Kynferðislegt efni notað til fjárkúgunar

„Nýlega vorum við með mál þar sem ungur maður kynnist einni á netinu og gerir þetta og hann endaði með því á einni helgi að borga viðkomandi aðila alla sumar­hýruna eftir sumar­vinnuna og síðan bætti hann við smáláni þannig að hann borgaði alls eina og hálfa milljón krónur en þrátt fyrir það var birt,“ segir Kristján lngi lögreglu­fulltrúi. Jó­hann­es Kr. Kristjáns­son er á vett­vangi og fylg­ist með störf­um kyn­ferð­is­brota­deild­ar lög­regl­unn­ar.

Eft­ir­far­andi er texta­út­gáfa þriðja þáttar Á vett­vangi, nýrrar hlað­varps­þáttar­aðar í umsjón Jóhann­esar Kr. Krist­jáns­sonar, sem aðgengi­legur er vef Heim­ild­ar­innar. Þáttinn má nálg­ast hér.

Kristján Ingi: Við vorum að fá tilkynningu frá móður unglings­stúlku um að hún hafi addað vini sínum inná quick add á Snapchat. Síðan fer hún að senda umræddum aðila kynferðislegar myndir af því hann hótar því að koma heim til hennar og hótar að meiða fjölskyldu­meðlimi á hroða­legan hátt. 

Jóhannes Kr.: Þetta hlýtur að vera alvarlegt mál?

Kristján Ingi: Já vissulega og vonandi getum við fundið út úr því hver þetta er en maður veit það ekki - þetta eru náttúru­lega hótanir þess eðlis að hún heldur áfram að gera þetta og myndefnið verður sífellt grófara sem hún sendir.  

Jóhannes Kr.: Þetta er greini­lega ekki bara að gerast fyrir stráka - þetta er líka að gerast fyrir stelpurnar?

…
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Það er eins gott að passa síga tölvuþrjótum hvar sem þeir kunna að finnast og það veit ég lika að sumt fólk getur verið varasamt það þarf ekki utlitið til í þeim malum
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Á vettvangi

Vont að senda varnar­lausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guðjóns­dóttir er félags­ráðgjafi á bráða­móttöku Land­spítalans. Þar tekst hún á við myrkustu hliðar mann­lífsins, en segist helst reiðast yfir því að rekast á sömu veggina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varðandi konur sem búa á götunni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskoranir segir hún starfið það besta í heimi.

9 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár