Metfjölgun mislingasmita í Evrópu

Tilkynnt misl­inga­smit í Evrópu hafa marg­fald­ast frá árinu 2016. Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin kallar eftir auknu eft­ir­liti með bólu­setn­ingum í Evrópu.

Metfjölgun mislingasmita í Evrópu
Barn með misl­inga Rauð útbrot ein­kenna misl­inga­smit, ásamt hita­köstum og háls­bólgu­ein­kennum.

Fyrstu sex mán­uði árs­ins 2018 hafa að minnsta kosti 37 manns látið lífið sökum misl­inga­smits í Evrópu. Á sama tíma­bili hafa 41.000 manns smit­ast af sjúk­dómnum, sem er tals­vert meira en með­al­tal síð­ustu átta ára. Þetta segir í skýrslu Evr­ópu­deildar Alþjóða Heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar. 

Árið á undan taldi 23.927 smit og árið 2016 taldi ein­ungis 5,723. Þúsund smit hafa verið til­kynnt í Frakk­landi, sömu­leiðis í Georgíu, Ítalíu, Rúss­landi og Serbíu á fyrstu sex mán­uðum þessa árs. Dauðs­föllin eru flest í Serbíu, alls 14 manns. 

Útbrot og hiti

Misl­inga­smit eiga sér stað í lofti, í gegnum hósta­köst eða hnerra. Eftir mikil hita­köst og háls­bólgu­tengd ein­kenni dreifast rauð­leit útbrot frá and­liti og út um allan lík­ama. Sjúk­dóm­ur­inn er bráðsmit­andi á þessu tíma­bili og eru sýktir ein­stak­lingar hvattir til þess að ein­angra sig í minnst átta daga eftir að ein­kenni hafa látið sjá sig. Fjórum dögum eftir að útbrotin birt­ast fyrst er sjúk­ling­ur­inn hættur að dreifa veirunni með hósta eða hnerra, og getur aftur umgeng­ist fólk hættu­laust. 

Flestir sem fá sjúk­dóm­inn ná bata. Hjá ungum börnum getur sjúk­dóm­ur­inn reynst ban­vænn, og ein­stak­lingar með léleg ónæm­is­kerfi geta einnig fengið hættu­lega lungna­bólgu sem getur auð­veld­lega dregið til dauða. 

Óbólu­settur ein­stak­lingur er lík­legri til þess að smit­ast af sjúk­dómnum og dreifa honum áfram til þeirra sem ekki eru bólu­settir. 

Andstaða við bóluefni og átök í Evrópu

Andrew Wakefield, þáver­andi læknir í Bret­landi, gaf út skýrslu árið 1998 þar sem hann lýsti orsaka­sam­bandi á bólu­efnum við sjúk­dómum á borð við misl­inga og ein­hverfu í ungum börnum. Hreyf­ingar gegn bólu­efnum hafa rutt sér til rúms á 21. öld. 

Vaxandi and­staða fólks gegn bólu­efnum kann að skýra aukin smit og dauðs­föll að ein­hverju leyti, hins vegar má rekja hátt hlut­fall nýrra smita til Úkraínu, þar sem aðgerðir upp­reisn­ar­manna gegn stjórn­völdum hafa skapað ástand þar sem smit­sjúk­dómar ber­ast auð­veld­lega ásamt því að bólu­efni ber­ast illa á milli staða.

Í skýrslu sinni kall­aði Alþjóða Heil­brigð­is­mála­stofn­unin eftir auknu eft­ir­liti með bólu­setn­ingum. Í sept­em­ber munu öll aðild­ar­lönd stofn­un­ar­innar í Evrópu taka þátt í að móta Aðgerð­ar­á­ætlun Bólu­setn­inga í Evrópu á fjög­urra daga ráð­stefnu sem haldin verður í Róm. 

Fram kom í fréttum í vor að misl­inga­smit­aður ein­stak­lingur hefði verið í tveimur flug­ferðum Icelandair 30. maí síð­ast­lið­inn til og frá Íslandi. Þá var maður með smit­andi misl­inga um borð í vélum WOW air 18. júlí síð­ast­lið­inn í flugi frá London til Kefla­vík­ur­flug­vallar, og þaðan til Detroit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár