Framsókn slítur viðræðunum – Katrín boðuð á Bessastaði

Þingmenn Fram­sókn­ar­flokks­ins töldu meiri­hlut­ann of tæpan og Sigurður Ingi Jóhanns­son vill „mynda rík­is­stjórn með breiða skírskotun“. Píratar vilja fá fleiri flokka að borð­inu.

Framsókn slítur viðræðunum – Katrín boðuð á Bessastaði

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar­innar, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Pírata hefur verið slitið.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var þetta gert að frum­kvæði Fram­sókn­ar­flokks­ins en þing­menn flokks­ins höfðu lýst áhyggjum af því að meiri­hlut­inn væri of tæpur til að stjórn­ar­sam­starfið gæti gengið upp.

Uppfært kl. 14:00:

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, skrifar á Facebook:

„Það eru mikil von­brigði að ekki hafi náðst að mynda rík­is­stjórn Vinstri-grænna, Fram­sókn­ar­flokks, Sam­fylk­ingar og Pírata að þessu sinni. Ljóst var frá upp­hafi að meiri­hlut­inn var naumur og stór verk­efni framundan. Mál­efna­lega gengu sam­ræður þess­ara flokka mjög vel og ég upp­lifði traust á milli for­mann­anna; mín, Sigurðar Inga, Loga og Þór­hildar Sunnu. Fyrir liggur hins vegar að hinn naumi meiri­hluti vóg of þungt til að Framsókn treysti sér til að ljúka myndun meiri­hluta­stjórnar. Eftir sem áður er það okkar verk­efni að koma á starf­hæfri rík­is­stjórn fyrir fólkið í land­inu.“

Kl. 13:20:

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, skrifar á Facebook:

„Að mati okkar Fram­sókn­ar­manna þarf að mynda trausta rík­is­stjórn sem stuðlar að póli­tískum, félags­legum og efna­hags­legum stöð­ug­leika. Framundan eru stór verk­efni í íslensku sam­fé­lagi, eins og kjara­samn­ingar, sem þarfn­ast þess að mynduð sé rík­is­stjórn í land­inu sem býr að traustum meiri­hluta. Stóra verk­efnið í íslenskum stjórn­málum í dag er að end­ur­reisa traust og skapa sátt í sam­fé­lag­inu okkar. Það þarf að mynda rík­is­stjórn með breiða skírskotun.“

Kl. 13:10:

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, hefur boðað Katrínu Jakobsdóttur til fundar við sig á Bessastöðum kl. 17:00.

Kl. 12:50:

Þing­flokkur Pírata hefur sent frá sér eft­ir­far­andi til­kynn­ingu:

Þing­flokkur Pírata telur ekki full­reynt að ná jákvæðri nið­ur­stöðu í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. Samtalið hefur gengið vel og telja Píratar alla hafa komið að borð­inu með það að mark­miði að ganga í þau stóru mál sem bíða okkar. Píratar skilja áhyggjur af naumum meiri­hluta og telja hinu aug­ljósu leið að bjóða fleirum að borð­inu. Milli flokk­anna fjög­urra ríkir mikið og gott traust.

Þol­in­mæði almenn­ings fyrir stjórn­málum spill­ingar, eig­in­hags­muna og sjálf­hverfu er á þrotum. Það er von Pírata að aðrir stjórn­mála­leið­togar hafi heyrt þau skila­boð og gangi ekki til stjórn­ar­við­ræðna þar sem slík stjórn­mál fá áfram að við­gang­ast. Þing­flokkur Pírata hefur í þessum við­ræðum haft það að mark­miði að skila stjórn­ar­sátt­mála sem er almenn­ingi til heilla. Þar liggur hugur okkar enn.

Þær samn­inga­við­ræður sem fram fóru voru ánægju­legar og jákvæðar miðað við áherslur Pírata í nýaf­stöðnum kosn­ingum. Mál sem ágrein­ingur hefur verið um hafa verið rædd í sátt.

Píratar eru flokkur mál­efna­legra vinnu­bragða og kerf­isum­bóta. Við erum hreyf­ing sem hefur það að mark­miði að stunda ábyrg stjórn­mál til ávinn­ings fyrir almenn­ing og til raun­veru­legra umbóta. Nið­ur­staða kosn­inga skil­aði engum aug­ljósum meiri­hluta. Píratar lýsa sig til­búna til að leita að breið­ari sam­stöðu og halda sam­tal­inu áfram. Píratar skilja að verk­efnið er stærra en við sjálf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár