Óvæntur sund­sprettur Einn af hápunktum ferð­ar­innar var þegar þær mæðgur fengu sér sund­sprett með þrjá­tíu djöflaskötum sem birt­ust öllum að óvörum. Mynd: Rán Sigurjónsdóttir

Syntu með djöflaskötum við afskekktasta eyjaklasa heims

Alls staðar var tekið á móti mæðg­unum Hrund, Rán og Sif með blómum, ávöxtum, söng og tón­list á þriggja vikna ævin­týra­ferða­lagi þeirra um kór­al­eyja­klasa Frönsku Pólynesíu og Marquesas-eyjar. Þær eru sam­mála um að ferða­lög á fram­andi staði setji lífið í annað og stærra sam­hengi.

Fyrir fimm árum kynnt­ist þró­un­ar­fræð­ing­ur­inn og frum­kvöð­ull­inn Hrund Gunn­steins­dóttir Sven Olof-Lindblad, stofn­anda Lindblad og eins af alþjóð­legum vernd­urum hafs­ins (e. Ocean Elders), í gegnum sam­eig­in­lega vini sem vinna hjá National Geographic. Þau kynni áttu eftir að leiða af sér mikil ævin­týri og leiða hana og dætur hennar tvær í þriggja vikna ferða­lag sem hófst á Tahítí, þaðan sem þær sigldu yfir til Tuamotu-eyja­kla­s­ans, sem er einn stærsti kór­al­eyja­klas­inn í Frönsku Pólý­nesíu og er UNESCO-vernd­aður. Þaðan fóru þær til Marquesas-eyja sem eru einn afskekkt­asti eyja­klasi í heimi. „Þar dvöldum við í lengstan tíma, snorkluðum með hákörlum innan um lit­ríka kór­ala og fiska, fórum í fjall­göngur, hlust­uðum á söng og horfðum á dansa. Alls staðar sem við komum var tekið á móti okkur með blómum, ávöxtum sem uxu á staðnum, söng og tón­list,“ lýsir Hrund.

Hún segir menn­ingu Pólý­nesíu bæði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár