Hagnaðist um 1.400 milljónir við sölu Fjarðalax til norsks eldisrisa

Stærsti hags­muna­að­il­inn í íslensku lax­eldi, norska fyr­ir­tækið SalMar, vinnur að því að þróa „sjálf­bæra“ lausn í lax­eldi sem byggir á allt annarri hug­mynda­fræði en lax­eldið sem fyr­ir­tækið stundar á Íslandi.

Hagnaðist um 1.400 milljónir við sölu Fjarðalax til norsks eldisrisa
Aflandseldi fram­tíðin Í árs­reikn­ingi SalMar 2016 kemur fram að notkun á eld­iskvíum sem eru ekki stað­settar við strönd­ina sé „sjálf­bær“ lausn. Tölvu­gerða mynd af slíkri eld­is­kví má sjá á mynd­inni. Fyrsta slíka aflandseld­isk­víin verður tekin í notkun í Noregi síðar á árinu. Á sama tíma stendur yfir hörð umræða á Íslandi um fram­tíð lax­eldis í íslenskum fjörðum.

Eigandi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fjarða­lax, Fiski­sund ehf., hagn­að­ist um rúm­lega 1.400 millj­ónir króna í fyrra þegar norska eld­is­fyr­ir­tækið SalMar AS fjár­festi í fyr­ir­tæk­inu í gegnum lax­eld­is­fyr­ir­tækið Arnarlax á Bíldudal. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Fiski­sunds ehf. sem skilað var til árs­reikn­inga­skrár rík­is­skatt­stjóra um miðjan ágúst. Eigendur Fiski­sunds ehf. eru eign­ar­halds­fé­lög í eigu þeirra Einars Arnar Ólafs­sonar, Höllu Sigrúnar Hjart­ar­dóttur og Kára Guð­jóns­sonar. Ekki er tekið fram að hagn­aður félags­ins hafi verið út af söl­unni á Fjarða­lax en fyr­ir­tækið átti umrædd hluta­bréf sem voru seld. Enginn arður var tek­inn út úr félag­inu í fyrra en hins vegar var veitt víkj­andi lán upp á rúm­lega 1.500 millj­ónir króna.  

 

Eld­is­lax­inn fluttur á haf út og til ÍslandsEld­is­fyr­ir­tækið SalMar mun opna fyrstu aflandseld­is­stöð í heim­inum út fyrir ströndum Noregs síðar á árinu. Trond Williksen er for­stjóri SalMar.

Norskt fé í uppbyggingu eldisins

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár