Sjö útgerðar­eigendur með sex milljarða í fjár­­magns­­­tekjur

Örfáir ein­stak­lingar sem eiga stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækin þén­uðu þús­undir millj­óna í fyrra. Fólkið sem skipu­leggur hags­muna­bar­áttu útgerð­ar­innar og berst gegn veiði­gjöldum fékk sam­tals 924 millj­ónir í fjár­magnstekjur árið 2017.

Sjö aðal­eig­endur þriggja stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækja lands­ins þén­uðu sam­tals 5,9 millj­arða í fjár­magnstekjur árið 2017. Þetta kemur í ljós þegar rýnt er í álagn­ing­ar­skrár rík­is­skatt­stjóra og eign­ar­hald þeirra útgerða sem réðu yfir mestum afla­hlut­deildum í sept­em­ber 2017 sam­kvæmt upp­lýs­ingum Fiski­stofu. 

Tekju­hæst eru Sigríður Vil­hjálms­dóttir og systk­inin Kristján og Birna Lofts­börn, en þau eru eig­endur Hvals hf. í gegnum Fisk­veiða­hluta­fé­lagið Venus og áttu jafn­framt þriðj­ungs­hlut í HB Granda, kvóta­hæsta fyr­ir­tæki lands­ins, allt þar til nú í vor þegar hluta­bréfin voru seld Brimi og for­stjóra þess, Guðmundi Krist­jáns­syni.

Kristján og Birna fengu hvort um sig rúm­lega 1,36 millj­arða í fjár­magnstekjur árið 2017. Gríð­ar­lega athygli vakti á vor­mán­uðum það ár þegar HB Grandi til­kynnti að til stæði að hætta botn­fisk­vinnslu á Akranesi og segja upp 86 manns. Ef gert er ráð fyrir að starfs­menn­irnir hafi verið með að með­al­tali 310 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríka Ísland

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár