Ríkissaksóknari segir varðveislu gagna ekki hafa verið ábótavant í máli Roberts Downey

Sigríður J. Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari segir til­kynn­ingu lög­reglu til Önnu Katrínar Snorra­dóttur, um að gögnum í máli Roberts Downey hafi verið eytt, byggða á mis­skiln­ingi

Ríkissaksóknari segir varðveislu gagna ekki hafa verið ábótavant í máli Roberts Downey
Var að sagt að gögn­unum hefði verið eytt Önnu Katrínu Snorra­dóttur var til­kynnt í síð­asta mán­uði að öllum gögnum í fyrra saka­máli Róberts Downey hefði verið eytt. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ekkert bendir til þess að gögn í máli Roberts Downey hafi týnst eða að þeim hafi verið eytt á skjön við verk­ferla. Þetta kom fram á opnum fundi í alls­herjar- og mennta­mála­nefndar um varð­veislu sönn­un­ar­gagna í saka­málum í dag, en þetta stang­ast á við það sem Önnu Katrínu Snorra­dóttur hafði verið greint frá af lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sigríður J. Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari sagði að um ákveð­inn mis­skiln­ing væri að ræða. 

Fulltrúi Pírata í nefnd­inni, Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, óskaði eftir því að nefndin héldi opinn fund en til­efni fund­ar­ins er frétta­flutn­ingur af málum er varða varð­veislu sönn­un­ar­gagna, meðal ann­ars frétt þess efnis að öllum sönn­un­ar­göngum í máli Roberts Downey, þá Róberts Árna Hreið­ars­sonar, hafi verið eytt. Einnig var til umræðu hvarf verð­mæta úr hús­leitum tengdum kampa­víns­klúbbnum Strawberries og Frétta­blaðið greindi frá í síð­ustu viku. Gestir fund­ar­ins voru Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra, Sigríður J. Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari og Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri.

Misskilningur varðandi varðveislu gagnanna

Stundin greindi frá því þann 14. des­em­ber síð­ast­lið­inn að lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefði til­kynnt Önnu Katrínar Snorra­dóttur, sem kærði Robert fyrir kyn­ferð­is­brot í sumar, að lög­reglan á Suð­ur­nesjum hefði eytt öllum gögnum í mál­inu. Þegar hún lagði fram kæru í sumar treysti hún því að lög­regla ætti enn afrit af myndum og tölvu­sam­skiptum sem gerð voru upp­tæk við hús­leit á heim­ili Roberts árið 2005, en hún taldi víst að þar væri að finna gögn sem styddu frá­sögn hennar. 

Við hús­leit heima hjá Roberti fund­ust meðal ann­ars tveir far­símar, fjögur sím­kort og minn­is­bók sem inni­hélt 335 kven­mannsnöfn með ýmist eða bæði síma­núm­erum eða net­föngum. Athygli vakti að við umrædd kven­mannsnöfn mátti víða sjá skráðar tölur sem lög­regla taldi vísa á aldur stúlkn­anna. Í tölvum Roberts fannst að auki tölu­vert magn af barnaklámi, alls 225 ljós­myndir sem lög­regla flokkar sem barnaklám. Á heim­ili hans fund­ust einnig fimm mynd­bands­spólur sem sýna börn á kyn­ferð­is­legan og klám­feng­inn hátt.  

Þann 13. des­em­ber fékk hún hins vegar sím­tal frá Árna Þór Sig­munds­syni yfir­manni hjá kyn­ferð­is­brota­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem henni var til­kynnt að gögn­unum hafi verið eytt. Eyðing gagn­anna mun hafa verið bók­færð hjá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesj­unum 24. febr­úar 2015. Ólafur Helgi Kjart­ans­son, lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, þvertók hins vegar fyrir að gögnum hafi verið eytt í máli Roberts Downey hjá emb­ætt­inu og sagði gögn í mál­inu hafi verið send til Reykja­víkur á sínum tíma.

Í máli Sigríðar J. Frið­jóns­dóttur rík­is­sak­sókn­ara kom fram að um ákveð­inn mis­skiln­ing væri að ræða í mál­inu. Í saka­mál­inu gegn Róberti Árna Hreið­ars­syni, eins og hann hét þá, hefðu sönn­un­ar­gögnin fylgt mál­inu til dóms­ins á sínum tíma. Minn­is­bókin fylgdi mál­inu með gögnum máls­ins til Hæsta­réttar og sömu­leiðis sé til afrit af henni hjá Rík­is­sak­sókn­ara. Hins vegar hafn­aði dóm­ur­inn upp­töku á tölvum sem voru hald­lagðar í mál­inu og þeim bar því að eyða, hafi ekki verið gert til­kall til þeirra af hálfu eig­anda, það er Róberti Árna. „Í sjálfu sér var ekk­ert þarna sem hafði mis­farist,“ sagði Sigríður. 

Verklagsreglur brotnar

Varðandi Strawberries-málið svo­kall­aða sagði Sigríður að eitt­hvað hafi aug­ljós­lega farið úrskeiðis í verk­lag­inu þar, en svo virð­ist sem verð­mæti sem hald­lögð voru árið 2013 við hús­leit sem tengd­ist kampa­víns­klúbbnum Strawberries hafi horfið úr vörslu lög­reglu. Um var að ræða ýmsa skart­gripi, hringi, Rolex-úr, hálskeðjur og bind­isnælur sem fund­ust í svörtu veski í pen­inga­skáp inni í bíl­skúr. Munirnir voru allir skráðir í muna­skrá lög­reglu en svo virð­ist sem þeir hafi aldrei skilað sér í muna­vörsl­una sjálfa.

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur hætt rann­sókn í mál­inu og hefur kær­and­inn mánuð til að kæra þá ákvörðun. Málið getur því enn komið á borð rík­is­sak­sókn­ara og gat Sigríður því ekki tjáð sig nánar um það. 

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sagði málið litið mjög alvar­legum augum innan emb­ætt­is­ins. „Munirnir hafa ekki komið í leit­irnar þrátt fyrir ítar­lega leit. Þetta hefur verið skoðað innan emb­ætt­is­ins með eins nákvæmum hætti og mögu­legt er. Það var settur starfs­maður í það þegar þetta kemur upp og við þá skoðun, sem fólst meðal ann­ars í sam­tölum við þá sem koma að hús­leit­inni og hald­lagn­ingu mun­anna á sínum tíma, þarna 2013. Þá kemur í ljós að það hefur ekki verið fylgt verk­lags­reglum vegna þess að hlut­irnir skila sér ekki inn í muna­vörsl­una. Til stendur að end­ur­skoða verk­ferla til að koma í veg fyrir að þetta geti komið fyrir aftur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár