Thomas vísar á félaga sinn með hvarfið á Birnu Brjánsdóttur

Thomas Møller Olsen er ákærður fyrir morðið á Birnu Brjáns­dóttur, en hagar vitn­is­burði sínum fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­ness þannig að hann segir Nikolaj hafa keyrt í burtu með Birnu Brjáns­dóttur og síðar verið „æstur“.

Thomas vísar á félaga sinn með hvarfið á Birnu Brjánsdóttur
Thomas í dóms­sal Thomas Möller Olsen huldi sig með teppi á leið­inni úr dóms­sal. Mynd: Pressphotos

Thomas Møller Olsen, sem er ákærður fyrir morðið á Birnu Brjáns­dóttir síð­asta vetur, hefur breytt fram­burði sínum veru­lega og vísar nú til skips­fé­laga síns, Nikolaj. Hann seg­ist nú aldrei hafa séð Birnu Brjáns­dóttur, en í skýrslu­tökum hjá lög­reglu taldi hann hana hafa komið inn í rauða Kia Rio bif­reið sem hann hafði á leigu.

Eftir að hafa yfir­farið sönn­un­ar­gögn í mál­inu og rætt við vitni hafði lög­reglan hins vegar ákvarðað að ákæra ein­göngu Thomas Møller. Hann segir þetta vera mis­skiln­ing.

Í beinni útsend­ingu Vísis.is er haft eftir í fram­burði Thomasar að hann hafi fyrir mis­tök sagt rangt frá atburða­rásinni.

Þá segir hann lög­reglu hafa verið „vonda við sig“, kallað sig illum nöfnum og vakið sig reglu­lega og öskrað: „Hvar er hún?! Hvar er hún?!“

Auk þess hafi lög­reglan hótað að ræða við kærust­una hans um að hann væri skrímsli. Thomas seg­ist hafa verið undir mik­illi pressu og viljað hjálpa. „Mig lang­aði svo að hjálpa að ég sagði óvart ósatt hvað hafði gerst,“ hefur Vísir eftir Thomasi.

Nikolaj OlsenKemur fyrir Hér­aðs­dóm Reykj­ana­ess til að bera vitni.

 

„Hann keyrir í burtu“

Í fram­burð­inum fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­ness í morgun virt­ist Thomas vilja benda á Nikolaj sem mögu­legan ger­anda hans í stað. Hann segir að Nikolaj hafi beðið um „smá prí­vat tíma með kon­unni“.

Vísir hefur eftir Thomasi að hann bendir á Nikolaj. „Svo fór ég út að pissa, fór í smá göngu í kringum tré. Ég sá stórt hvítt hús. Nikolaj spjall­aði við kon­una meðan ég var úti. Ég sé að hann keyrir í burtu, ég man ekki hve lengi hann var í burtu. Ég hafði misst eða týnt sím­anum mínum og gat ekki haft sam­band við hann.“

Thomas segir Nikolaj hafa verið í burtu með stúlk­una í bílnum í nokkra tíma. Það hafi verið kalt og hann hafi fundið vel fyrir kuld­anum. Þetta stang­ast á við gögn máls­ins. Fram hefur komið að bíll­inn hafi sést í eft­ir­lits­mynda­vél við áhalda­hús Golf­klúbbs Kopavogs og Garða­bæjar kl. 05.53. Nokkrum mín­útum síðar, eða um kl. 06:10, kemur bíll­inn svo inn á hafn­ar­svæðið við Hafn­ar­fjarð­ar­höfn og stíga báðir skip­verjarnir þar úr bílnum. Um klukkan sjö ekur Thomas síðan einn á brott í bílnum og neitar nú fyrir dómi að segja til um hvað hann hafi verið að gera á bílnum til klukkan ell­efu sama dag.

Thomas segir að Nikolaj hafi komið einn til baka. „Ég spurði hvar konan væri. Og hann sagði að hún væri rétt hjá og hún ákvað bara að labba heim.“

Enn­fremur lýsir Thomas að Nikolaj hafi hegðað sér und­ar­lega. „Nikolaj var búinn að færa sig í far­þega­sætið. Hann var að nudda hend­urnar sínar ... hann var svo­lítið æstur.“

Sjálfur seg­ist Thomas hafa séð blett í bílnum um morg­un­inn og því ákveðið að þrífa hann. 

Á reiki hjá Thomasi hvort tvær konur voru í bílnum

Fram­burður Thomasar, þegar kemur að því hvort tvær konur hafi verið í bif­reið þeirra, skar­ast á við fram­burð vitnis í mál­inu, vél­stjóra á Polar Nanoq. Thomas segir að Nikolaj hafi sagt sér að kon­urnar væru tvær í bílnum, en sam­kvæmt vél­stjóra á skip­inu greindi Nikolaj frá því um borð að hann myndi ekki eftir því að kon­urnar hefðu verið tvær, en að Thomas hefði sagt svo vera.

Þá seg­ist Thomas hafa verið með klór­för á bring­unni vegna þess að hann klóri sér svo mikið í svefni.

Því er ljóst að bæði hefur Thomas breytt fram­burði sínum og svo hefur hann ákveðið að varpa grun á Nikolaj, félaga sinn. 

Nikolaj er nú að bera vitni fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­ness.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár