Valur Páll Eftir að hann sætt­ist á að sækja í félags­skap og stuðn­ing jafn­ingja sem glímdu við sam­bæri­lega reynslu, hefur líf hans ger­breyst til hins betra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Það sem ég hef lært af því að vera með krabbamein

Valur Páll var bara þrettán ára þegar hann greind­ist með heila­æxli. Hann deilir reynslu sinni og lær­dómi af bar­átt­unni við krabba­meinið, sigrinum og því sem hann hefur þurft að sætta sig við.

Valur Páll Stefán Valsson greind­ist með æxli við heila­köngul og heila­d­ing­ulsstilk árið 2004, þá 13 ára gam­all. Við tók lyfja­með­ferð og stað­bundin geisla­með­ferð og tókst að fjar­lægja meinin.

Hann greind­ist svo aftur átta árum síðar og þá á enn verri stað að eigin sögn, hjá hippocampus, eða drek­anum, sem hefur tengsl við minnið, og aftur við heila­d­ing­ulsstilk. Þá tók við mjög ströng og erfið með­ferð, svokölluð háskammta­lyfja­með­ferð, og þá var allur heil­inn og mænan geisluð. Hann deilir hér með les­endum hvað hann hefur lært af þess­ari reynslu.

1. Að heilsan er ekki sjálfgefin og maður á að vera þakklátur fyrir góða heilsu

Þegar ég greind­ist í apríl árið 2004 var ég búinn að vera slappur í langan tíma, mér var alltaf kalt, ég þurfti að drekka mikið og kasta þvagi oft, hafði óvenju­lítið úthald og þurfti að hætta í fót­bolt­anum. Ég var lyst­ar­laus og mér var oft …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár