Prófessorafélagið telur áform rektors fela í sér lögbrot og aðför að akademísku frelsi

Sæmundur Sveinsson, rektor við Land­búnaðar­háskóla Íslands, vill reka prófessor án áminningar í kjölfar gagnrýni hennar á samstarfs­menn. Stjórn Félags prófessora við ríkis­háskóla hefur sent rektor og menntamála­ráðherra harðort bréf vegna málsins.

Stjórn Félags prófessora við ríkis­háskóla telur að áform Sæmundar Sveins­sonar, rektors Land­búnaðar­háskóla Íslands, um að segja Önnu Guðrúnu Þórhalls­dóttur, prófessor við skólann, upp störfum án undan­genginnar áminningar feli í sér skýlaust brot á lögum. Áform rektors séu á skjön við lög um réttindi og skyldur starfs­manna ríkisins og gangi gegn meðalhófs­reglu stjórnsýslu­laga. Í ljósi þess að tilefni uppsagnarinnar er gagnrýni Önnu Guðrúnar á samstarfs­menn sína stangist framganga rektors einnig á við málfrelsis­ákvæði stjórnar­skrár og grundvallar­gildi um akademískt frelsi háskóla­kennara. 

Þetta kemur fram í harðorðri ályktun frá stjórn Félags prófessora við ríkis­háskóla sem send var rektor og háskóla­ráði Land­búnaðar­háskóla Íslands og Kristjáni Þór Júlíussyni, starfandi mennta- og menningar­mála­ráðherra. 

Stundin greindi frá því þann 27. október síðastliðinn að Sæmundur Sveinsson hefði tilkynnt Önnu að hann hefði í hyggju að segja henni upp störfum. Anna hafði ekki fengið áminningu og hefur starfað við skólann í 25 ár. Ástæða fyrir­hugaðrar uppsagnar er tölvu­póstur hennar til samstarfs­manna þar sem hún gagnrýndi hvernig staðið var að ráðstefnu um land­græðslu og lofts­lagsmál í Hörpu síðasta vor. Sjálfur sat Sæmundur í undir­búnings­nefnd vegna ráðstefnunnar og kom að skipulagningu hennar. Siðanefnd skólans komst að þeirri niður­stöðu um miðjan október að tiltekin ummæli í tölvu­pósti Önnu væru á skjön við ákvæði siða­reglna og dró Anna ummæli sín til baka í kjölfarið.

Eftir að rektor brást við áliti siða­nefndarinnar með tilkynningu um fyrir­hugaða uppsögn Önnu Guðrúnar steig einn af meðlimum siða­nefndarinnar, Jón Ásgeir Kalmansson, fram og gagnrýndi viðbrögð rektors sem hann taldi fráleit. „Brott­rekstur akademísks starfs­manns í kjölfar þess að hann tjáir sig á innri vef eigin stofnunar er til þess fallið að grafa undan grundvallar­gildi háskóla­samfélagsins um frelsi til hugsunar og tjáningar, vinna gegn frjálsum skoðana­skiptum og hvetja til þöggunar og ótta starfs­manna um stöðu sína „tjái þeir sig ekki rétt“,“ sagði Jón Ásgeir í bréfi sem hann sendi rektor Land­búnaðar­háskóla Íslands á dögunum. 

Sams konar sjónarmið eru viðruð í bréfinu frá stjórn Félags prófessora við ríkis­háskóla. „Rétt er að minna á að tjáninga­frelsi einstaklinga er varið bæði af 73. grein stjórnar­skrár Íslands og mann­réttinda­sáttmála Evrópu sem Ísland hefur lögfest (10. grein laga nr. 62/1994),“ segir í ályktuninni. „Hér verður jafnframt að árétta sérstak­lega að akademískir starfs­menn háskóla hafa ríkt frelsi til gagn­rýninna skoðana­skipta um hvers kyns álita- og ágreiningsmál sem tengjast fræði­iðkun og annari starfsemi háskóla. Tjáninga­frelsið er hornsteinn hins svonefnda akademíska frelsis og til þess standa alda­langar alþjóðlegar hefðir og venjur innan háskólanna.“

Bent er á að forstöðu­menn háskóla þurfi að gæta vandlega að ákvæðum stjórnsýslu­laga í störfum sínum og minnst sérstak­lega á reglur um vanhæfi. „Stjórn­vald skal ávallt gæta meðalhófs þegar áformnaðar eru íþyngjandi ákvarðanir í málefnum einstaklinga. Vanhæfis­reglan lýsir meðal annars vanhæfi við meðferð máls ef máls­meðferðar­aðili tengist sjálfur því máli sem er tilefni hinnar áformuðu íþyngjandi ákvörðunar (1. mgr.),“ segir í bréfinu án þess að tekin sé afstaða til þess hvort aðkoma rektors sjálfs að skipulagningu ráðstefnunnar sem Anna Guðrún gagnrýndi geri hann vanhæfan í málinu.

Stjórnin vísar til 21. gr. laga um réttindi og skyldur starfs­manna ríkisins þar sem fjallað er um skriflegar áminningar. „Laga­greinin gerir að sönnu ekki skylt, en getur þó gefið réttum yfirmanni færi á, að áminna starfs­mann vegna brota á reglum og lögum. Uppsögn án áminningar kæmi því aldrei til greina í umræddu máli og væri að mati stjórnar Félags prófessora við ríkis­háskóla skýlaust brot á gildandi lögum,“ segir í ályktun stjórnarinnar.

„Það er álit stjórnar Félags prófessora við ríkis­háskóla að áform yðar um uppsögn Önnu Guðrúnar Þórhalls­dóttur, prófessors, úr starfi, án undan­genginnar áminningar, brjóti gegn lögum um réttindi og skyldur starfs­manna ríkisins nr. 70/1996, auk þess að ganga gegn meðalhófs­reglu stjórnsýslu­laga. Þá verður ekki séð að áform yðar samræmist málfrelsis­ákvæðum stjórnar­skrár, og þaðan af síður reglum og hefðum um akademískt frelsi háskóla­kennara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár