Mynd: Shutterstock

Barnahús taldi föður hafa brotið gegn börnum en ráðuneytið vill kanna hvort afstaða þeirra litist af „neikvæðu viðhorfi móður“

Sýslu­maður taldi gögn frá læknum og frá­sagnir barna af meintu kyn­ferð­is­of­beldi hafa „tak­mark­aða þýð­ingu“. Dóms­mála­ráðu­neytið leggur áherslu á að í Barna­húsi hafi sjónum verið beint að hugs­an­legu ofbeldi en ekki því hvort börnin vilji umgang­ast mein­tan ger­anda. Nú þurfi að „kom­ast að því hver raun­veru­legur vilji barn­anna sé“.

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur fellt úr gildi umgengn­is­úr­skurð sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í máli þar sem sýslu­manns­emb­ættið taldi lækna­bréf, upp­lýs­ingar úr Barna­húsi, álit sál­fræð­inga og frá­sagnir barna af meintum kyn­ferð­is­brotum föður þeirra hafa „tak­mark­aða þýð­ingu“ og sló því föstu að van­líðan barn­anna væri sprottin af „tengsl­arofi“ þeirra við föður.

Í mál­inu liggja fyrir loka­skýrslur úr Barna­húsi þar sem fram kemur að „brot og fram­koma föður“ hafi haft „mikil áhrif á líðan“ barn­anna og bréf barna­geð­læknis sem taldi það að þvinga börnin til umgengni við föð­ur­inn „lækn­is­fræði­lega ekki for­svar­an­legt“ og ótt­að­ist að slíkt gæti haft „var­an­leg áhrif á þroska og geð­heilsu þeirra til fram­tíðar“. 

Yfir­maður ráðu­neyt­is­insSigríður Andersen er dóms­mála­ráð­herra en lög­fræð­ingar ráðu­neyt­is­ins kveða upp úrskurði á borð við þann sem hér er fjallað um fyrir hennar hönd.

Dóms­mála­ráðu­neytið leggur hins vegar áherslu á að í Barna­húsi hafi sjónum verið beint að hugs­an­legu kyn­ferð­is­of­beldi en ekki því hvort börnin vilji umgang­ast mein­tan ger­anda. 

Telur ráðu­neytið brýnt að „kom­ast að því hver raun­veru­legur vilji barn­anna sé og hvort það kunni að vera að hann sé lit­aður af nei­kvæðum við­horfum móður í garð föður“.

Er það einkum á þessum grund­velli sem ráðu­neytið hefur fellt úrskurð sýslu­manns úr gildi og beint því til emb­ætt­is­ins að taka málið til með­ferðar á ný. 

Ólíklegt til sakfellis

Tæpt var á umræddu máli í frétta­skýr­ingu Stund­ar­innar þann 11. maí síð­ast­lið­inn þegar blaðið fjall­aði ítar­lega um rétt­ar­fram­kvæmd í umgengnis- og dag­sekt­ar­málum. 

Við með­ferð máls­ins hjá sýslu­manni voru lögð fram gögn frá barna­geð­lækni og sál­fræð­ingi, bréf skóla­hjúkr­un­ar­fræð­ings, yfir­lýs­ing kenn­ara, til­kynn­ingar leik­skóla, barna­sál­fræð­ings og barna­geð­læknis til barna­vernd­ar­nefndar, kæra til lög­reglu og ítar­legar frá­sagnir barn­anna sjálfra af atvikum hjá föður sem sam­rýmd­ust kyn­ferð­is­legri mis­notkun að mati með­ferð­ar­að­ila. 

Hér­aðs­sak­sókn­ari og rík­is­sak­sókn­ari töldu málið ólík­legt til sak­fellis, meðal ann­ars vegna þess hve langur tími var lið­inn síðan meint brot voru sögð hafa átt sér stað. Sál­fræð­ingur í Barna­húsi sagði þó „brot og fram­komu föður“ hafa haft mikil áhrif á líðan barn­anna sem hefðu áhyggjur af því að þau gætu end­ur­tekið sig. 

Dóms­mála­ráðu­neytið bendir á að við­tölin í Barna­húsi „fóru fram í öðrum til­gangi en að kanna vilja barn­anna til umgengni við föður“. Vill ráðu­neytið að sýslu­maður rann­saki betur vilja barn­anna og kanni hvort and­staða þeirra við að umgang­ast föður sé ef til vill sprottin af nei­kvæðum við­horfum móð­ur­innar í hans garð. 

Vildi að móðir hvetti börn til umgengni
þrátt fyrir frásögn þeirra í Barnahúsi

Ráðu­neytið telur að þótt sér­fræð­ingur í mál­efnum barna hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu eftir nýleg við­töl við börnin að „reglu­leg umgengni við föður sé and­stæð hags­munum barn­anna“ þá hafi sér­fræð­ing­ur­inn ekki metið „hvort eða að hve miklu leyti afstaða barn­anna skýrist af nei­kvæðum við­horfum móður í garð föður“. Þess vegna skuli sýslu­maður taka málið aftur til með­ferðar og ræða við börnin að nýju.

„Brýnt er að kom­ast að því hver raun­veru­legur vilji barn­anna sé og hvort það kunni að vera að hann sé lit­aður af nei­kvæðum við­horfum móður í garð föður,“ segir í úrskurði ráðu­neyt­is­ins. Þetta er í annað sinn sem ráðu­neytið vísar mál­inu aftur til sýslu­manns vegna hnökra á máls­með­ferð­inni þar.

Eins og Stundin greindi áður frá taldi sýslu­maður gögn frá með­ferð­ar­að­ilum og Barna­húsi um meint kyn­ferð­is­of­beldi hafa tak­mark­aða þýð­ingu í ljósi þess að móðir hefði aflað þeirra „ein­hliða“ án þess að sömu með­ferð­ar­að­ilar hefðu rætt við föð­ur­inn. 

Andlit emb­ætt­is­insÞórólfur Hall­dórs­son sýslu­maður hefur lýst því hvernig máls­með­ferð í fjöl­skyldu­málum er afrakstur sam­vinnu starfs­manna og sagst hreyk­inn af sínu starfs­fólki og bera fullt traust til þess.

Nið­ur­staða sýslu­manns var að auka skyldi umgengni barn­anna við föður þeirra til að vinna úr því „tengsl­arofi“ sem hefði orðið milli barna og föður. Dregin var sú ályktun að van­líðan barn­anna mætti rekja til ágrein­ings for­eldr­anna og „afstöðu móður til umgengn­innar“. Móðir, sem sjálf bar við að henni bæri skylda til að vernda börn sín fyrir hvers kyns van­virð­andi hátt­semi og ofbeldi, var sögð hafa „í veiga­miklum atriðum brotið skyldur sínar sam­kvæmt 46. barna­laga [sic]“.

Gaf sýslu­maður móð­ur­inni fyr­ir­mæli um að „gæta þess að börnin finni ein­ungis fyrir jákvæðu við­horfi til föður og fái hvatn­ingu frá henni til að umgang­ast föður“. Var ætl­ast til þessa af móð­ur­inni þrátt fyrir frá­sagnir barn­anna af meintum kyn­ferð­is­brotum og álit sál­fræð­ings og barna­geð­læknis sem töldu börn­unum stafa hætta af umgengni við föð­ur­inn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár