Segir vont ef yfirlýstir miðjuflokkar geti ekki talað saman og leitað lausna

„Það er erfitt að horfa upp á femíníska kollega mína í Vinstri grænum gang­ast svo fús­lega við mögu­leik­anum á sam­starfi við flokk sem bein­línis vinnur gegn hags­munum kvenna,“ segir Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, aðal­samn­inga­maður Pírata í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum.

Segir vont ef yfirlýstir miðjuflokkar geti ekki talað saman og leitað lausna

Píratar kalla eftir því að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Viðreisn reyni að sætt­ast og finna sam­starfs­fleti svo hægt sé að halda áfram stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum vinstri- og miðju­afla í íslenskum stjórn­málum. Í ljósi hneyksl­is­mála und­an­far­inna miss­era sé slíkt heilla­væn­legra en að hleypa Sjálf­stæð­is­flokknum eða nýstofn­uðum flokki Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar til valda.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, aðal­samn­inga­maður Pírata í við­ræðum um myndun rík­is­stjórnar, segir í sam­tali við Stundina að sér þyki stór­und­ar­legt að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Viðreisn, tveir yfir­lýstir miðju­flokkar, skuli ekki setj­ast niður og leita lausna. „Leið­togum þess­ara tveggja flokka hefur verið tíð­rætt um ábyrg og stöðug stjórn­mál á opin­berum vett­vangi en neita þó að axla þessa ábyrgð og finna sam­vinnu­fleti svo hægt sé að mynda rík­is­stjórn án ráð­herra sem tóku þótt í yfir­hylm­ing­unni sem sprengdi síð­ustu rík­is­stjórn,“ segir hún. „Þess í stað kýs áhrifa­fólk í báðum flokkum að standa í ein­hverri póli­tískri stöðu­töku í fjöl­miðlum án þess að taka nokk­urt til­lit til stærri hags­muna. Dæmi um þetta eru stað­hæf­ingar áhrifa­fólks í Viðreisn um að ESB málið sé skil­yrði flokks­ins fyrir þátt­töku í stjórn­ar­myndun. Þetta sögðu þau þótt aug­ljóst sé að þetta er gjör­sam­lega óraun­hæft skil­yrði í því póli­tíska lands­lagi sem mynd­ast hefur eftir kosn­ingar.“ 

Hún segir það vera for­manni Við­reisnar til hróss að hafa dregið í land og rétt fram sátt­ar­hönd með yfir­lýs­ingu um að ESB yrði ekki skil­yrði fyrir þátt­töku Við­reisnar í rík­is­stjórn. „En í stað þess að taka aug­ljósu sátt­ar­boði Þor­gerðar Katrínar kýs vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Lilja Alfreðs­dóttir, að væna Viðreisn um heil­agt stríð í póli­tískum til­gangi morg­un­inn eftir. Þetta þykir mér hvorki bera merki um þroska né ábyrgð af hálfu flokka sem stöðugt segj­ast engan úti­loka til sam­starfs. Beri þeim ekki gæfa til að setja ágrein­ings­mál sín til hliðar og í það minnsta tala saman munu þau eiga sinn þátt í því að leiða flokk­inn sem hylmdi yfir í upp­reist æru mál­inu aftur í sömu stóla og þau hafa misst vegna leynda­hyggju og sér­hags­muna.“

Greint hefur verið frá því í fréttum að óform­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­þreif­ingar hafi staðið yfir und­an­farna daga milli Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks, þar sem litið er til sam­starfs við Sam­fylk­ing­una eða Fram­sókn­ar­flokk­inn. Þór­hildur Sunna hefur áhyggjur af þessu. „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ekki geng­ist við því að hafa gert neitt rangt, hvorki í mál­unum er varða upp­reist æru kyn­ferð­is­brota­manna né í öðrum málum þar sem er aug­ljóst að farið var illa með vald og umboð almenn­ings. Ég tel það hættu­lega braut að halda sig geta end­ur­hæft Sjálf­stæð­is­flokk­inn þegar hann getur ekki geng­ist við einum ein­ustu mis­tökum, hvað þá við­ur­kennt að nokkuð athuga­vert hafi átt sér stað í valda­tíð hans. End­ur­hæf­ing er ekki mögu­leg þeim sem neita að líta í eigin barm,“ segir hún. „Eins finnst mér erfitt að horfa upp á femíníska kollega mína í Vinstri grænum gang­ast svo fús­lega við mögu­leik­anum á sam­starfi við flokk sem bein­línis vinnur gegn hags­munum kvenna í sínum eigin ranni, sem og gagn­vart þolendum kyn­ferð­is­of­beldis. Ég bind vonir við að þeim snú­ist hugur og víki af þess­ari braut í átt til frjáls­lynd­ari og jafn­rétt­is­sinn­aðri flokka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár