Eiginkona forsætisráðherra afskrifar kosningasvindl hjá SUS

„Ég gef ekk­ert fyrir þetta tal um svindl,“ skrifar Þóra Margrét Bald­vins­dóttir, eig­in­kona Bjarna Bene­dikts­sonar, á Facebook. Róbert Trausti Árnason, fyrr­ver­andi sendi­herra, telur deilur ung­lið­anna end­ur­spegla dýpri inn­an­flokksá­tök í Sjálf­stæð­is­flokknum milli stuðn­ings­manna Bjarna og Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar.

Eiginkona forsætisráðherra afskrifar kosningasvindl hjá SUS
Þóra og Bjarni Eig­in­kona for­sæt­is­ráð­herra blandar sér reglu­lega í póli­tíska umræðu. Mynd: Pressphotos / Geiri

Þóra Margrét Bald­vins­dóttir, eig­in­kona for­sæt­is­ráð­herra og hönn­un­ar­ráð­gjafi, tjáir sig um harð­vít­ugar deilur ung­liða Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Facebook og gerir lítið úr ásök­unum þess efnis að annað fram­boðið hafi svindlað í for­manns­kjöri á þingi Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna sem fram fór síð­ustu helgi.

Tilefnið er pist­ill eftir Róbert Trausta Árnason, frétta­stjóra Hring­brautar og fyrr­ver­andi sendi­herra og ráðu­neyt­is­stjóra, þar sem meðal ann­ars er full­yrt að deilur ung­lið­anna opin­beri átök og tog­streitu milli stuðn­ings­manna Bjarna Bene­dikts­sonar og Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar sem kraumi undir niðri í flokknum.

„Gef ekkert fyrir þetta tal um svindl“

„Margt skrýtið við aðdrag­anda þessa þings og mér fannst eig­in­lega bæði fram­boð fara fram úr sér. Lög­heim­il­is­flutn­ingar verða ekk­ert betri við það að báðir beiti slíkri aðferð og létt­vægt að tala um að það sé ekki bannað,“ skrifar Þóra Margrét.„Það eitt að meira en 400 manns mættu á Eski­fjörð sýnir hvað gekk á. Ég gef ekk­ert fyrir þetta tal um svindl, sé ekki að það sé inni­stæða fyrir því.“ 

Róbert, sem sjálfur hefur unnið sem eft­ir­lits­maður við fram­kvæmd kosn­inga í van­þró­uðum ríkjum, full­yrðir að framið hafi verið kosn­inga­svindl á sam­bands­þingi SUS og ábyrgðin liggi meðal ann­ars hjá Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, þing­konu Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­manni alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis, og Laufeyju Rún Ket­ils­dóttur, aðstoð­ar­manni dóms­mála­ráð­herra. Báðar sátu í stjórn sam­bands­ins þegar þingið var haldið og Laufey gegndi for­mennsku. Fram­bjóð­endur til for­manns voru þeir Ingvar Smári Birg­is­son og Ísak Einar Rún­ars­son, en Ingvar bar sigur úr býtum. 

Ásakanir á báða bóga

Ásakanir hafa gengið á milli fram­bjóð­end­anna í fjöl­miðlum, meðal ann­ars um aðstöðu­brask við skipu­lagn­ingu sam­bands­þings­ins og óeðli­lega lög­heim­il­is­flutn­inga á milli sveit­ar­fé­laga. Eftir að þing­inu lauk hafa svo stuðn­ings­menn Ísaks gagn­rýnt kjör­bréfa­nefnd harð­lega fyrir að hafa beðið til­tekna þing­full­trúa um að stað­festa lög­heim­il­is­skrán­ingu sína og lýsa húsa­kynnum sínum. Þetta hafi fyrst og fremst beinst gegn stuðn­ings­mönnum Ísaks og þannig gagn­ast fram­boði Ingvars Smára.

Stuðn­ings­menn þess síð­ar­nefnda hafna þess­ari gagn­rýni. Davíð Þor­láks­son, for­seti sam­bands­þings­ins, full­yrðir á umræðu­þræð­inum sem hér er vitnað til að engum ung­liða hafi verið neitað um að kjósa á þing­inu vegna lög­heim­il­is­flutn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár