Hagfræðinganefnd vill að verðbólgumarkmið Seðlabankans undanskilji húsnæðisverð

Nefnd um pen­inga­mála­stefnu vill auka völd Seðla­bank­ans og taka hús­næð­islið út úr verð­bólgu­mark­miði. Aðstoð­ar­seðla­banka­stjórar verði tveir í stað eins.

Hagfræðinganefnd vill að verðbólgumarkmið Seðlabankans undanskilji húsnæðisverð
Ásgeir Jónsson Í nefnd­inni áttu sæti dr. Ásgeir Jónsson, for­maður, Ásdís Krist­jáns­dóttir og Illugi Gunn­ars­son. Mynd: Af vef Háskóla Íslands

Fjár­mála­stöð­ug­leiki skal hafa for­gang umfram verð­stöð­ug­leika ef ógn skap­ast gagn­vart hinu fyrr­nefnda að mati nefndar um ramma pen­inga­stefnu. Nefndin leggur til aukin völd Seðla­bank­ans og að hús­næð­isliður verði tek­inn út úr verð­bólgu­mark­miði. Þá hafnar nefndin hug­myndum um að koma á fót svo­nefndu mynt­ráði. Skýrsla nefnd­ar­innar var gerð opin­ber í dag.

„Á Íslandi er málum svo háttað að ríf­lega fjórð­ung vísi­tölu neyslu­verðs má rekja til hús­næð­is­verðs,“ segir í skýrsl­unni. „Þetta getur valdið óheppi­legri skörun á milli mark­miða um verð­stöð­ug­leika ann­ars vegar og fjár­mála­stöð­ug­leika hins vegar. Ekki aðeins fyrir þær sakir að Seðla­bank­inn þurfi að beita stýri­vöxtum til þess að hafa hemil á hús­næð­is­verði sem hefur 25% í verð­bólgu­mark­miði bank­ans heldur hafa vextir bank­ans mjög tak­mörkuð áhrif á hús­næð­is­verð sökum þess að vaxta­leiðni hér­lendis frá stýri­vöxtum yfir til lengri verð­tryggðra vaxta er afar veik og töl­fræði­lega ómark­tæk.“

Starfs­hóp­ur­inn segir að hús­næð­is­verð eigi því ekki heima í verð­bólgu­mark­mið­inu og að ekki eigi að reyna beita stýri­vöxtum gegn fast­eigna­verði þegar vaxta­miðl­unin er eins veik og raunin er. „Til þess eru nokkrar leiðir færar, Seðla­bank­inn gæti miðað við aðrar vísi­tölur, svo sem vísi­tölu neyslu­verðs án hús­næðis eða sam­ræmda vísi­tölu neyslu­verðs,“ segir í skýrsl­unni.

Seðlabankinn fær aukna ábyrgð

Nefndin var skipuð þremur hag­fræð­ingum, dr. Ásgeiri Jónssyni, for­manni nefnd­ar­innar, Ásdísi Krist­jáns­dóttur sem starfar hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins og Illuga Gunn­ars­syni, fyrr­ver­andi ráð­herra. Nefndin fékk fjóra erlenda sér­fræð­inga til að veita stjórn­völdum ráð­gjöf um pen­inga- og geng­is­stefnu til fram­tíðar.

Samkvæmt til­lögum nefnd­ar­innar verður ábyrgð Seðla­banka Íslands aukin. Bankinn skal einn bera ábyrgð á þjóð­hags­varúð og einda­varúð í stað þess að ábyrgðin skipt­ist á milli Seðla­bank­ans og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Þá leggur nefndin til að aðstoð­ar­seðla­banka­stjórar verði tveir, einn með áherslu á fjár­mála­stöð­ug­leika og annar með áherslu á hefð­bundna pen­inga­stefnu.

Leggjast gegn myntráði

Nefndin segir Ísland aðeins hafa tvo kosti verði krónan áfram gjald­mið­ill lands­ins. Kost­irnir eru að halda áfram með núver­andi fyr­ir­komu­lag sjálf­stæðrar pen­inga­stefnu með verð­bólgu­mark­miði eða festa gengi krón­unnar með mynt­ráði. Leggst nefndin gegn upp­töku mynt­ráðs og segir það fela í sér áhættu fyrir fjár­mála­stöð­ug­leika. 

„Á síð­ustu fjórum til fimm árum hefur náðst mik­ill árangur við að fram­fylgja verð­bólgu­mark­miðum hér­lendis. Það hefur skilað íslenskum almenn­ingi gríð­ar­legum ábata með mik­illi aukn­ingu kaup­máttar, sam­hliða því að almennt vaxta­stig hefur lækkað. Það er mjög mik­il­vægt að þessum árangri sé fylgt eftir,“ segir í skýrslu nefnd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár