Sótt að Pressunni vegna 90 milljóna skuldar: Björn Ingi flytur inn í 320 fermetra einbýlishús

Björn Ingi Hrafns­son leigir ein­býl­is­hús sem er í eigu félags á Möltu sem er einn hlut­hafa eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar. Mála­ferli gegn Press­unni ehf. vegna rúm­lega 90 millj­óna láns, sem veitt var til að kaupa DV ehf. 2014, hafa verið þing­fest. Eigandi skuldar Pressunnar ehf. vill ekki ræða málið en stað­festir að það sé vegna van­gold­innar skuldar.

Sótt að Pressunni vegna 90 milljóna skuldar: Björn Ingi flytur inn í 320 fermetra einbýlishús
Bað um að leigja húsið Björn Ingi Hrafns­son, eig­andi og stjórn­ar­for­maður Pressunnar, er fluttur inn í 320 fer­metra eins­býl­is­hús við Starhaga. Félag hans stendur í ströngu fjár­hags­lega á sama tíma og hefur meðal ann­ars verið stefnt vegna 90 millj­óna króna skuldar. Mynd: Skjáskot af ÍNN

Björn Ingi Hrafns­son, aðal­eig­andi og stjórn­ar­for­maður fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Pressunnar, er fluttur inn í 320 fer­metra ein­býl­is­hús við Starhaga í Vesturbæ Reykja­víkur sem keypt var í gegnum eign­ar­halds­fé­lag á Möltu í lok júlí­mán­aðar. 

Verðmæti húss­ins á fast­eigna­mark­aðnum á Íslandi í dag væri á milli 175 og 200 millj­ónir, sam­kvæmt fast­eigna­sala sem Stundin fékk álit frá, og leigu­verðið á sam­bæri­legum húsum á Vest­ur­bæjar- og mið­bæj­ar­svæð­inu er um 750 þús­und krónur á mán­uði sam­kvæmt sama aðila.

Fast­eigna­mat húss­ins er rétt tæp­lega 130 millj­ónir króna. Húsið er í eigu félags­ins TD á Íslandi ehf. sem aftur er í eigu félags­ins Maltice ltd. á eynni Möltu í Mið­jarð­ar­haf­inu. Félagið hefur áður ratað í fréttir vegna kaupanna á greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Borgun þar sem TD á Íslandi ehf. er einn af hlut­höf­unum.

„Hann kom bara til okkar og bað um að fá að leigja þetta hús og teng­ist okkur ekki á neinn hátt“

Engum leigu­samn­ingi hefur verið þing­lýst vegna leigu Björns Inga Hrafns­sonar á hús­inu frá TD á Íslandi ehf. og kaup­verð húss­ins kemur ekki fram í afsali þess. Seljandi var Franz Jezorski sem er annar af eig­endum TD á Íslandi ehf. í gegnum félagið á Möltu.  Jóhann Bald­urs­son, stjórn­ar­maður í TD á Íslandi, segir að engin tengsl séu á milli Björns Inga og TD á Íslandi eða malt­verska félags­ins sem á félagið sem á húsið.

Jóhann segir:

„Það eru engin tengsl á milli félags­ins og Björns Inga Hrafns­sonar. Hann hefur hvergi komið nálægt þessu fyr­ir­tæki á neinn hátt. Hann var bara að leita sér að hús­næði - þetta er nú stórt hús og það eru kannski ekki margir á leigu­mark­aði þannig. Hann kom bara til okkar og bað um að fá að leigja þetta hús og teng­ist okkur ekki á neinn hátt. Ég hef aldrei séð hann nema bara í blöð­unum.“ 

Samkvæmt fréttum í fjöl­miðlum hefur Björn Ingi verið með um og yfir tvær millj­ónir króna í mán­að­ar­laun síð­ast­liðin ár: 1.9 millj­ónir árið 2015 og 2.4 millj­ónir árið 2016. 

Fyr­ir­taka í sept­em­berMyndin sýnir dagk­skrár­síðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur þar sem mála­ferli Útvarðar ehf. gegn Press­unni ehf. koma fram.

Á sama tíma og Björn Ingi flytur inn í húsið á Starhaga stendur fjöl­miðla­fyr­ir­tæki hans, sem meðal ann­ars rekur DV*, Eyjuna, Pressuna, Bleikt og nokkur hér­aðs­frétta­blöð, illa vegna skulda. Fjöl­mið­il­inn Kjarninn sagði frá því fyrir helgi að félagið Útvörður ehf. hafi stefnt Press­unni vegna 91 millj­ónar króna skuldar félags­ins.

Skuldin er til­komin vegna kaupa Pressunnar ehf. á hlutafé í fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu DV ehf. í árs­lok 2014 þegar Útvörður ehf. veitti Press­unni selj­enda­lán til að kaupa hlutafé fjöl­mið­il­is­ins.

For­svars­maður Útvarðar er Þor­steinn Guðnason en á bak við félagið er athafna­mað­ur­inn Gísli Guð­munds­son sem veitti einum fyrri hlut­hafa DV ehf., Reyni Trausta­syni**, lán fyrir hlutafé í DV sem hann svo yfir­tók í árs­lok 2014 þegar harðar deilur komu upp innan DV. Þor­steinn og Gísli seldu hluta­féð svo áfram til Pressunnar ehf.

„Það er bara van­goldin skuld“

Í sam­tali við Stundina segir Þor­steinn Guðnason að hann vilji ekki ræða um mála­ferlin við Pressuna í neinum smá­at­riðum.

„Það er bara van­goldin skuld [...] Ég á voða­lega erfitt með að tjá mig um þetta. Lög­mað­ur­inn minn er bara með þetta og við sjáum bara hvað setur. Það er affara­sæl­ast að vera ekk­ert að tala um þetta,“ segir Þor­steinn sem meðal ann­ars seg­ist ekki geta svarað því hversu mikið Pressan ehf. hefur greitt af upp­haf­lega lán­inu. 

Hættu viðFjár­festar sem ætl­uðu að leggja Press­unni til aukið hlutafé, meðal ann­ars Róbert Wessmann, hættu við það fyrr á árinu vegna fjár­hags­stöðu félags­ins.

Kjarninn hefur áður greint frá því að setja þurfi um 700 millj­ónir króna inn í Pressu­sam­stæð­una til að gera hana rekstr­ar­hæfa og að þar af sé um 300 millj­óna króna skuld vegna ógreiddra opin­berra gjalda, líf­eyr­is­sjóðs­greiðslna og stétt­ar­fé­lags­greiðslna fyrir starfs­menn sam­stæð­unnar. Fjöl­mið­ill­inn sagði frá því að nýir hlut­hafar, meðal ann­ars Róbert Wessmann fjár­festir, sem ætl­uðu að koma inn í hlut­hafa­hóp Pressunnar hafi hætt við það þegar þeir átt­uðu sig á fjár­hags­stöðu Pressunnar.

Þá greindi Frétta­blaðið frá því í mars að stétt­ar­fé­lagið VR hefði kraf­ist þess að DV ehf. yrði tekið til gjald­þrota­skipta vegna ógreiddra launa starfs­manna þess og að Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna hefði gert árang­urs­laust fjár­nám hjá DV ehf. vegna van­gold­inna líf­eyr­is­sjóðs­greiðslna. 

 

* Tekið skal fram að grein­ar­höf­undur, Ingi F. Vil­hjálms­son, er fyrr­ver­andi hlut­hafi og starfs­maður DV ehf. 

** Tekið skal fram að Reynir Trausta­son er fyrr­ver­andi hlut­hafi og rit­stjóri DV og hlut­hafi og stjórn­ar­for­maður Stund­ar­innar. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár