Sindri og myndin The Three Dogateers er hunda­út­færsla á Skytt­unum þremur sem fær dræma dóma en skil­aði vel í aðra hönd. Mynd: Heiða Helgadóttir

Tapaði öllu en er kominn aftur á toppinn

Sindri Már Finn­boga­son missti fyr­ir­tækið sem hann stofn­aði í hrun­inu, brann út í starfi í Danmörku og flutti til Los Angeles þar sem hann fram­leiddi kvik­mynd sem fékk væg­ast sagt dræma dóma. Hann hafði lítið sem ekk­ert á milli hand­anna þegar hann flutti aftur til Íslands fyrir þremur árum og stofn­aði miða­sölu­vef­inn Tix.is, sem nú er með yfir níu­tíu pró­sent mark­aðs­hlut­deild á Íslandi og kom­inn í útrás í Skand­in­avíu.

Hinn 1. nóv­em­ber 2014 sett­ist Sindri Már Finn­boga­son niður við skrif­borðið sitt að Grjóta­götu 7 og leit í kringum sig. Þessi skrif­stofa var alltof stór fyrir hann. Á víð og dreif lágu pappa­kassar og skrif­stofu­hús­gögnin höfðu enn ekki fengið sinn eigin sama­stað. Sindri hafði mán­uði fyrr stofnað miða­sölu­vef­inn Tix.is og var enn eini starfs­mað­ur­inn. Og nú var hann kom­inn með skrif­stofu og ætl­aði í sam­keppni við fyr­ir­tækið sem hann stofn­aði tíu árum fyrr, fyr­ir­tæki sem hafði átt allan mark­að­inn und­an­farin ára­tug. Hvað í fjand­anum var hann að hugsa?

Á ein­ungis þremur árum hefur miða­sölu­vef­ur­inn Tix.is tekið yfir miða­sölu­mark­að­inn á Íslandi, er kom­inn með yfir 90 pró­sent mark­aðs­hlut­deild og kom­inn í útrás í Skand­in­avíu. „Þetta gerð­ist ótrú­lega hratt og var mjög erfitt á tíma­bili. Ég var í raun bara hér, allan sól­ar­hring­inn, að for­rita og ham­ast.“ 

Blaða­maður Stund­ar­innar heim­sótti Sindra og fékk að heyra sög­una að baki Tix.is. 

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár