Jón Gnarr um Bjarta framtíð: „Þetta er líklega það sjoppulegasta sem ég hef orðið fyrir“

Jón Gnarr, stofn­andi Besta flokks­ins og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, er harð­orður í garð Bjartrar fram­tíðar. Hann segir flokk­inn hafa siglt á sinni arf­leifð og seg­ist halda á lofti inn­taki og hug­mynda­fræði Besta flokks­ins. „Ég hef gefið þeim mikið en þau hafa aldrei gefið mér neitt, nema þennan skít núna,“ segir hann.

Jón Gnarr um Bjarta framtíð: „Þetta er líklega það sjoppulegasta sem ég hef orðið fyrir“

„Ég hef upp­lifað ýmis­legt virð­ing­ar­leysi í afskiptum mínum af stjórn­málum en þetta er lík­lega það sjoppu­leg­asta sem ég hef orðið fyrir,“ segir Jón Gnarr, stofn­andi Besta flokks­ins og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, í langri færslu á Facebook í dag. Jón vandar for­ystu­fólki Bjartrar fram­tíðar ekki kveðj­urnar í færsl­unni, en sem kunn­ugt er var stjórn­mála­flokk­ur­inn Björt fram­tíð stofn­aður af fólki tengdu Besta flokknum.

Jón var harð­lega gagn­rýndur af mörgum innan Bjartrar fram­tíðar þegar til­kynnt var um að hann hefði gengið til liðs við Sam­fylk­ing­una. Björt Ólafs­dóttir sagði í við­tali við Vísi að Jón hefði sóst eftir að starfa með Bjartri fram­tíð eftir stjórn­ar­slitin. „Hann er auð­vitað búinn að vera að leita sér að vinnu og það hefur verið mjög opið. Hann hefur nú fengið vinnu hjá Sam­fylk­ing­unni og það er bara fínt og kemur mér þannig séð ekki mikið á óvart. Hann var búinn að leita til okkar áður hjá Bjartri fram­tíð en við því miður gátum ekki borgað honum því við tökum ekki við styrkjum frá fyr­ir­tækjum,“ sagði Björt.

„Mér fannst þetta ekki skemmti­leg kveðja frá mann­eskju sem ég hef virt mik­ils og hef stutt á margan hátt í sinni póli­tísku göngu og er sjálf í nokkuð vel laun­uðu starfi sem hún væri örugg­lega ekki í ef ég hefði aldrei verið til,“ skrifar Jón Gnarr um Björtu.

Í fram­hald­inu birti Guðlaug Krist­jáns­dóttir, stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar, mynd af und­ir­skift Jóns við með­mæl­enda­lista flokks­ins. Skömmu síðar eyddi hún færsl­unni og sagð­ist dauð­sjá eftir henni. „Þetta er ekki bara heimsku­legt, dóna­legt og ómak­legt heldur lík­lega ólög­legt líka,“ skrifar Jón. „Stjórn­ar­for­mað­ur­inn fjar­lægði enda færsl­una. Enginn hefur beðið mig afsök­unar á þessu þannig að það sé sagt.“

Hann segir að það rétta sé að hann hafi hætt við að starfa hjá flokknum því innan hóps­ins hafi ein­hver „slæmska“ fengið að grass­era sem ekki væri verið að horfast í augu við. 

„Ég hef ekki gert þessu fólki neitt. Ég skulda þeim ekk­ert og hef ekki beðið þau um neitt. Þessi flokkur er afsprengi Besta flokks­ins og hefur fengið mik­inn með­byr fyrir tengsl sín við Besta flokk­inn og hefur gefið sig út fyrir að hafa þá helstu sér­stöðu í íslenskum stjórn­málum að halda á lofti inn­taki eða hug­mynda­fræði Besta flokks­ins um heil­brigð sam­skipti. Ég studdi flokk­inn í upp­hafi og gaf honum gott vega­nesti. Þessi flokkur hefur á margan hátt siglt á mér og minni arf­leifð þótt ég hafi ekki verið hluti af honum. Ég hef gefið þeim mikið en þau hafa aldrei gefið mér neitt, nema þennan skít núna,“ skrifar Jón meðal ann­ars. 

Hér er færsla Jóns Gnarrs í heild:

Ég ætla að segja hérna nokkur orð um stjórn­mál og leið­rétta nokkrar rang­færslur sem fram hafa komið. Ég hef ekki tekið þátt í stjórn­málum í nokkur ár eða eftir að ég hætti sem borg­ar­stjóri og lagði niður Besta flokk­inn.

Það var svo eftir að Björt fram­tíð sleit stjórn­ar­sam­starf­inu og boðað var til kosn­inga að nýju að ég fór að skynja mik­inn áhuga frá fólki að fá mig aftur inná þetta svið. Ég var á sama tíma að ljúka við bók, sem er nú farin í prentun. Það fylgir því alltaf mik­ill tóm­leiki og eyrð­ar­leysi þegar ég klára bók og þá langar mig oft að taka til hend­inni. Ég fékk fyr­ir­spurnir frá vinum mínum og jafn­vel hvatn­ingu frá ókunnu fólki, bæði úti í búð og úti á götu. Ég fór því að hugsa að kannski væri þetta bara til­valin tíma­setn­ing að skoða þessi mál. 

Ég hef ekki verið með­limur í neinun stjórn­mála­flokki. Ég velti því fyrir mér að stofna stjórn­mála­flokk og hitti fólk út af því. En þegar ég velti fyrir mér umfang­inu og vinn­unni þá hraus mér hugur við því. Ég hugs­aði líka að það væri komið nóg af því að brjóta upp eða búa til nýtt og frekar kom­inn tími til að byggju upp og efla sam­vinnu frekar en sundr­ungu. Björt fram­tíð var af hluta stofnuð af með­limum Besta flokks­ins og hefur gefið sig út fyrir að reyna að halda anda hans á lofti. Þar starfar líka margt fólk sem ég þekki. Ég hafði því sam­band við Óttarr og sagði honum frá þessum pæl­ingum mínum. Ég ítrek­aði það við hann að ég gerði mér fulla grein fyrir því hver ég væri og fólk gæti haft alls konar skoð­anir á mér og að ég vildi alls ekki stíga á neinar tær heldur bara vera með, ef stemn­ing væri fyrir mér. Það varð úr að við hjónin mættum á fjöl­mennan fund Bjartrar fram­tíðar nokkrum dögum seinna í Garðabæ. Þar stóð ég upp og sagði aðeins frá þessum pæl­ingum mínum og að ég væri að skoða þessi mál. Þarna voru líka nokkrir aðrir nýir og sumir sem höfðu ekki verið mjög virkir. Gamall félagi, sem hafði verið með okkur í Besta flokknum, tók líka til máls og sagð­ist vera upp­full af gremju yfir að sjá svona mikið af nýju fólki og gömul and­lit. Hún var reið vegna þess að henni fannst þau öll hafa verið að erf­iða svo mikið og án þess að fá neina hjálp frá okkur en nú þegar byrjað væri að ganga vel þá ætl­uðum við að teika vel­gengn­ina. Þetta fannst okkur hjónum ákveðið högg í mag­ann. Og það sem verra var, eng­inn annar stóð upp og mót­mælti þessu. Þegar fund­inum lauk laum­uðum við okkur út. Á leið­inni heim vorum við sam­mála um að það væri eitt­hvað mikið að hjá Bjartri fram­tíð og við vildum hvor­ugt vera í ein­hverri fram­línu þar. Seinna um kvöldið áttum við bæði löng sam­töl við Björn Blöndal og Ilmi Krist­jáns­dóttur um þessa upp­lifun okkar og ég sagði þeim að mér hefði alveg snú­ist hugur, ekki endi­lega bara út af þessu ein­staka atviki heldur frekar þeirri upp­lifun að innan hóps­ins hafi ein­hver slæmska fengið að grass­era og sem ekki væri verið að horfast í augu við. 

Eftir þetta mætti ég á einn fund með Bjartri fram­tíð. Ég vildi alls ekki vera leið­in­legur eða nei­kvæður en ítrek­aði bara sem var að ég treysti mér ekki til að taka þátt í þessu með þeim. Og við það sat. En það var allt í mjög góðu og ég sagð­ist reiðu­bú­inn að hjálpa þeim ef ég gæti.

Á þessum tíma, í þess­ari sömu viku, var haft sam­band við mig frá öðrum stjórn­mála­flokkum, bæði beint og óbeint og ég beð­inn um að taka hugs­an­leg sæti á lista. Ég afþakk­aði það allt. Og ég vil ítreka það að svona ákvarð­anir tökum við hjónin í sam­ein­ingu. 

Ég hugð­ist bara ein­beyta mér að útgáfu bók­ar­innar minnar og nýrri bók sem ég er að vinna að. Einnig er ég með þætti á Rás 2 og svo nokkur önnur skap­andi verk­efni sem ég er að skoða. Ég hef til dæmis aðeins verið að hitta Dr. Gunna og við höfum verið að velta fyrir okkur mögu­leikum á að vinna eitt­hvað saman. Við höfum góða reynslu af hvor öðrum. Við höfum bara einu sinni unnið saman og það gekk prýði­lega vel en þá gerðum við Prumpu­lagið. Gunni til­kynnti mér að hann hyggð­ist vera á lista Sam­fylk­ing­ar­innar Sam­fylk­ingin. Mér fannst það mjög gott mál og óskaði honum til ham­ingju með það. Hann hafði svo sam­band við mig og spurði mig hvort ég væri til í að vinna með sér við kosn­inga­bar­áttu Sam­fylk­ing­ar­innar og við fengjum greitt eitt­hvað fyrir. Ég var alveg til í það. Ég er búinn að vera frekar blankur und­an­farið. Ég er rit­höf­undur en fæ ekki rit­höf­unda­laun. Ég var á launum út í Houston en það klárað­ist í vor og er í raun­inni bara að vinna í útvarp­inu einu sinni í viku. Gunni kom á fundi með full­trúum Sam­fylk­ing­ar­innar. Mér hefur lit­ist mjög vel á það sem mér hefur fund­ist vera að ger­ast þar und­an­farið og mikið af fram­bæri­legum mönnum og konum á lista. Mér fannst frá­bært að heyra að Guð­mundur Andri væri kom­inn á lista og svo líst mér gríð­ar­lega vel á Loga Ein­ars­son for­mann. Að ég tali ekki um meist­ara Eddu Björg­vins­dóttur sem hefur nú bara hrein­lega verið ein af fyr­ir­myndum mínum í líf­inu bæði í leik og starfi. Ég hef ekki verið með­limur í Sam­fylk­ing­unni en ég starf­aði með henni í borg­ar­stjórn á sínum tíma og kynnt­ist mörgum og við áttum ákaf­lega gott sam­starf. Þannig að ég sló til. Allt var þetta ákveðið með frekar miklum hraði í ljósi aðstæðna. Allir hafa í nógu að snú­ast og sjálfur var ég að und­ir­búa þát­töku mína í ráð­stefn­unni Forum 2000 í Prag, þar sem ég er núna. Ég kláraði mitt inn­legg í gær og þetta er fyrsti dag­ur­inn þar sem ég hef næði til að skoða þessa hluti og fara yfir það sem gerst hefur frá því að þetta varð opin­bert. Hluti af díl okkar Gunna var að ég mundi taka til máls á fundi hjá Sam­fylk­ing­unni, sem hann var reyndar ekki á sjálfur. Þegar hér var komið sögu hringdi ég í Óttarr og sagði honum að mér hefði verið boðið að vinna við fram­boð Sam­fylk­ing­ar­innar og þá væri ekki við hæfi að ég væti neitt tengdur Bjartri fram­tíð. Hann skildi það full­vel. Og mér fannst ég þar með hafa gert hreint fyrir mínum dyrum. 

Ég hef aldrei áður farið á fund hjá Sam­fylk­ing­unni en ég þekkti þarna marga og það var virki­lega góður andi á fund­inum. Ég upp­lifði mig vel­kom­inn, fann ekki fyrir neinni andúð eða tor­tryggni eða að til­vera mín ógn­aði ein­hverjum. Fyrir fund­inn byrj­uðu fjöl­miðlar að hafa sam­band við mig og vissu um þetta og að ég fengi borgað fyrir mína vinnu. Mér fannst það soldið skrítið því ég hafði engum sagt það nema Óttarri og ekki form­lega gengið frá neinu, eða samið um neinar upp­hæðir við mig enda kom ég inní þetta frekar sem fylgi­hlutur við Gunna og hann meira verið í for­svari fyrir okkur. 

Í fram­haldi af þessu sé ég svo mjög svo sér­kenni­leg við­brögð frá framá­fólki hjá Bjartri fram­tíð. Fyrst kemur Björt Ólafs­dóttir starf­andi umhverfis- og auð­linda­ráð­herra í við­tal við Vísi. Viðtalið er ein­kenni­lega yfir­læt­is­legt. Ráð­herr­ann gefur í skyn að ég hafi farið fram á ein­hverjar greiðslur til mín og þar sem þau hafi ekki getað orðið við því þá hafi ég farið annað. Þetta er bara rangt. Ég fór aldrei fram á neinar greiðslur. Mér voru heldur ekki boðnar neinar greiðslur. Það var aldrei til umræðu. Það var rætt um að ég tæki sæti á lista og það er engin hefð fyrir að borga fólki fyrir það, þannig að ég skil ekki hvað henni gengur til nema að hún sé að reyna að gera lítið úr mér. Ráð­herr­ann sér ástæðu til að nefna sér­stak­lega atvinnu­stöðu mína og það sé ljóst að ég sé að leita mér að vinnu, ég sé ekki merki­legur pappír og farið hafi fé betra og eng­inn sem sakni mín. Mér fannst þetta ekki skemmti­leg kveðja frá mann­eskju sem ég hef virt mik­ils og hef stutt á margan hátt í sinni póli­tísku göngu og er sjálf í nokkuð vel laun­uðu starfi sem hún væri örugg­lega ekki í ef ég hefði aldrei verið til. En gott og vel, ekk­ert um það að segja.

Daginn eftir kemur þó heldur sví­virði­legri send­ing úr her­búðum Bjartrar fram­tíðar þegar Guðlaug Krist­jáns­dóttir, stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar birtir mynd af und­ir­skrift minni við með­mæl­enda­lista flokks­ins. Ég hef upp­lifað ýmis­legt virð­ing­ar­leysi í afskiptum mínum af stjórn­málum en þetta er lík­lega það sjoppu­leg­asta sem ég hef orðið fyrir. Þetta er ekki bara heimsku­legt, dóna­legt og ómak­legt heldur lík­lega ólög­legt líka. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn fjar­lægði enda færsl­una.

Enginn hefur beðið mig afsök­unar á þessu þannig að það sé sagt. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár