Ráðgátan um náhvalinn skýrð

Nýj­ar rann­sókn­ir birt­ast um ein­hyrn­inga hafs­ins, ná­hvali. Skögultönn þeirra hef­ur ver­ið sveip­uð dulúð. Ná­hval­ir hafa sést bera sam­an lengd­ina á skögultönn­um sín­um and­spæn­is kven­dýr­um.

Náhvölum er einum dýra gefin bein skögultönn, ein tönn sem getur orðið allt að þrír metrar á lengd og er svo undarleg að hún var seld sem töfrandi einhyrningshorn á miðöldum.

Skögultennurnar hafa heillað vísindamenn allar götur síðan, en þær hafa reynst afar erfiðar í rannsókn þar sem þessir undarlegu, spikfeitir hvalir eyða mestum hluta ævi sinnar undir hafís norðurslóða.

Náhvalir hafa sést við Ísland, en finnast þó sjaldan sunnan við 70 breiddargráðu.

Í dag tilkynnti stór alþjóðlegur hópur vísindamanna að þeir hefðu leyst langvarandi ráðgátu um skögultennurnar: hvernig þær fá sitt einstaka gormlaga en þó örbeina form.

Vinstri vígtönn karldýra náhvala vex í gegnum kjálka þeirra og efri vör og stendur út sem eina skögultönn dýraríkisins. Hægri vígtönn þeirra er falin í höfðinu.

„Ímyndaðu þér að þú þyrftir að hjóla með kústskaft fast á höfðinu,“ sagði Henrik Birkedal, aðalhöfundur rannsóknar í Nature Communications sem lýsir nýju uppgötvuninni.

Þannig …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár