Einn öflugasti þjóðfélagsrýnir Íslands er fallinn frá

Jónas Kristjánsson ritstjóri hélt áfram skrifum inn á líknar­deild Land­spítalans, þar sem hann lést í gærmorgun.

Jónas Kristjánsson, sem varð frétta­stjóri aðeins 21 árs gamall og ritstjóri 26 ára, lést í gærmorgun, eftir að hafa haft mótandi áhrif á íslenska blaða­mennsku í hálfa öld. 

Jónas var áratugum saman einn helsti þjóðfélags­rýnir og -gagn­rýnandi landsins. Í skrifum sínum varaði hann við spillingu og skrifaði gegn fátækt og rasisma. 

Allt fram á síðasta mánuð lífs síns hélt hann áfram skrifum, sem birtust með tíðu og reglulegu millibili í staðlaðri lengd á Jónas.is. Í síðustu færslu sinni, sem hann birti á þjóð­hátíðar­deginum 17. júní síðastliðnum, lýsti hann aðstæðum á líknar­deild Land­spítalans.

„Í annað sinn á síðustu hef ég haft þá ánægju að rúlla sem viðskipta­vinur gegnum bráða­deildir og líknar­deildir Land­spítalans. Þar er þröng á þingi, sjúklingar í ofsetnum herbergjum, á göngum og lagerum. Kringum þá stendur þyrping ættingja og koma þá oft ekki bara sjúkdómar við sögu. Kliðurinn berst til annarra hópa og frá einum hópi til annars. Heims­leikarnir eru fólki ofarlega í huga, brauð og leikir fátæka mannsins. Næst kemur lífs­barátta sumra ættingja. Fólk, sem skrapar á 250 þús kr strípuðum taxta­launum, atvinnu­leysis­bótum, örorku, eða elli­launum, er mánaðar­lega í óviðráðanlegum lífs­krísum.“

Jónas starfaði í fjöl­miðlum í rúmlega hálfa öld, lengst af sem ritstjóri. Margir af starfandi blaða- og fjölmiðla­mönnum Íslands hafa unnið með Jónasi Kristjáns­syni sem ritstjóra. Jónas hélt meðal annars úti kennsluvef í blaða­mennsku. Hann var formaður Blaðamanna­félags Íslands og Íslands­nefndar International Press Institute. Jónas skrifaði fjölda bóka, einkum ferða­bækur og hestarit.

Foreldrar Jónasar voru Anna Péturs­dóttir bókari og Kristján Jónasson læknir. Jónas var fæddur í Reykjavík 5. febrúar 1940. Hann lauk stúdents­prófi frá MR 1959 og var ráðinn frétta­stjóri dagblaðsins Tímans strax tveimur árum síðar. Jónas lauk BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands 1966. 

Jónas missti eiginkonu sína, Kristínu Halldórs­dóttur, fyrr­verandi alþingis­manns, 14. júlí 2016. Börn þeirra eru Kristján jarð­fræðingur, Pálmi frétta­maður og sagn­fræðingur, Pétur kerfis­fræðingur og Halldóra flugmaður.

Halldóra minnist föður síns á Facebook í dag: „Eins og mamma lagði hann sitt að mörkum til að bæta heiminn, 4. valdið var hans leið, fjöl­miðlun og skrif. Pabbi var bráð­skarpur og beittur penni, frumkvöðull og braut­ryðjandi í frjálsri fjöl­miðlun á Íslandi, stefnu­fastur, bein­skeyttur og hrein­skilinn samfélags­gagnrýnir, ég er ákaflega stolt af honum og öllu því sem hann hefur áorkað.“

Sjá færsl­una á Facebook

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár