Íslensk nýnasistasíða hýst af hulduaðila á Klapparstíg í gagnaveri Advania

Vefsíða nýnas­ista sem dreifðu áróðri í Hlíða­hverfi er hýst af huldu­fyr­ir­tæk­inu OrangeWebsite sem kaupir þjón­ustu frá Advania. Sama fyr­ir­tæki hýsir fjölda klám- og vænd­is­síðna í íslensku gagna­veri. „Ekki hlut­verk inter­net­þjón­ustu­að­ila að rit­skoða netið,“ segir for­stöðu­maður hjá Advania.

Íslensk nýnasistasíða hýst af hulduaðila á Klapparstíg í gagnaveri Advania
Nýnas­istar dreifðu lím­miðum Hópur sem seg­ist tengj­ast sam­nor­rænum nýnas­ista­sam­tökum dreifði áróðri í Hlíða­hverfi í vik­unni.

Vefsíðan Norð­ur­vígi.is, sem Íslands­deild nýnas­ista­hóps­ins „Norrænu mót­stöðu­hreyf­ing­ar­innar“ heldur úti, er hýst í Thor Data Center, gagna­veri Advania á Íslandi. Huldu­fé­lagið OrangeWebsite er hýs­ing­ar­að­ili síð­unnar, en félagið hýsir fjölda alþjóð­legra klám- og vænd­is­síðna og er skráð til húsa á Klapp­ar­stíg, þótt þar sé enga skrif­stofu að finna. Þar til í sept­em­ber 2017 hýsti félagið eina umsvifa­mestu nýnas­ista­síðu heims, The Daily Stormer, en íslenskt lén síð­unnar var tekið niður af ISNIC í sam­ráði við lög­reglu.

IceNetworks Ltd. er eig­andi OrangeWebsite og er skráð í Mið-Amer­íku­rík­inu Belís, einu af fjöl­mörgum skatta­skjólum heims­ins. Á vef­síðu OrangeWebsite er Advania sagður einn af sam­starfs­að­ilum þess „sem deilir vinnu­sið­ferði og gildum með okkur“. Þar kemur einnig fram að félagið hafi verið stofnað af tveimur skand­in­av­ískum inter­net-áhuga­mönnum, það sé stað­sett á Íslandi og hafi það að mark­miði að „bjóða öllum í heim­inum jöfn tæki­færi til að birta orð sín með frjálsum hætti án þess að verða fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár