Fyrirtæki hlaupist algjörlega undan merkjum

Formað­ur VR seg­ir fyr­ir­tæki hafa hlaup­ist und­an merkj­um þeg­ar kem­ur að því að halda aft­ur af verð­hækk­un­um sem hafa ver­ið elds­mat­ur á verð­bólgu­bál­ið. Það bend­ir margt til þess að kreppu­verð­bólga sé hand­an við horn­ið.

Fyrirtæki hlaupist algjörlega undan merkjum
Halla Gunnarsdóttir Formaður VR segir fyrirtæki hafa brugðist í kjaramálum með verðhækkunum. Mynd: VR

„Mér finnst það alveg ljóst, að þessi stærri fyrirtæki sem hafa verðmótandi áhrif á Íslandi, þau hafa algjörlega hlaupist undan merkjum,“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, en hún ásamt formönnum fimm annarra verkalýðsfélaga rituðu grein sem birtist á Vísi í dag þar sem varað er við að ákvæði í kjarasamningum frá árinu 2024 í tengslum við verðbólgu séu brostin. Þann 27. ágúst næstkomandi verður vísitala neysluverðs birt og fyrirséð að ársverðbólgan mun mælast svo há að forsendur kjarasamninga bresta.

Fyrirtækjum sendur tónninn

Í greininni er stærri fyrirtækjum, sem eru á margan hátt verðmyndandi eins og það er orðað í greininni, sendur hvass tónn. Orðrétt segir í greininni:

„Vel hefði mátt fyrirbyggja þá stöðu sem nú er komin upp. Hefðu stærri fyrirtæki, sem móta verð í landinu, staðið við fyrirheit um að halda aftur af verðhækkunum væri verðbólgan lægri en raun ber vitni. Þess í stað hafa þau aukið hagnað sinn …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Skrítið að Halla undri sig á að fyrirtæki hækki verð bara af því þau geta það. „Þau hafa verið að skila góðu búi á verðbólgutímum. Og það var bara ekki hluti af samningnum. Þau áttu að halda vöruverði niðri.“. Alla þá ríflegu öld sem við höfum verið með krónuna, þá hafa fyrirtæki í fákeppninni hér auðveldlega getað hækkað vöruverð ríflega. Markmið í fyrirtækjarekstri er jú góður hagnaður og hefur líkast til verið markmiðið í þúsundir ára. Ég veit ekki hvers vegna Halla heldur að það hafi allt í einu breyst og það bara á Íslandi en ekki í heimsbyggðinni allri. Það er vel þekkt í vestrænni hagfræði að heilbrigð samkeppni er leiðin til að halda verðhækkunum í skefjum. Í fákeppninni hér verður verðhækkunum ekki haldið í skefjum, böndum verður ekki komið á verðbólguna á fyrr en við losum okkur við örmyntina krónu.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár