Ráðuneyti Willums þrýsti á Persónuvernd

Ráðu­neyti Willums Þórs Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra bað Per­sónu­vernd, undir stjórn Helgu Þór­is­dóttur, að end­ur­skoða umsögn um breyt­ingar á lögum um vís­indi og rann­sóknir á heil­brigð­is­sviði í vetur. Helga varð ekki við beiðn­inni.

Helga Þór­is­dóttir for­seta­fram­bjóð­andi og for­stjóri Per­sónu­verndar fékk beiðni frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu um að end­ur­skoða við­bót­ar­um­sögn um breyt­ingar á lögum um vís­indi og rann­sóknir á heil­brigð­is­sviði í vetur. „Við nátt­úru­lega end­ur­skoðum ekki umsögn, við erum að fara að lögum,“ sagði Helga um afskipti ráðu­neyt­is­ins í þjóð­mæla­þætt­inum Pressu sem var í beinni útsend­ingu á vef­síðu Heim­ild­ar­innar á föstu­dag. 

„Það er grafal­var­legt,“ sagði Helgi Seljan, annar þátta­stjórn­enda. 

„Þess vegna er ég að segja það, við erum búin að þurfa að taka hverja ákvörð­un­ina á fætur annarri sem fólk hefur þurft að finna fyrir. Þá ger­ast hlutir. Þá er fólk ekki sátt af því að það er þannig að maður fer með vald, maður þarf að passa að hafa ekki vald­hroka,“ sagði Helga. 

Umsögnin sem um ræðir snýr að frum­varpi til laga um breyt­ingu á lögum um vís­inda­rann­sóknir á heil­brigð­is­sviði sem sett voru 2014. Frum­varpið var birt í sam­ráðs­gátt í 17. nóv­em­ber. Umsögn Per­sónu­verndar var hins vegar aldrei birt. Raunar hafa engar umsagnir verið birtar en átta aðilum var boðið að senda inn umsögn: Embætti land­læknis, Íslenskri erfða­grein­ingu, Land­spít­ala, Per­sónu­vernd, Sjúkra­hús­inu á Akureyri, Siða­nefnd Land­spít­ala, Vísinda- og tækni­ráði og Vís­inda­siða­nefnd.  

„Rétt er rétt og rangt er rangt“

Umræðan um umsögn­ina kom í fram­haldi af spurn­ingu Mar­grétar Mart­eins­dóttur, ann­ars þátta­stjórn­anda Pressu, sem spurði Helgu um yfir­lýs­ingar hennar um að hún standi fyrir heið­ar­leika og festu. „Það er nú bara það eina sem ég kann að gera í líf­inu. Það er að koma vel fram við annað fólk. Rétt er rétt og rangt er rangt,“ sagði Helga.  

Aðspurð hvort þetta væri svona skýrt hélt Helga áfram. „Alla­veg­anna fyrir mér. Eins og þessi veg­ferð sem ég fór í, að gefa kost á mér í for­seta­fram­boð, það var í raun­inni bara heið­ar­leiki minn og festa, ef þú skoðar allt sem ég hef gert í líf­inu. Lög­fræð­ingur í almanna­hags­munum, alltaf að reyna að hugsa um hags­muni almenn­ings og gera betra sam­fé­lag.“

Helga seg­ist hafa lent í ýmsum ólgu­sjó sem for­stjóri Per­sónu­verndar í þau rúmu átta ár sem hún hefur gegnt starfi for­stjóra, meðal ann­ars að takast á við sterk öfl í íslensku sam­fé­lagi, til að mynda heil­brigð­is­ráðu­neytið í vetur. „Ég hef þurft að takast á við sterka for­stjóra í einka­fyr­ir­tækjum, ég hef þurft að takast á við ráðu­neyti, við höfum þurft að sekta stofn­anir, sekta ráðu­neyti, sekta fyr­ir­tæki.“

„En ertu ekki að fara að lög­unum?“ spurði Helgi. 

„Jú, en trúðu mér, að hafa dug og þor til að fara að lög­unum, það eru ekk­ert allir sem fara þá leið. Það er miklu auð­veld­ara að líta fram­hjá og segja: Já við skulum hafa slaka,“ svar­aði Helga.  

Helgi spurði í fram­hald­inu hvort þessir aðilar hafi reynt að hafa áhrif á hana. „Það hafa komið upp stundir,“ svar­aði Helga, sem var beðin um að nefna dæmi. „Það hafa komið sím­töl á minni starfs­tíð og það hafa komið bréfs­efni, svona ábend­ingar um það hvort Per­sónu­vernd ætli ekki að breyta umsögn sinni og svo fram­vegis.“

„Trúðu mér, að hafa dug og þor til að fara að lög­unum, það eru ekk­ert allir sem fara þá leið.“
Helga Þór­is­dóttir,
for­stjóri Per­sónu­verndar og for­seta­fram­bjóð­andi

Helga var ekki á því að nefna dæmi í beinni útsend­ingu. En hún vildi vera heið­ar­leg. Aðspurð hvort ráð­herr­ann, sem í þessu til­felli er Willum Þór Þórsson, hefði hringt sagði Helga að „það er alltaf ein­hver sem hringir fyrir hönd ein­hvers“.  

„Það var gengið dálítið fast að okkur um það að end­ur­skoða umsögn um breyt­ingar á lögum um vís­indi og rann­sóknir á heil­brigð­is­sviði,“ hélt Helga áfram.  

„Var það Decode?“ spurði Helgi og átti þá við Íslenska erfða­grein­ingu undir stjórn Kára Stef­áns­sonar. Helga sagði heil­brigð­is­ráðu­neytið hafa kraf­ist þess að Per­sónu­vernd myndi end­ur­skoða ákveðna umsögn. „Við nátt­úru­lega end­ur­skoðum ekki umsögn, við erum að fara að lögum.“ 

„Það var heil­brigð­is­ráðu­neytið sem gerði það?“ ítrek­aði Helgi.  

„Við vorum beðin um að end­ur­skoða umsögn,“ svar­aði Helga. Hún sagð­ist hafa lent í því að verða for­stjóri stofn­unar sem fær gríð­ar­legar heim­ildir. „Við fáum tveggja millj­arðar heim­ildir til að sekta stjórn­völd og fyr­ir­tæki, við þurfum að fara vel með það.“ 

Helga sagð­ist vera heið­ar­leg og yfir­veguð og í starfi sínu sem for­stjóri Per­sónu­verndar hafi hún tekið mál­efna­legar ákvarð­anir og þorað að sýna festu og standa í fæt­urna. „Ég hef ekki gert neitt annað alla mína hunds- og katt­ar­tíð. Og það er kannski erfitt og sjaldan sem fólki finnst svona á göt­unni en bara fyr­ir­gefið, hér er ég, þess vegna fór ég líka í þetta for­seta­fram­boð.“

„Þessi afskipti heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins af þess­ari umsögn urðu ekki til þess að þið breyttuð umsögn­inni,“ spurði Helgi. 

„Nei,“ svar­aði Helga, sem er nú í leyfi frá störfum sem for­stjóri Per­sónu­verndar á meðan hún er í fram­boð til for­seta Íslands.

Hér má horfa á Pressu þar sem for­seta­fram­bjóð­end­urnir Arnar Þór Jónsson, Helga Þór­is­dóttir og Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir mætt­ust. Fyrri hluti þátt­ar­ins er öllum aðgengi­legur en áskrif­endur geta horft á þátt­inn í heild sinni: 

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Hmmmm... núna er búið að birta umsagnir Persónuverndar og ÍE á samráðsgáttinni. Það brýtur í bága við góða stjórnsýsluhætti og viðmið um opið samráð að "fela" umsagnir.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár