Mynd: Pressphotos.biz

Guðlaugur efast um mat dómnefndar á reynslu Ingiríðar og Daða en formaður nefndarinnar telur hann vera á villigötum

Settur dóms­mála­ráð­herra hefur áhyggjur af því að reynsla Ingiríðar Lúð­víks­dóttur setts hér­aðs­dóm­ara og Daða Krist­jáns­sonar sak­sókn­ara sé ofmetin í umsögn dóm­nefndar, og að það halli á hæsta­rétt­ar­lög­menn­ina Jónas Jóhanns­son og Indriða Þor­kels­son.

Jakob R. Möller, for­maður nefndar sem metur hæfni umsækj­enda um emb­ætti hér­aðs­dóm­ara, gefur lítið fyrir gagn­rýni Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, setts dóms­mála­ráð­herra, á hæfn­is­mat nefnd­ar­innar.

Guð­laugur sendi nefnd­inni harð­ort bréf á dög­unum þar sem gerðar voru athuga­semdir við umsögn um hæfni umsækj­enda í tíu liðum og þess kraf­ist að nefndin „útskýrði betur með hvaða hætti matið var fram­kvæmt“. 

Af bréf­inu má ráða að settur dóms­mála­ráð­herra hafi áhyggjur af því að reynsla Ingiríðar Lúð­víks­dóttur setts hér­aðs­dóm­ara og Daða Krist­jáns­sonar sak­sókn­ara sé ofmetin í umsögn dóm­nefndar, en að það halli á hæsta­rétt­ar­lög­menn­ina Jónas Jóhanns­son og Indriða Þor­kels­son. 

Guð­laugur gagn­rýnir sér­stak­lega að hæfn­is­nefndin hafi ekki „not­ast við stiga­töflu“ við mat á umsækj­endum, svo sem Excel-for­ritið eins og gert var þegar lagt var mat á hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti við Lands­rétt. 

Þetta er athygl­is­vert í ljósi þess að þegar skipun dóm­ara við Lands­rétt var til umfjöll­unar á Alþingi hafði dóms­mála­ráð­herra á orði að menn yrðu að „hefja sig yfir“ Excel-skjölin og að mat á hæfni umsækj­enda mætti ekki vera vél­rænt.

Nú, eftir að dóm­nefndin hvarf aftur til fyrra fyr­ir­komu­lags og not­aði svokölluð skor­blöð til upp­röð­unar umsækj­endum, er þannig nefndin gagn­rýnd fyrir að haga vinnu­brögðum sínum ekki með þeim hætti sem hún var gagn­rýnd fyrir í Lands­rétt­ar­mál­inu. Sem kunn­ugt er var gengið fram­hjá því hæfn­is­mati með ólög­legum hætti eins og Hér­aðs­dómur Reykja­víkur og Hæsti­réttur Íslands hafa stað­fest.

Nefndin fylgdi sama verklagi og áður tíðkaðist 

Svar Jakobs R. Möllers, for­manns dóm­nefnd­ar­innar, við aðfinnslum Guðlaugs Þórs barst í gær og birt­ist á vef Stjórn­ar­ráðs­ins. Þar er áréttað sér­stak­lega að dóm­nefndin lúti ekki boð­valdi ráð­herra og eigi að vera sjálf­stæð og óháð, enda hafi lögin sem nefndin starfar eftir verið sett með það að mark­miði að styrkja sjálf­stæði dóm­stóla og auka traust almenn­ings á því að dóm­arar séu óháðir hand­höfum fram­kvæmda­valds. Þessu til stuðn­ings er vísað sér­stak­lega í nýlegan dóm Hæsta­réttar um lög­brot dóms­mála­ráð­herra við skipun dóm­ara við Lands­rétt.  

Guð­laugur Þór Þórð­ar­sonutan­rík­is­ráð­herra og settur dóms­mála­ráð­herra

Í bréf­inu sem ráðu­neyt­is­stjóri utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sendi dóm­nefnd­inni fyrir hönd Guðlaugs Þórs er gerð athuga­semd við að dóm­nefndin hafi ekki not­ast við „stiga­töflu“ við röðun umsækj­enda eins og gert var í umsögn dóm­nefndar um umsækj­endur um dóm­ara­emb­ætti við Lands­rétt. „Vinnu­brögð nefnd­ar­innar virð­ast því vera í ósam­ræmi við fyrri fram­kvæmd hennar,“ segir í bréfi Guðlaugs.

Þessu svarar for­maður dóm­nefnd­ar­innar með því að benda á að Excel og þess lags töflur hafi ekki verið not­aðar í störfum nefnd­ar­innar fyrr en við skipun Lands­rétt­ar­dóm­ara í maí 2017. Jafn­framt verði að hafa í huga að tölu­leg sam­lagn­ing­ar­tæki sem notuð eru við mat á hæfni umsækj­enda séu mis­mun­andi og ráð­ist meðal ann­ars af fjölda umsækj­enda og sam­setn­ingu umsækj­enda­hóps. „Um þetta atriði er ann­ars rétt að nefna að vinnu­brögð nefnd­ar­innar voru í sam­ræmi við störfin frá setn­ingu reglna nr. 620/2010, með því eina frá­viki, sem nefnt hefur verið, um excel skjal dóm­nefndar í maí 2017“. 

Gerir athugasemd við mat á dómarareynslu Ingiríðar

Í bréfi Guðlaugs var fundið að því að Ingiríði Lúð­víks­dóttur, sem hefur átta ára reynslu sem settur dóm­ari og sex ára reynslu sem aðstoð­ar­maður dóm­ara, sé raðað efst á sviði dóm­ara­reynslu, en Jónasi Jóhanns­syni sem „var skip­aður hér­aðs­dóm­ari í um tutt­ugu ár“ raðað skör lægra. 

Jónas Jóhanns­sonhæsta­rétt­ar­lög­maður og fyrr­ver­andi hér­aðs­dóm­ari

Jakob Möller bendir á að Jónas var fyrstu þrjú árin full­trúi áður en  umfangs­miklar rétt­ar­fars­breyt­ingar komu til fram­kvæmda árið 1992.

„Taldi nefndin störf við sýslu­manns­emb­ætti / bæj­ar­fó­geta­emb­ætti vega mjög miklu minna en störf við hér­aðs­dóm­stóla eftir þann tíma. Við­kom­andi umsækj­andi hefur sinnt dóm­ara­störfum í um 16 ár, en ekki 20, að teknu til­liti til leyfa. Enn er þess að gæta að við­kom­andi umsækj­andi hefur ekki sinnt dóm­störfum frá lokum ágúst 2008,“ segir í bréfi Jakobs.

Bent er á að Ingiríður hafi sinnt dóm­störfum nær sam­fellt síð­ustu átta ár og áður starfað sem sem aðstoð­ar­maður dóm­ara í um sex ár. 

Ingiríður Lúð­víks­dóttirsettur hér­aðs­dóm­ari

Í þessu sam­hengi er jafn­framt til­greint að nefndin líti svo á, í sam­ræmi við fyrri umsagnir, að reynslan af fyrstu starfs­árum í hverju starfi vegi að öðru jöfnu til­tölu­lega þyngst við mat á langri starfs­reynslu.

Þá er vitnað í ummæli umboðs­manns Alþingis um að við ráðn­ingar opin­berra starfs­manna sé æski­legt, í stað þess að ein­blína á lengd starfs­reynslu í árum talið, að líta til inn­taks starfs­reynsl­unnar, svo sem hve vel umsækj­andi hafi staðið sig í starfi og hvernig starfs­reynslan muni nýt­ast í starf­inu sem verið er að ráða í. 

Lögmannsstörf Indriða „hvorki fjölbreytt né umfangsmikil“

Í bréfi sínu til dóm­nefndar gagn­rýndi Guð­laugur Þór að Indriða Þor­kels­syni, lög­manni með yfir þriggja ára­tuga reynslu, væri raðað í 8. til 10. sæti í mats­þætti um lög­manns­störf í umsögn dóm­nefndar.

Indriði Þor­kels­sonhæsta­rétt­ar­lög­maður

Jakob Möller svarar með vísan til þess að nefndin hafi tekið til­lit til fjöl­breytni í lög­manns­störfum, mis­mun­andi eðlis starfa umsækj­enda og fjölda og mik­il­vægis dóms­mála. 

Um Indriða Þor­kels­son skrifar Jakob: „Sá umsækj­andi sem ráð­herra sýn­ist vera að vísa til hlaut lög­manns­rétt­indi árið 1985, en full rétt­indi til mál­flutn­ings fyrir Hæsta­rétti ekki fyrr en 2009. Langmest af starfs­tíma sínum hefur hann starfað sem full­trúi ann­ars/ann­arra lög­manna og þannig eru hagir hans nú. Samkvæmt opin­berum gögnum verður hvorki séð að lög­manns­störf hans hafi verið fjöl­breytt né umfangs­mikil. Þótt umsækj­and­inn hafi sinnt mik­il­vægum þjóð­lendu­málum und­an­farin ár, verður ekki litið fram­hjá því, að það hefur hann gert sem full­trúi ann­ars lög­manns en ekki sem sjálf­stætt starf­andi lög­maður með þá ábyrgð því fylgir.“ Þá er vísað til þess að sjálf­stæður lög­maður ber ábyrgð á fjár­vörslu full­trúa lög­manns og jafn­framt fébóta­á­byrgð á störfum hans að öðru leyti. 

Rangt að reynsla Daða sé tvítalin

Guð­laugur Þór gerði athuga­semd við að Daði Krist­jáns­son, sem starfað hefur sem sak­sókn­ari um ára­bil, fengi „þá reynslu metna í tvígang, ef svo má að orði kom­ast, að minnsta kosti að ein­hverju leyti“. Þetta finnst Guðlaugi ómál­efna­legt.

Jakob Möllerfor­maður dóm­nefndar

Jakob Möller segir rangt að reynslan hafi verið „tví­talin“. Þegar mál­flutn­ings­reynsla Daða var metin hafi verið tekið til­lit til stjórn­sýslu­r­eynsl­unnar og hún dregin frá, og á hinn veg­inn þegar stjórn­sýslu­r­eynslan var metin; þá hafi mál­flutn­ings­reynslan verið dregin frá. Daði hafi ein­fald­lega veru­lega reynslu, bæði á sviði mál­flutn­ings og stjórn­sýslu.

„Sakamál eru veru­legur hluti mála sem koma fyrir hér­aðs­dóm­stól­ana. Er því aug­ljós­lega mik­il­vægt að við þá starfi dóm­arar með hald­góða reynslu af með­ferð saka­mála,“ skrifar Jakob. 

Guð­laugur Þór gerði fleiri athuga­semdir við mat og vinnu­brögð dóm­nefnd­ar­innar, og er þeim svarað í bréfi Jakobs Möllers. Hér má sjá bréf Guðlaugs og hér er bréf Jakobs. Með Jakobi í dóm­nefnd­inni eru þau Guðrún Björk Bjarna­dóttir, Kristín Bene­dikts­dóttir, Ragn­heiður Harð­ar­dóttir og Ragn­hildur Helga­dóttir. Hér má nálg­ast umsögn hennar í heild.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár