Marta segir Líf hafa ullað á sig

Marta Guð­jóns­dóttir krefst þess að Líf Magneu­dóttir biðji sig opin­ber­lega afsök­unar á dóna­skapnum.

Marta segir Líf hafa ullað á sig
Ullaði á Mörtu Marta Guð­jóns­dóttir er hin reið­asta yfir dóna­legri fram­komu Lífar Magneu­dóttur

Líf Magneu­dóttir, borg­ar­full­trúi Vinstri grænna, rak út úr sér tung­una framan í Mörtu Guð­jóns­dóttur, borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á fundi borg­ar­ráðs í dag eftir að Marta hafði starað á hana.

Líf bað Mörtu afsök­unar í fund­ar­hléi, en Marta seg­ist líta svo á að það hafi hún aðeins gert til að reyna að koma í veg fyrir að Marta myndi bóka um hegð­un­ina. „Hún bað mig afsök­unar í fund­ar­hléi, þegar hún var orðin þess áskynja að ég ætl­aði að bóka um málið. Ég lít svo á að með því hafi hún verið að reyna að koma í veg fyrr að ég leggði fram bók­un­ina. Hafi hún meint eitt­hvað með því að hún vildi biðja mig afsök­unar, þá hefði hún átt að bóka þá afsökun eða birta á opin­berum vett­vangi. Henni var það í lófa lagið þar sem ég lét hana vita að ég hyggð­ist bóka um málið, og sendi henni bók­un­ina á fund­inum sjálfum,” segir Marta í sam­tali við Stundina.

Marta, aðrir full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins i borg­ar­ráði og Vigdís Hauks­dóttir, áheyrn­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, lögðu síðan fram bókun þar sem alvar­legar athuga­semdir voru gerðar við fram­komu Lífar. „Ég krefst þess að Líf Magneu­dóttir sýni sóma sinn í að biðja mig afsök­unar afsök­unar, á opin­berum vett­vangi, fyrir þennan dóna­skap,” segir Marta í sam­tali við Stundina.

Í fund­ar­gerð borg­ar­ráðs frá því í dag kemur fram að þær Marta og Vigdís hafi lagt fram svohljóð­andi bókun:

Alvar­legar athuga­semdir eru gerðar við fram­komu til­tek­ins borg­ar­ráðs­full­trúa meiri­hlut­ans, full­trúa Vinsti grænna, í upp­hafi fundar. Það er ekki sæm­andi að borg­ar­full­trúar leyfi sér þá óhátt­vísi og dóna­skap að ulla framan í aðra full­trúa. Gera verður þá kröfu til kjör­inna full­trúa að þeir setji fram mál sitt með mál­efna­legum hætti og sýni hverjir öðrum almenna kurt­eisi. Ljóst er að full þörf er á þeim sam­skipta­reglum sem full­trúi Flokks Fólksins hefur lagt fram en þar kemur einmitt fram að kjörnir full­trúar leyfi sér ekki dóna­skap á borð við grettur og geiflur eins og gert var í því til­felli sem fram kemur hér að ofan.

Í sam­tali við Stundina seg­ist Marta furðu lostin yfir hegðun Lífar. „Líf sýndi mér bara dóna­skap og virð­ing­ar­leysi þegar hún rak framan í mig tung­una vegna mál­flutn­ings míns, sem ég get ekki haft eftir þar sem trún­aður ríkir um fundi borg­ar­ráðs. Mér finnst þetta ekki sæm­andi kjörnum full­trúa, eða full­orð­inni mann­eskju ef út í það er farið. Það hlýtur að vera hægt að gera þá kröfu á kjörna full­trúa að þeir kunni að haga sér.“

Marta segir enn fremur að hún furði sig á þess­ari fram­komu Lífar, ekki síst í ljósi þess að tals­verð umræða hafi verið um sam­skipta­mál innan borg­ar­stjórnar upp á síðkastið. Þannig hafi Kolbrún Bald­urs­dóttir, borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, lagt til að settar yrðu sam­skipta­reglur í borg­ar­stjórn. „Þessi fram­koma Lífar ýtir bara undir að það verði gert, það er greini­lega full þörf á,” segir Marta.

Uppfært kl. 21:00

Líf Magneu­dóttir tjáir sig um málið á Facebook. Hún skrifar:

„Hvað gerir maður þegar ein­hver starir á mann í lengri tíma af miklu yfir­læti og van­þóknun í þrúg­andi og kúg­andi aðstæðum eftir að maður hefur verið mál­efna­legur og sann­gjarn í sínum mál­flutn­ingi en fær ómál­efna­leg við­brögð á móti? Jú - maður reynir að slá þessu öllu upp í grín og létta and­rúms­loftið og losa sig úr störu­keppn­inni með því að ulla bara á við­kom­andi, lyfta brúnum og brosa.

Það er nú fokið í flest skjól ef það má ekki sýna nein svip­brigði og vera geð­ríkur, segja lélega eða góða brand­ara eða gera til­raunir til að létta á súrum sam­skiptum fólks með létt­leika. Ó jæja.

Þetta mál er löngu búið af minni hálfu og því lauk strax í morgun þegar ég bað Mörtu afsök­unar kunni ég að hafa sært hana með þessu glensi. Nóg um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár