ráðs í Kaup­manna­höfn hafi séð um samn­inga við hót­elið. Einnig er greint frá því að fram­boð á flug­sætum milli Reykja­víkur og Nuuk sé tak­markað og að þrátt fyrir að flug hafi verið pantað með góðum fyr­ir­vara hafi ekki tek­ist að tryggja öllum hent­ug­ustu flug vegna fund­ar­ins. Einn þing­maður þurfti að því að dvelj­ast í tvo auka­daga í Nuuk.

Enn fremur er greint frá því að kostn­aður Alþingis vegna Íslands­deildar Norð­ur­landa­ráðs hafi á síð­asta ári verið tæpar 17 millj­ónir króna. Kostn­að­ur­inn skipt­ist þannig að um sex millj­ónir fóru í funda­sókn erlendis, sex millj­ónir í funda­hald á Íslandi og tæpar fimm millj­ónir í fram­lag til rekst­urs Norð­ur­landa­ráðs.

Á síð­asta ári fékk skrif­stofa Norð­ur­landa­ráðs í Kaup­manna­höfn tæpar 600 millj­ónir króna í fram­lög frá nor­rænu lönd­unum. Af því borg­uðu Íslend­ingar 0,9%. Fram­lagið er reiknað sem hlut­fall af þjóð­ar­fram­leiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár